Fréttablaðið - 17.03.2016, Side 76
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
Vodafone RED
Öll fjölskyldan, eitt verð
Vodafone SMART
Ótakmörkuð símtöl og SMS
8.980 kr.
Innifalið í Vodafone RED er m.a.
1.990 kr.
Ótakmarkaðar
mínútur og SMS
Samnýtt
gagnamagn
500 mínútur
til útlanda
Gagnamagnskort fyrir
öll snjalltækin þín
Ótakmarkaðar
mínútur og SMS
Innifalið
gagnamagn
Fáðu SMART gagnamagn
fyrir aðeins 1.000 kr.
Kynntu þér alla kosti Vodafone RED og SMART
á vodafone.is, í síma 1414 eða í næstu verslun.
4G reiki í 24 löndum
Vodafone
Við tengjum þig
Fersk loðber!
LÖGFRÆÐIAÐSTOÐ
ORATORS
- félag laganema við
Háskóla Ísland
Ég kláraði loksins að horfa á Ófærð um helgina. Mjög skemmtilegt. En reyndar vissi ég hver morð-
inginn var því Facebook spillti því
fyrir mér fyrir svona mánuði síðan.
Ég er ekki reiður. Bara vonsvikinn.
Sá sem spillti þessu fyrir mér meinti
ekkert illt heldur gerði bara ráð fyrir,
eins og hann og hans fjölskylda, að
allir Íslendingar væru að horfa sam-
tímis. Því þannig var það einu sinni.
Allir á sömu síðu. Alls sjónvarpsefnis
var neytt í þeirri línulegu dagskrá sem
ríkisjónvarpið úthlutaði okkur (ég var
aldrei með Stöð 2). Ég hugsa til þeirra
tíma með ljúfsárri fortíðarþrá. Hefðir
eru góðar fyrir sálina. Þegar maður tók
45 mínútur frá á miðvikudagskvöldum
til að horfa á Gilmore Girls. „Nei, Rory,
þú ert of góð fyrir Jess!“ Í þá daga var
hugtakið „spoiler“ varla til.
Nú er öldin önnur. Með upplýsinga-
öldinni komu nýjar leiðir til að stjórna
eigin skjálífi. Nú getur maður, með
hjálp niðurhals, streymisþjónustu og
voddi stjórnað og skammtað sinni
eigin imbakassafíkn. Ég horfði t.d. á
Ófærð í tveimur hámgláps setum.
Hámgláp, einnig þekkt sem raðhorf
eða staraþon (eða binge-watching á
ensku) er þegar maður horfir á marga
þætti í einu af tiltekinni þáttaröð. Mér
finnst mun þægilegra að horfa þann-
ig. Þá get ég afgreitt heilu sápurnar á
einu bretti. En við sem kjósum þessa
glápleið eigum sameiginlegan óvin.
Spillinguna. Alltaf þegar einhver
byrjaði að tala um Ófærð hrópaði ég
„EKKI SEGJA NEITT! EKKI SPILLA.“
Það er asnalegt að þurfa að segja fólki
að halda kjafti bara vegna þess að þú
veist ekki jafn mikið og það um örlög
skáldaðra Austfjarðalögga. En svona er
þetta og við þurfum að aðlagast.
Hvenær er í lagi að spilla? Mín regla
er þessi. Eitt ár fyrir kvikmyndir. Hálft
ár fyrir sjónvarpsþætti. Einn mán-
uður fyrir íslenska sjónvarpsþætti.
Þetta þýðir ekki að þú megir ekki
tjá þig um þætti. Bara ekki segja mér
hver morðinginn er í morðgátum. Úff
hvað mér líður nördalega eftir að hafa
skrifað þetta.
Spilling
Hugleiks
Dagssonar
Bakþankar