Fréttablaðið - 17.03.2016, Page 52
Leikhús
enginn hittir einhvern
HHHHH
Black Box – Norræna húsið
Höfundur: Peter Asmussen
Þýðandi: Jón Atli Jónasson
Leikstjóri: Simon Boberg
Leikarar: María Ellingsen og Björn
Ingi Hilmarsson
Hreyfingar: Raisa Foster
Tónlist: Andreas Ljones
Leikmynd: Snorri Freyr Hilmarsson
Lýsing: Björn Bergsteinn
Guðmundsson
Kjallari Norræna hússins hefur
verið endurskipulagður til að hýsa
lítið leikhúsrými. Fyrsta sýningin,
Enginn hittir einhvern eftir danska
leikskáldið Peter Asmussen, var
frumsýnd þar síðastliðinn föstudag.
Nýtt leiksvið eru frábærar fréttir
sem sýnir hversu mikil gróska er í
íslenskum sviðslistum þessa dag-
ana, einnig ber að fagna samnor-
rænni samvinnu. Sýningin markar
líka endurkomu Maríu Ellingsen
og Björns Inga Hilmarssonar á fjal-
irnar eftir nokkurt hlé. Þess væri þó
óskandi að þessi fyrsta sýning Black
Box hefði farið betur.
Leikverkið er eins konar til-
brigði við ástand þar sem mann-
veran og mannleg hegðun er undir
smásjá. Peter Asmussen er hugvits-
samur textasmiður en virðist skauta
framhjá dramatík, hvort sem það er
viljandi eður ei. Jón Atli Jónasson
þýðir leikritið laglega. Handritið er
byggt upp á mismunandi þrenning-
um um ákveðið lykilorð s.s. stefnu-
mót, bið, einvera, svik og endalok.
Óljóst er hvort parið sé ávallt hið
sama, slíkt er reyndar gefið í skyn,
eða mismunandi einstaklingar.
María Ellingsen og Björn Ingi
Hilmarsson eru fínustu leikarar og
gaman er að sjá þau aftur á leiksviði.
Því miður geta þau hvorki dregið
nægilegan styrk úr textanum né
leikstjórninni. Sviðsverur þeirra
berjast við hið mannlega ástand þar
sem súrrealismi hversdagsleikans er
ávallt nærri. Svo viðkvæm samvinna
þarf að vera átakameiri þar sem til-
finningaofsinn er haminn frekar en
slökktur algjörlega.
Þessar áherslur verður að skrifa á
leikstjórann, Simon Boberg. Leikar-
arnir virðast fara með textann frek-
ar en gera hann að sínum í leik. Þessi
stöðuga aftenging gerir sýninguna
kraftlausa og langdregna, þrátt fyrir
að hún sé í styttri kantinum. Sviðs-
hreyfingarnar skapar Raisa Foster
en þrátt fyrir aflíðandi áherslur
verða þær litlausar því oftar sem
tilbrigðin eru endurtekin. Enginn er
skráður fyrir búningunum en þeir
eru samansettir úr gallabuxum og
hvítum skyrtum, að mestu. Allt til
að beina áhorfendum frá sviðsetn-
ingunni og að textanum. Það liggur
við að áhorfendur fengju meira út úr
því að lesa leikritið frekar en að sjá
sýninguna, sem er algjör synd.
Einna skást er lýsingin sem Björn
Bergsteinn Guðmundsson hannar
en hann vinnur sérstaklega vel með
skugga og myrkur. Tónlist Andreas
Ljones er einnig áferðarfögur en líkt
og í sýninguna, þá vantar fleiri til-
brigði í stefin til að hún verði eftir-
minnileg. Leikmynd Snorra Freys
Hilmarssonar er fagurfræðilega skýr
og spennir upp sýninguna að ein-
hverju leyti. Forvitnilegt verður að
sjá hvernig næsta sýning í Black Box
vinnur úr þessu spennandi rými.
Sýningin verður of fyrirsjáanleg
og handritinu er enginn greiði
gerður með spennulítilli leikstjórn.
Andrúmslofið mallar í dramatík
framan af, verður fljótlega of þung-
lamalegt og spennubreytingarnar
eru alltof fáar. Naumhyggja í leik-
húsi getur verið gríðarlega falleg en
verður að skila hlutverki sínu. Í stað
þess að ýta undir sviðsræna drama-
tík þá skerpir Simon frekar á texta
handritsins, slíkt verður hreinlega
of leiðigjarnt til lengdar.
Sigríður Jónsdóttir
Niðurstaða: Veikar dramatískar
áherslur verða sýningunni að falli.
Naumhyggja og nánd
María Ellingsen í hlutverki sínu í Enginn hittir einhvern.
365.is Sími 1817
Allt áhugafólk um hraðskreiða bíla verður á sófabrúninni um
helgina því þá fer fram fyrsti kappakstur ársins í Formúlu 1.
Lewis Hamilton sigraði í fyrra en sá sem oftast hefur komið
fyrstur í mark í Melbourne er enginn annar en Michael
Schumacher. Endurtekur Hamilton leikinn eða klára Rosberg og
Vettel hringina 58 á undan Englendingnum knáa?
UPPHITUNAR-
ÞÁTTUR Í KVÖLD
KL. 22:00 Á
STÖÐ 2 SPORT
KEYRUM FORMÚLUNA Í GANG
FYRSTI KAPPAKSTURINN UM HELGINA
SUNNUDAG klukkan 04:30
17. mars
18. mars
19. mars
20. mars
Upphitunarþáttur
Æfing klukkan
Tímataka
Keppni
Kl. 22:00.
Kl. 3:00.
Kl. 6:00.
Kl. 4:30.
1 7 . m a r s 2 0 1 6 F i m m t u D a G u r52 m e N N i N G ∙ F r É t t a B L a ð i ð