Fréttablaðið - 28.09.2017, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 28.09.2017, Blaðsíða 48
Full búð af nýjum vörum! Verið velkomin í Verslun Guðsteins, Laugavegi 34 Síðan 1918 Kapella og kjallari St. Jósefs-spítala í Hafnarfirði, þar sem áður var beðist fyrir og lík voru lögð til, er nú vettvangur vídeólistar Sigurðar Guðjónssonar myndlistarmanns. Innljós nefnist sýningin hans sem samanstendur af þremur verkum, einu í kapellunni og tveimur niðri í kjallara. „Þetta byrjaði með því að Lista- safn ASÍ tók ákvörðun um að setja upp sýningar í ýmsum bæjum og Hafnarfjörður varð fyrst fyrir val- inu. Við Elísabet Gunnarsdóttir, forstöðumaður safnsins, fórum í vettvangsferðir að skoða húsnæði og fannst kapellan strax hentugur staður fyrir það sem við ætluðum að gera,“ segir Sigurður og kveðst nýta aðstæðurnar á vissan hátt, til dæmis gólfið í kapellunni fyrir myndvörpun. „Áhorfandinn getur gengið kringum verkið og upplifað það eins og skúlptúr. Líka farið upp á svalir og horft yfir. Öllum verkun- um fylgja hljóð sem unnin eru út frá myndefninu og hljóm- burðurinn er mjög góður á staðnum þannig að rétta andrúmsloftið skapast í kapellunni.“ Spurður hvað hann sé að segja með sýningunni svarar Sigurður: „Það er undir hverjum og einum komið að skynja og sjá sitt út úr verkunum en hreyfing og tímaele- mentið eru l yk i l a t r i ð i . Ég er ekki að vinna með nein ákveðin skilaboð heldur snýst sýningin um marglaga upplifun og heildarvirkni. Því er betra að hafa góðan tíma til að fara á milli verk- anna og dvelja við þau.“ St. Jósefsspítali er við Suður- götu 41 í Hafnarfirði. Sýning- in Innljós er opin þar mið- vikudaga til sunnudaga frá 12 til 17 fram í miðjan október og opnuð fyrir hópa utan reglu- legs opnunartíma. gun@frettabladid.is Rétta andrúmsloftið skapast í kapellunni Hægt er að ganga kringum verkið á gólfinu og líka njóta þess ofan af svölum. Mynd/Vigfús Birgisson sigurður hefur meðal annars sýnt í Berlín, new york, Lundún- um, Peking og seúl. Mynd/Vig- fús Birgisson Þetta er sagnfræðisöng-leikur eftir dúettinn Hund í óskilum, þá Eirík Stephensen og Hjörleif Hjartarson. Drepfyndinn að sjálf- sögðu því þeir eru snillingar í að lesa tíðarandann og tala beint til þjóðar- sálarinnar,“ segir Ágústa Skúladóttir leikstjóri um sýninguna Kvenfólk sem Leikfélag Akureyrar frumsýnir annað kvöld í Samkomuhúsinu. Ágústa kveðst afskaplega stolt af því að hafa verið valin til vera hlýðniþjálfari þeirra Eiríks og Hjörleifs á sviðinu. „Það er sko bara gaman,“ segir hún sannfærandi. „Það er líka dásamlegt að tveir miðaldra karlmenn hafi fundið hjá sér þörf til að koma sögu kvenna og kvennabaráttu til skila. Hún var vanrækt öldum saman og það urðu þeir félagar illilega varir við þegar þeir unnu að Sögu þjóðar sem fékk Grímuverðlaun á sínum tíma. Nú velta þeir við hverjum steini og grafa upp ýmislegt óvænt og skemmtilegt í sögu jafnréttisbaráttunnar.“ Sýningin Kvenfólk er hárbeitt ádeila að sögn Ágústu. „Þar eru slegin kjaftshögg og valdir margir mikilvægir punktar í sögunni enda kemur drifkraftur höfundanna frá þeirri sannfæringu að femínism- inn sé þýðingarmesta hugmynd og félagslega hreyfing sem komið hefur fram á síðustu öldum. Þess vegna er sýningin áríðandi skila- boð til fólks í dag því eins og segir á Vísindavefnum er femínisti karl eða kona sem veit að jafnrétti kynjanna hefur ekki verið náð og vill gera eitthvað í því. Þeim kyndli þarf að halda á lofti og það gera Hjörleifur og Eiríkur með sínum einstaka frá- sagnarhætti í tali og tónum.“ gun@frettabladid.is Drepfyndin sagnfræði með ádeilu og söngvum Hjörleifur og Eiríkur kunna manna best að bregða nýju ljósi á söguna. Mynd/Auðunn níELsson Ágústa segir það heiður að vera hlýðniþjálfari Hunds í óskilum. fréttABLAðið/Anton Brink Í sýningunni Kvenfólk sem frumsýnd verður í Samkomuhúsinu á Akureyri á morgun fara félagarnir Hjörleifur Hjartarson og Eiríkur Stephensen á hunda- vaði yfir kvennasöguna á tveimur tímum – með húmorinn að vopni. Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is 2 8 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 F I m m t U D A G U r32 m e n n I n G ∙ F r É t t A b L A ð I ð menning
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.