Fréttablaðið - 17.03.2016, Page 42

Fréttablaðið - 17.03.2016, Page 42
ætti að reka Guðmund eftir von- brigðin í Póllandi en af því varð nú ekki. Ef Guðmundi tekst aftur á móti ekki að koma Dönum á ÓL í forkeppninni í næsta mánuði má telja líklegt að það verði heitt undir honum. Lítur hann svo á að starfið sé undir í forkeppninni? „Ég vil ekkert segja um það en ég segi þó að það sé gríðarlega mikilvægt fyrir okkur að komast á Ólympíuleikana,“ segir Guðmundur varkár. Áhuginn komið á óvart Danska handknattleikssambandið er mun stærra en það íslenska og peningarnir sem menn hafa úr að spila þar miklu meira en hjá HSÍ. „Það hefur komið mér á óvart hversu ofboðslega mikill áhugi er á liðinu og hversu mikil fjölmiðla- umfjöllunin er. Ég held að hvergi í heiminum sé eins mikill fjölmiðla- áhugi á handboltalandsliði og í Dan- mörku. Ég lít það jákvæðum augum og það er frábært að liðið fái mikla athygli,“ segir Guðmundur en er mikill munur á því að þjálfa danska og íslenska landsliðið? „Það er ekki svo mikill munur. Það er helst í umhverfinu. Hér eru miklu fleiri fjölmiðlar og þeir eru á öllum æfingum hjá okkur. Þegar ég vann hjá HSÍ þá bar ég mikla virðingu fyrir því hvað menn lögðu á sig til að hafa umgjörðina í kringum liðið góða.“ Guðmundur var að þjálfa þýska stórliðið Rhein-Neckar Löwen áður en hann tók við danska lands- liðinu. „Að þjálfa landslið hefur sína kosti og galla. Stund- um sakna ég daglegu þjálfunarinnar. Að hafa liðið í höndunum alla daga og hafa mikið um það að segja í hvaða formi leikmennirnir eru. Hafa tíma til að móta liðið. Hjá lands- liði er takmarkaður tími til að móta lið og gera breytingar. Þar er maður líka dæmdur á mjög stuttum tíma. Jafn- vel viku eða tíu dögum. Pressan er líka margföld að vera landsliðsþjálfari og ég tala ekki um þegar maður þjálfar eitt besta landslið heims.“ handbolti Starf landsliðsþjálfara Danmerkur er eitt af stærstu þjálfara- störfunum þar í landi. Því stýrir Guð- mundur Þórður Guðmundsson síðan sumarið 2014. „Þetta er búið að vera skemmtilegt en þetta er auðvitað rosalega krefj- andi starf enda kröfurnar miklar. Við erum búnir að spila 33 leiki undir minni stjórn og vinna langflesta leikina. Aðeins tapað fimm leikjum,“ segir Guðmundur en mikilvægir leik- ir hafa tapast hjá liðinu sem hafa gert það að verkum að liðið hefur ekki komist í undan úrslit á báðum þeim stórmótum sem Guðmundur hefur stýrt liðinu. Í Danmörku eru gerðar kröfur um sæti í undanúrslitum. Sjaldan liðið jafn illa eftir mót „Í Katar þá töpuðum við aðeins einum leik af níu. Það var auðvitað í átta liða úrslitunum gegn Spáni svo við komumst ekki í undanúr- slit. Þeir skora sigurmark er tvær sekúndur voru eftir. Á EM í Póllandi lendum við í svipuðum aðstæðum. Erum að spila geysilega vel framan af móti og leikur okkar afar sann- færandi. Við erum á blússandi sigl- ingu er við gerum jafntefli við Svía. Það var úrslitaleikurinn fyrir okkur þegar upp var staðið. Sigur þar hefði komið okkur í undanúrslit. Þetta mót var vissulega vonbrigði fyrir okkur en það er ótrúlega stutt á milli í þessu,“ segir Guðmundur en það má vel heyra á tóninum í honum að hann er ekki enn kominn yfir von- brigðin. „Það er varla að ég sé búinn að jafna mig. Mér hefur sjaldan liðið jafn illa og eftir þetta mót. Það helg- ast líka af því að maður er búinn að gera allt rétt í fyrstu fjórum leikj- unum. Við vinnum svo Spánverja glæsilega í milliriðli og spilum frá- bærlega. Svo veldur augnabliksein- beitingarleysi því að við klúðrum þessum Svíaleik. Ég vil varla ræða það að við spilum við Þjóðverja í kjölfarið tæpum 20 tímum eftir að Svíaleiknum lýkur. Það er náttúru- lega alveg galið. Ég ætla ekkert að afsaka mig þannig en það sér hver maður að slíkt fyrirkomulag gengur ekki upp. Það er út úr kú. Það væri gaman að vita hver fékk hugmynd- ina að þessu fyrirkomulagi.