Fréttablaðið - 17.03.2016, Qupperneq 42
ætti að reka Guðmund eftir von-
brigðin í Póllandi en af því varð
nú ekki. Ef Guðmundi tekst aftur
á móti ekki að koma Dönum á ÓL
í forkeppninni í næsta mánuði má
telja líklegt að það verði heitt undir
honum. Lítur hann svo á að starfið
sé undir í forkeppninni?
„Ég vil ekkert segja um það en
ég segi þó að það sé gríðarlega
mikilvægt fyrir okkur að komast á
Ólympíuleikana,“ segir Guðmundur
varkár.
Áhuginn komið á óvart
Danska handknattleikssambandið
er mun stærra en það íslenska og
peningarnir sem menn hafa úr að
spila þar miklu meira en hjá HSÍ.
„Það hefur komið mér á óvart
hversu ofboðslega mikill áhugi er
á liðinu og hversu mikil fjölmiðla-
umfjöllunin er. Ég held að hvergi í
heiminum sé eins mikill fjölmiðla-
áhugi á handboltalandsliði og í Dan-
mörku. Ég lít það jákvæðum augum
og það er frábært að liðið fái mikla
athygli,“ segir Guðmundur en er
mikill munur á því að þjálfa danska
og íslenska landsliðið?
„Það er ekki svo mikill munur. Það
er helst í umhverfinu. Hér eru miklu
fleiri fjölmiðlar og þeir eru á öllum
æfingum hjá okkur. Þegar ég vann
hjá HSÍ þá bar ég mikla virðingu
fyrir því hvað menn lögðu á sig til
að hafa umgjörðina í kringum liðið
góða.“
Guðmundur var að þjálfa þýska
stórliðið Rhein-Neckar Löwen áður
en hann tók við danska lands-
liðinu.
„Að þjálfa landslið hefur
sína kosti og galla. Stund-
um sakna ég daglegu
þjálfunarinnar. Að hafa
liðið í höndunum alla
daga og hafa mikið um
það að segja í hvaða
formi leikmennirnir
eru. Hafa tíma til að
móta liðið. Hjá lands-
liði er takmarkaður
tími til að móta lið og
gera breytingar. Þar er
maður líka dæmdur á
mjög stuttum tíma. Jafn-
vel viku eða tíu dögum.
Pressan er líka margföld að
vera landsliðsþjálfari og ég tala
ekki um þegar maður þjálfar eitt
besta landslið heims.“
handbolti Starf landsliðsþjálfara
Danmerkur er eitt af stærstu þjálfara-
störfunum þar í landi. Því stýrir Guð-
mundur Þórður Guðmundsson síðan
sumarið 2014.
„Þetta er búið að vera skemmtilegt
en þetta er auðvitað rosalega krefj-
andi starf enda kröfurnar miklar. Við
erum búnir að spila 33 leiki undir
minni stjórn og vinna langflesta
leikina. Aðeins tapað fimm leikjum,“
segir Guðmundur en mikilvægir leik-
ir hafa tapast hjá liðinu sem hafa gert
það að verkum að liðið hefur ekki
komist í undan úrslit á báðum þeim
stórmótum sem Guðmundur hefur
stýrt liðinu. Í Danmörku eru gerðar
kröfur um sæti í undanúrslitum.
Sjaldan liðið jafn illa eftir mót
„Í Katar þá töpuðum við aðeins
einum leik af níu. Það var auðvitað
í átta liða úrslitunum gegn Spáni
svo við komumst ekki í undanúr-
slit. Þeir skora sigurmark er tvær
sekúndur voru eftir. Á EM í Póllandi
lendum við í svipuðum aðstæðum.
Erum að spila geysilega vel framan
af móti og leikur okkar afar sann-
færandi. Við erum á blússandi sigl-
ingu er við gerum jafntefli við Svía.
Það var úrslitaleikurinn fyrir okkur
þegar upp var staðið. Sigur þar hefði
komið okkur í undanúrslit. Þetta
mót var vissulega vonbrigði fyrir
okkur en það er ótrúlega stutt á milli
í þessu,“ segir Guðmundur en það
má vel heyra á tóninum í honum að
hann er ekki enn kominn yfir von-
brigðin.
