Fréttablaðið - 28.09.2017, Blaðsíða 6
ÖRUGGT START
MEÐ EXIDE RAFGEYMUM
Endingargóðir og sterkbyggðir rafgeymar fyrir flestar gerðir
bifreiða. Veldu þrautreynda vöru frá gæðaframleiðanda.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
73
44
6
Exide fæst í verslun Rekstrarlands, Vatnagörðum 10 og hjá útibúum Olís
um land allt. Sími 515 1100 • pontun@olis.is • olis.is
Fjölmiðlar Forsvarsmenn Ríkis
útvarpsins mátu það svo að það
væri fjárhagslega hagkvæmara fyrir
stofnunina að greiða Guðmundi
Spartakusi Ómarssyni 2,5 millj
ónir króna í miskabætur fremur en
að láta reyna á fréttaflutning sinn
fyrir dómstólum. Að sögn skrif
stofustjóra Ríkisútvarpsins hefur
stofnunin aldrei áður farið þá leið
að greiða fyrir sátt vegna málshöfð
unar.
Guðmundur Spartakus Ómars
son höfðaði meiðyrðamál gegn
Ríkis útvarpinu vegna á þriðja tugs
ummæla sem birtust í fréttum í maí
í fyrra og vörðuðu meinta aðkomu
Guðmundar að fíkniefnaviðskipt
um í Brasilíu og Paragvæ. Fréttir
Ríkisútvarpsins byggðu á umfjöll
un dagblaðsins ABC í Paragvæ og
blaðamanni þess.
Guðmundur krafðist alls 10
milljóna króna í bætur frá Ríkisút
varpinu frá fjórum starfsmönnum
og átti að taka málið fyrir í Héraðs
dómi Reykjavíkur í vikunni.
Á mánudag barst fréttatilkynning
frá Vilhjálmi H. Vilhjálmssyni, lög
manni Guðmundar, þess efnis að
samkomulag hefði náðst um mála
lok. Það fól í sér að Guðmundur félli
frá kröfum sínum en fengi greiddan
málskostnað og miskabætur sem
Vísir upplýsti síðar að næmu 2,5
milljónum króna. Þessi sáttagreiðsla
hefur verið harðlega gagnrýnd,
meðal annars í ljósi þess að fjöl
miðlamaðurinn Sigmundur Ernir
Rúnarsson var nýverið sýknaður í
héraðsdómi af kröfum Guðmundar
vegna fréttaflutnings af sama máli.
Fréttablaðið leitaði skýringa á
því hvers vegna Ríkisútvarpið hefði
ákveðið að semja um greiðslu bóta
í stað þess að láta reyna á málið fyrir
dómstólum og hvort það hefði verið
talið ódýrara fyrir stofnunina.
Margrét Magnúsdóttir, skrifstofu
stjóri Ríkisútvarpsins, segir í skrif
legu svari við fyrirspurn blaðsins að
vissulega byggi ákvörðunin á hags
munamati.
„Almennt séð er það vissulega
svo, og líkt og leiðir af eðli málsins,
að þegar málum er lokið með sam
komulagi, líkt og hér um ræðir, þá
byggir slíkt á hagsmunamati, þ.m.t.
lögfræðilegu og fjárhagslegu.“
Af þessum svari má ráða að for
svarsmenn Ríkisútvarpsins hafi
metið það svo að staða þeirra fyrir
dómi væri hugsanlega veik og því
fjárhagslega hagstæðara að greiða
2,5 milljónir króna til að ljúka
málinu utan dómstóla en að eiga á
hættu að tapa því fyrir dómi og vera
gert að greiða allt að 10 milljónir í
skaðabætur.
Að sögn Margrétar er henni
aðeins kunnugt um að einu sinni
áður hafi Ríkisútvarpið samið um
málalok utan dómstóla, en þar hafi
ekki komið til greiðslu af neinu tagi.
„Þar var fallið frá hvers konar
stefnukröfum á hendur stefndu
málsins, þ.m.t. RÚV, að frumkvæði
stefnenda og í því fólst eins og gefur
að skilja engin greiðsla af neinu
tagi.“ mikael@frettabladid.is
Sáttagreiðsla ódýrari en dómstólaleiðin
Forsvarsmenn Ríkisútvarpsins mátu það svo að staða þeirra fyrir dómi væri veik og hagstæðara væri að greiða Guðmundi Spartakusi
Ómarssyni 2,5 milljónir króna til að losna við meiðyrðamál hans. RÚV hefur ekki áður greitt fyrir að ljúka málum utan dómstóla.
Snekkjusýningin í Mónakó hófst í gær. Það er árleg kaupstefna með nýjustu og flottustu snekkjurnar sem finnast í heiminum. Talið er að verðmæti
þeirra snekkja sem sýndar eru á sýningunni í ár nemi um 4,5 milljörðum evra, eða sem samsvarar um 570 milljörðum króna. frettablaðið/ePa
DÚBaÍ Yfirvöld í Dúbaí, sem er eitt
Sameinuðu arabísku furstadæmanna
þar sem er gnótt olíu, hyggjast nú
hvetja landsmenn til að kaupa raf
bíla. Stefnt er að því að tvö prósent
bílaflotans verði rafknúin árið 2020
og tíu prósent árið 2030.
Rafbílaeigendur fá meðal annars
að sleppa við skráningargjöld, aka án
endurgjalds á þjóðvegum og leggja
frítt á 40 stöðum í borginni Dúbaí.
Auk þess munu þeir geta hlaðið
bílana án endurgjalds á 100 hleðslu
stöðvum til ársloka 2019. Allir sem
byggja nýtt verða auk þess að gera
ráð fyrir aðstöðu til að hlaða rafbíla.
– ibs
Rafbílavæðing
í furstadæmi
Flottustu snekkjur heims í Mónakó
EFnahagsmál Síðustu tólf mánuði
hefur vísitala neysluverðs hækkað
um 1,4 prósent en vísitalan án hús
næðis hefur lækkað um 3,1 prósent.
Það er sérstaklega hækkun hús
næðisverðs og lok útsala sem knúði
verðbólguna áfram í september en
á móti vegur hressileg lækkun flug
fargjalda til útlanda og verðlækkun
á mat og drykkjarvörum.
– jhh
Verðbólgan í
1,4 prósentum
Stefnt er að því að tvö
prósent bílaflotans verði
rafknúin árið 2020.
Þar var fallið frá
hvers konar stefnu-
kröfum á hendur stefndu
málsins, þ.m.t. RÚV, að
frumkvæði
stefnenda.
Margrét
Magnúsdóttir,
skrifstofustjóri
Ríkisútvarpsins ohf.
2 8 . s E p t E m B E r 2 0 1 7 F i m m t U D a g U r6 F r é t t i r ∙ F r é t t a B l a ð i ð