“ Guðmundur segir að það sé áhugaverð þróun í íþróttaheiminum þar sem verulega sé að draga saman á milli stóru og litlu liðanna. „Ég fylgist líka með enska fótbolt- anum og þar er eiginlega alveg sama hver spilar við hvern. Það geta eigin- lega allir unnið alla. Svona finnst mér þróunin í íþróttaheiminum vera í dag og það er stórmerkilegt.“ Þið eruð eins og leikskólabörn Danskir fjölmiðlamenn hafa ekki tekið Guðmund neinum vettlinga- tökum og hann hefur fengið drjúgan skammt af gagnrýni fyrir að koma liðinu ekki í undanúrslit. Hann var á stundum ekki sáttur við gagnrýni sem hann fékk hér heima en segir það ekkert í líkingu við það sem gerist í Danmörku. „Þið íslensku fjölmiðlamennirnir eruð bara eins og leikskólabörn í samanburði við danska kollega ykkar,“ segir Guðmundur og hlær dátt en er fljótur að verða aftur alvarlegur. „Þetta er eitt heitasta starfið í Danmörku, alveg grínlaust. Það er vegna þess að það er mikið fjallað um liðið og handbolti er mjög stór íþrótt í Danmörku. Það eru um tvær milljónir manna að horfa á leiki liðsins á stórmótum. Það hefur gengið vel hjá liðinu í gegnum tíðina og því eru gerðar miklar kröfur,“ segir Guðmundur en hvernig gengur honum að takast á við þessa pressu? „Ég held mér hafi gengið það vel og ég reyni að vera faglegur. Ég einbeiti mér að minni vinnu og les ekki það sem er verið að skrifa. Ég hef farið þá leið að velta mér ekki of mikið upp úr skrifunum. Það er vissulega þjarmað að mér en þá er mjög mikilvægt að vinna alla leik- ina,“ segir Guð- mundur léttur þó málið sé vissulega ekki léttvægt. Hann missti sig aðeins í viðtali eftir tapið gegn Þýskalandi í janúar enda svekkelsið mikið. „Auðvitað verður maður stund- um pirraður en ég reyni að vera hreinskiptinn í samskiptum við fjölmiðla. Ég virði þeirra starf en svo getur maður deilt um hvaða línu menn eru að taka. Ég hef alltaf reynt að svara heiðarlega og segja hlutina eins og ég sé þá.“ Það var umræða um að það Eitt heitasta starfið í Danmörku Gríðarmikil fjölmiðlaumfjöllun hefur komið Guðmundi Þórði Guðmundssyni helst á óvart í starfi sínu sem landsliðsþjálfari Danmerkur. Hann segir starfið vera skemmtilegt en mjög krefjandi. Guðmundur er enn að jafna sig eftir von- brigðin á EM í Póllandi. Starfið hans er líklega undir í næsta mánuði. Guðmundur er mjög ástríðufullur þjálfari og tekur virkan þátt í leiknum eins og sjá má. Ekki síst þegar mikið er undir eins og hjá danska landsliðinu. fréttablaðið/GEtty Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is Þjálfaraferill Guðmundar 1989-1992 Víkingur 1992-1995 Afturelding 1995-1999 Fram 1999-2001 Bayer Dormagen 2001-2004 Ísland 2005-2007 Fram 2008-2012 Ísland 2009-2010 GOG 2010-2014 Rhein-Neckar Löwen 2014 Danmörk Ég held að hvergi í heiminum sé eins mikill fjölmiðlaáhugi á landsliði og í Danmörku. Guðmundur Þórður Guðmundsson 1 7 . m a r s 2 0 1 6 F i m m t U d a G U r42 s p o r t ∙ F r É t t a b l a ð i ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.