„Það er varla að ég sé búinn að
jafna mig. Mér hefur sjaldan liðið
jafn illa og eftir þetta mót. Það helg-
ast líka af því að maður er búinn að
gera allt rétt í fyrstu fjórum leikj-
unum. Við vinnum svo Spánverja
glæsilega í milliriðli og spilum frá-
bærlega. Svo veldur augnabliksein-
beitingarleysi því að við klúðrum
þessum Svíaleik. Ég vil varla ræða
það að við spilum við Þjóðverja í
kjölfarið tæpum 20 tímum eftir að
Svíaleiknum lýkur. Það er náttúru-
lega alveg galið. Ég ætla ekkert að
afsaka mig þannig en það sér hver
maður að slíkt fyrirkomulag gengur
ekki upp. Það er út úr kú. Það væri
gaman að vita hver fékk hugmynd-
ina að þessu fyrirkomulagi.“
Guðmundur segir að það sé
áhugaverð þróun í íþróttaheiminum
þar sem verulega sé að draga saman
á milli stóru og litlu liðanna.
„Ég fylgist líka með enska fótbolt-
anum og þar er eiginlega alveg sama
hver spilar við hvern. Það geta eigin-
lega allir unnið alla. Svona finnst
mér þróunin í íþróttaheiminum
vera í dag og það er stórmerkilegt.“
Þið eruð eins og leikskólabörn
Danskir fjölmiðlamenn hafa ekki
tekið Guðmund neinum vettlinga-
tökum og hann hefur fengið drjúgan
skammt af gagnrýni fyrir að koma
liðinu ekki í undanúrslit. Hann var
á stundum ekki sáttur við gagnrýni
sem hann fékk hér heima en segir
það ekkert í líkingu við það sem
gerist í Danmörku.
„Þið íslensku fjölmiðlamennirnir
eruð bara eins og leikskólabörn í
samanburði við danska kollega
ykkar,“ segir Guðmundur og hlær
dátt en er fljótur að verða aftur
alvarlegur. „Þetta er eitt heitasta
starfið í Danmörku, alveg grínlaust.
Það er vegna þess að það er mikið
fjallað um liðið og handbolti er
mjög stór íþrótt í Danmörku. Það
eru um tvær milljónir manna að
horfa á leiki liðsins á stórmótum.
Það hefur gengið vel hjá liðinu í
gegnum tíðina og því eru gerðar
miklar kröfur,“ segir Guðmundur
en hvernig gengur honum að takast
á við þessa pressu?
„Ég held mér hafi gengið
það vel og ég reyni að
vera faglegur. Ég einbeiti
mér að minni vinnu
og les ekki það sem er
verið að skrifa. Ég hef
farið þá leið að velta
mér ekki of mikið
upp úr skrifunum.
Það er vissulega
þjarmað að mér
en þá er mjög
mikilvægt að
vinna alla leik-
ina,“ segir Guð-
mundur léttur
þó málið sé
vissulega ekki
léttvægt. Hann
missti sig aðeins í
viðtali eftir tapið gegn Þýskalandi í
janúar enda svekkelsið mikið.
„Auðvitað verður maður stund-
um pirraður en ég reyni að vera
hreinskiptinn í samskiptum við
fjölmiðla. Ég virði þeirra starf en
svo getur maður deilt um hvaða
línu menn eru að taka. Ég hef
alltaf reynt að svara heiðarlega
og segja hlutina eins og ég sé þá.“
Það var umræða um að það
Eitt heitasta starfið
í Danmörku
Gríðarmikil fjölmiðlaumfjöllun hefur komið Guðmundi Þórði Guðmundssyni
helst á óvart í starfi sínu sem landsliðsþjálfari Danmerkur. Hann segir starfið
vera skemmtilegt en mjög krefjandi. Guðmundur er enn að jafna sig eftir von-
brigðin á EM í Póllandi. Starfið hans er líklega undir í næsta mánuði.
Guðmundur er mjög ástríðufullur þjálfari og tekur virkan þátt í leiknum eins og sjá má. Ekki síst þegar mikið er undir eins og hjá danska landsliðinu. fréttablaðið/GEtty
Henry Birgir
Gunnarsson
henry@frettabladid.is
Þjálfaraferill
Guðmundar
1989-1992 Víkingur
1992-1995 Afturelding
1995-1999 Fram
1999-2001 Bayer Dormagen
2001-2004 Ísland
2005-2007 Fram
2008-2012 Ísland
2009-2010 GOG
2010-2014 Rhein-Neckar Löwen
2014 Danmörk
Ég held að hvergi í
heiminum sé eins
mikill fjölmiðlaáhugi á
landsliði og í Danmörku.
Guðmundur Þórður Guðmundsson
1 7 . m a r s 2 0 1 6 F i m m t U d a G U r42 s p o r t ∙ F r É t t a b l a ð i ð