Fréttablaðið - 28.09.2017, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 28.09.2017, Blaðsíða 58
 Heilsan okkar Hvers vegna þurfum við að sofa? Niðurstaða: Svefn þjónar mikilvægu hlutverki við vöxt, endurnýjun líffæra og er jafn­ framt nauðsynlegur til þess að við getum fest nýjan lærdóm í minni. Edda Björk Þórðardóttir doktor í lýðheilsu- vísindum svarar heilsuspurning- um lesenda. Í gegnum tíðina héldu menn að svefn væri til þess að slökkva á heilastarfseminni. Nú vitum við að heilinn er mjög virkur í svefni og svefn er afar mikilvæg- ur heilsu. Samt hættir okkur til að fórna svefninum fyrir eitthvað minna mikilvægt. S v e f n e r áhugavert fyr- irbæri. Salva- dor Dali var með þráhyggju fyrir sköpunar- mætti svefns sem sést berlega í draumkenndum verkum hans og Richard Wagner var þekktur fyrir að nota svefn til að fá hugmyndir að óperum. Aðrir hafa keppst við að slá heimsmet í vöku. Peter Tripp sturlaðist eftir að hafa vakað í átta daga árið 1959 en betur fór fyrir Randy Garner sem árið 1967 var vakandi í ell- efu daga. Á meðan keppnin stóð yfir sýndu þeir einkenni svefn- skorts á háu stigi: athyglisbrest, einbeitingarleysi, minnisleysi, rugl, ofskynjanir og skapgerðar- breytingar. Þessi einkenni ganga oftast til baka en langvarandi svefntruflun hefur verið tengd fjölda sjúk- dóma, andlegra og líkamlegra. Við framleiðum mest af vaxtar- hormónum í djúpsvefni en þau eru ekki einungis mikilvæg börn- um sem eru að vaxa heldur einn- ig fullorðnum því þau m.a. styrkja beinin, hjálpa til við endurnýjun líffæra og styrkja ónæmiskerfið. Dýr sem eru svipt svefni deyja á endanum úr fjöllíffærabilun. Síðan er draumsvefn mikilvægur fyrir minnið því án hans getum við ekki lært nýja hluti. Það er því gott að hafa nætur- svefninn ofarlega á forgangslist- anum og njóta þess að vakna vel úthvíldur á meðan maður getur því hæfileikinn til að sofa minnk- ar oft eftir því sem líður á ævina. Til viðmiðunar þurfum við fullorðna fólkið flest að sofa 7-8 tíma, unglingar 9-10 tíma og yngri skólabörn 11-12 tíma. Sofðu vel! Lesendum er bent á að senda sérfræðingum okkar spurningar tengdar heilsu og lífsstíl á heilsanokkar@frettabladid.is. langvarandi svEfntruflun HEfur vErið tEngd fjölda sjúkdóma, andlEgra og líkamlEgra. Járn & Gler hf. • Skútuvogur 1h. Barkarvogsmegin 104 Reykjavík • S. 58 58 900 • www.jarngler.is Bjóðum upp á sjálfvirkan hurðaopnunarbúnað, hringhurðir, hurðir og gluggakerfi ásamt uppsetningu og viðhaldi á búnaði. Áratuga reynsla. Blekhylki.is, S. 517 0150 – 2. hæð Smáralind Ódýr blekhylki og tónerar! Við munum skoða stórkostleg-an mátt matarins,“ segir Vala Matt spurð út í hvað hún muni bjóða upp á í innslagi sínu í Íslandi í dag í kvöld. „Sjúkraþjálfar- inn og bókahöfundurinn Lukka Pálsdóttir í Happi mun segja okkur í kvöld frá því hvernig við getum á mjög auðveldan hátt haldið okkur í kjörþyngd. Og svo kennir hún okkur að búa til dásamlegan súkkulaði- tedrykk sem hefur ótrúlega róandi áhrif. Einnig skoðum við hvernig má nota mat á ýmsan óvenjulegan máta. Albert Eiríksson og Bergþór Pálsson sýna okkur hvernig hægt er að búa til besta svitalyktareyði í heimi með matarsóda og sjón- varpskokkurinn flotti Ebba Guðný Guðmundsdóttir sýnir okkur til dæmis hvernig við getum hvíttað tennurnar á ansi óvenjulegan en náttúrulegan hátt,“ segir Vala. – gha Besti svitalyktareyðir í heimi úr matarsóda Bergþór Pálsson og albert Eiríksson búa til eigin svitalyktareyði út matarsóda. Matarsódi nýtist í fleira en bakstur. í kvöld vErður máttur matarins skoðaður í ís- landi í dag. Ég Er EinstaklEga spEnnt fyrir tom of finland, myndin Er Byggð á sönnum atBurðum. Tatiana Ósk Hallgrímsdóttir 1. tom of finland „Ég er einstaklega spennt fyrir Tom of Finland, myndin er byggð á sönnum atburðum og fjallar um lífs­ hlaup finnska listamannsins Touko Laaksonen sem hlaut alþjóðlega frægð fyrir hómóerótískar teikning­ ar sínar. Myndin er formlegt framlag Finnlands til Óskarsverðlauna,“ segir Tatiana. átta spennandi kvikmyndir á dagskrá riff Hátíðin RIFF hefst í dag og andrea Eyland og tatiana ósk Hallgrímsdóttir, sem sjá um kynningarmál fyrir hátíðina, settu af því tilefni saman lista yfir spennandi myndir. Það er ýmislegt sem þær tatiana og andrea ætla að sjá á riFF. FrÉttaBLaðið/EYÞÓr 2. faces places Andrea er spenntust fyrir Faces Places. „Klárlega sú sem ég get ekki beðið eftir að sjá. Agnés Varda, eldri kona, og JR, ungur maður, ferðast saman, taka myndir og úr verður þessi snilld.“ 3. Borg vs. mcEnroe „Sannsöguleg mynd um tennis­ spilarann Björn Borg og lokamynd RIFF í ár. Hún gerist árið 1980,“ segir Tatiana, sem er hrifin af myndum sem eiga að gerast á níunda ára­ tugnum. 4. Winther Brothers „Mér finnst Hlynur Pálma töff og þessi mynd ótrúlega spennandi, ég elska allt sem er danskt,“ segir Andrea. 5. la Chana „Heimildarmynd sem fagnar lífi hinnar sjálflærðu La Chana, flam­ enco dansara sem hlaut heims­ frægð á sjötta áratugnum og hvarf síðan skyndilega úr almannaaugsýn á hátindi ferilsins,“ segir Tatiana. 6. atelier Spennutryllirinn Atelier nær á lista Tatiönu. „Þessi er í leikstjórn Elsu Maríu Jakobsdóttur. Elsa er nýlega útskrifuð úr Danska kvikmyndaskól­ anum og er Atelier útskriftarmynd hennar. Ég hef séð stiklu myndar­ innar og hún lofar góðu.“ 7. mamma ætlar að sofna „Mynd Völu Ómarsdóttur um móður sem reynir að vernda dætur sínar en tekst ekki, ég hreinlega tengi,“ segir Andrea. 8. fitzcarraldo „Heimildarmynd frá sjálfum Werner Herzog, ég hef ekki séð þessa en er mjög spennt fyrir henni. Sagan er um mann sem er ákveður að byggja óperuhús inni í miðjum frumskóg­ inum,“ útsýrir Tatiana. 2 8 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 F I m m t U D A G U r42 l í F I ð ∙ F r É t t A b l A ð I ð Lífið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.