Fréttablaðið - 17.03.2016, Page 76

Fréttablaðið - 17.03.2016, Page 76
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja Vodafone RED Öll fjölskyldan, eitt verð Vodafone SMART Ótakmörkuð símtöl og SMS 8.980 kr. Innifalið í Vodafone RED er m.a. 1.990 kr. Ótakmarkaðar mínútur og SMS Samnýtt gagnamagn 500 mínútur til útlanda Gagnamagnskort fyrir öll snjalltækin þín Ótakmarkaðar mínútur og SMS Innifalið gagnamagn Fáðu SMART gagnamagn fyrir aðeins 1.000 kr. Kynntu þér alla kosti Vodafone RED og SMART á vodafone.is, í síma 1414 eða í næstu verslun. 4G reiki í 24 löndum Vodafone Við tengjum þig Fersk loðber! LÖGFRÆÐIAÐSTOÐ ORATORS - félag laganema við Háskóla Ísland Ég kláraði loksins að horfa á Ófærð um helgina. Mjög skemmtilegt. En reyndar vissi ég hver morð- inginn var því Facebook spillti því fyrir mér fyrir svona mánuði síðan. Ég er ekki reiður. Bara vonsvikinn. Sá sem spillti þessu fyrir mér meinti ekkert illt heldur gerði bara ráð fyrir, eins og hann og hans fjölskylda, að allir Íslendingar væru að horfa sam- tímis. Því þannig var það einu sinni. Allir á sömu síðu. Alls sjónvarpsefnis var neytt í þeirri línulegu dagskrá sem ríkisjónvarpið úthlutaði okkur (ég var aldrei með Stöð 2). Ég hugsa til þeirra tíma með ljúfsárri fortíðarþrá. Hefðir eru góðar fyrir sálina. Þegar maður tók 45 mínútur frá á miðvikudagskvöldum til að horfa á Gilmore Girls. „Nei, Rory, þú ert of góð fyrir Jess!“ Í þá daga var hugtakið „spoiler“ varla til. Nú er öldin önnur. Með upplýsinga- öldinni komu nýjar leiðir til að stjórna eigin skjálífi. Nú getur maður, með hjálp niðurhals, streymisþjónustu og voddi stjórnað og skammtað sinni eigin imbakassafíkn. Ég horfði t.d. á Ófærð í tveimur hámgláps setum. Hámgláp, einnig þekkt sem raðhorf eða staraþon (eða binge-watching á ensku) er þegar maður horfir á marga þætti í einu af tiltekinni þáttaröð. Mér finnst mun þægilegra að horfa þann- ig. Þá get ég afgreitt heilu sápurnar á einu bretti. En við sem kjósum þessa glápleið eigum sameiginlegan óvin. Spillinguna. Alltaf þegar einhver byrjaði að tala um Ófærð hrópaði ég „EKKI SEGJA NEITT! EKKI SPILLA.“ Það er asnalegt að þurfa að segja fólki að halda kjafti bara vegna þess að þú veist ekki jafn mikið og það um örlög skáldaðra Austfjarðalögga. En svona er þetta og við þurfum að aðlagast. Hvenær er í lagi að spilla? Mín regla er þessi. Eitt ár fyrir kvikmyndir. Hálft ár fyrir sjónvarpsþætti. Einn mán- uður fyrir íslenska sjónvarpsþætti. Þetta þýðir ekki að þú megir ekki tjá þig um þætti. Bara ekki segja mér hver morðinginn er í morðgátum. Úff hvað mér líður nördalega eftir að hafa skrifað þetta. Spilling Hugleiks Dagssonar Bakþankar

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.