Fréttablaðið - 17.03.2016, Síða 68

Fréttablaðið - 17.03.2016, Síða 68
Hér ber að líta brot af því besta sem fræga fólkið hefur haft fyrir stafni það sem af er vik- unni. Dolce & Gabbana smelltu í nátt fatapartí í verslun sinni við 5. breiðstræti í New York, Gwyneth Paltrow dúndraði sér í sérlegan skvísuhitting í boði The Hollywood Reporter og Jimmy Choo og sjálf Cyndi Lauper blés til blaða- mannafundar vegna nýrrar plötu. Já, álagið er víða. Gwyneth Paltrow bar höfuð og herðar yfir hina partígestina er hún valsaði um í þessum tryllta samfestingi. á ferð og flugi Ofurskutlan Cara Delevingne mætti á Dita’s Crazy Show á Le Crazy Horse í París. Ty Hunter, stílisti sjálfrar Beyoncé, lét sig ekki vanta í náttfata- boð Dolce & Gabbana. Hvers vegna ætti hann svo sem að gera það? Kristen Stewart og franska leikkonan Stephanie Sokolinski, eða SoKo, eru splunkunýtt par sem naut sín í hví- vetna í París á dögunum. Franskir kossar voru ein- mitt í hávegum hafðir. Cyndi Lauper sagði frá væntan- legri plötu, Detour, á blaðamannafundi í Tennessee. Lífleg að vanda. Zoe Kravitz, leikkona og tískuíkon, tjaldaði öllu til fyrir frumsýningu myndarinnar Allegiant í Stóra eplinu á mánudag. Miranda Kerr sér fyrir sér og sínum með því að vera geggjað sæt og pósa á heims- mælikvarða. Eitt- hvað brást henni bogalistin er hún rétti þessa ban- vænu fingur upp og smellti í „peace“. Hún er líklega mannleg eftir allt. Sir Richard Branson sprellaði eins og hann ætti lífið að leysa er flugfélagið hans, Virgin, hóf flug frá San Francisco til Denver á miðvikudaginn. 1 7 . m a r s 2 0 1 6 F I m m T U D a G U rL í F I ð ∙ F r É T T a B L a ð I ð Kíktu á úrvalið í vefversluninni á michelsen.is/fermingar Laugavegi 15 og Kringlunni Sími 511 1900 - www.michelsen.is Casio Retro 11.900 kr. Michelsen Tradition 73.000 kr. Armani Classic 40.200 kr. Jacques Lemans Liverpool 25.700 kr. Fossil Grant 21.100 kr. Fallegar fermingar- gjafir – fyrir stráka Frægir

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.