Fréttablaðið - 28.09.2017, Blaðsíða 51
Gallaða góðærið
leikur Martein Kíl, táknmynd hins
þögla ofurfjármagns sem hefur
völd en talar aldrei um það, bara
sýnir í verki. Hann gerir vel og sýnir
styrk sinn í þeim fáu atriðum sem
hann hefur úr að moða. Því miður
eru aðrir leikarar heldur síðri og
í sýningu sem á að undirstrika
sundrung og stéttaskiptingu sam-
félagsins verður heildarleikurinn
að vera betri. Snorri Engilbertsson
og Lára Jóhanna Jónsdóttir eru of
einstrengingsleg sem blaðamenn-
irnir tveir, Snæfríður Ingvarsdóttir
of sakleysisleg til að vera róttækur
kennari og Lilja Nótt Þórarinsdóttir
og Baldur Trausti Hreinsson óeftir-
minnileg.
Leikstjórn Unu er ágæt í smærri
senum en missir marks þegar
heildarmyndin er skoðuð betur.
Persónur færast til og frá á sviðinu
en heimurinn er ekki nægilega vel
byggður, brot á fjórða veggnum
óskýr og hópsenur kaótískar. Um
búninga og sviðsmynd sér Eva
Signý Berger. Velmegun bæjarbúa
endurspeglast í búningunum en
öll hersingin lítur út eins og þau
hafi stokkið ljóslifandi út úr auglýs-
ingaherferð hjá Geysi. Drapplitaði
liturinn verður þó fljótt leiðigjarn.
Sviðsmyndin er betur heppnuð, hún
minnir á allt umlykjandi rafmagns-
staura í heimi þar sem náttúran er
bara upp á punt, eins og hún þurfi
ekki einu sinni að vera alvöru eða
rótföst.
Lýðræðið er fjandi erfitt í fram-
kvæmd þar sem grundvöllur þess er
að allir eiga að hafa rödd, allir hafa
kosningarétt, en engir eru algjörlega
sammála og sumir sjá ekki lengra en
inn í sitt eigið veski. Sýningin Óvin-
ur fólksins smellpassar, þó gölluð sé,
inn í þann pólitíska poll sem Íslend-
ingar þurfa að busla í þessa dagana.
Sigríður Jónsdóttir
Niðurstaða: Frábær frammistaða
Björns Hlyns og Sólveigar nær næstum
því að lyfta sýningunni á hæsta plan.
Margir tónleikagestir felldu tár
Guðrún hreyfði við Katalónunum með söng sínum. Fréttablaðið/anton brinK
felldu tár við að hlusta á þetta
gullfallega lag, sem er eitt af vin-
sælustu íslensku sönglögunum.“
Sinfóníuhljómsveit Barcelona
þykir ein af bestu hljómsveitum
Evrópu. Það var aðalhljómsveitar-
stjóri hennar, Kazushi Ono, sem
stjórnaði henni á tónleikunum
síðasta laugardag, þeir voru liður
í La Mercè, árlegri hausthátíð
í borginni. Reykjavík er gesta-
borg hátíðarinnar í ár og Dagur
B. Eggertsson borgarstjóri var á
staðnum. – gun
Belgíski fiðluskólinn er yfirskrift tónleika
sem Rut Ingólfsdóttir fiðluleikari og Rich-
ard Simm píanóleikari halda í Hlöðunni
að Kvoslæk í Fljótshlíð á laugardaginn, 30.
september, klukkan 15. Þeir eru síðasti við-
burður þessa sumars þar á bæ.
Rut stundaði framhaldsnám við tón-
listarháskólann í Brussel og hún og Richard
ætla að leika verk eftir tónskáldin Vieux-
temps, Wieniawski og Ysaÿe sem allir
kenndu við skólann – en löngu fyrir hennar
tíð. „Ég man að það voru plattar á veggjum
skólans og styttur af þessum mönnum,“
rifjar hún upp.
Eftir hlé ætlar hún að spila sónötu eftir
César Franck sem var belgískur að upp-
runa. „César Franck-sónatan er eitthvað
sem allir fiðluleikarar óska að spila,“ segir
hún. „Það sem er svo skemmtilegt er að
hann gaf tónskáldinu Ysaÿe og konunni
hans þessa sónötu í brúðargjöf. Ysaÿe rétt
æfði hana á brúðkaupsdaginn og spilaði
sjálfur í brúðkaupinu en hinn formlegi
frumflutningur var nokkrum mánuðum
seinna.“
Rut segir þau Richard Simm hafa spilað
þetta allt áður. „En mig langaði að tengja
þessi tónskáld saman núna og tel þau verk
sem við völdum vera skemmtilegt pró-
gramm að bjóða upp á.“ – gun
Síðasti viðburður sumarsins að Kvoslæk
richard Simm og rut ingólfsdóttir hafa spilað öll verkin áður,
þó ekki á sömu tónleikum.
m e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ðN N N r t t a a 35F i m m t u D a g u r 2 8 . s e p t e m B e r 2 0 1 7