Fréttablaðið - 28.09.2017, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 28.09.2017, Blaðsíða 52
2 8 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 F I m m t U D A G U r36 m e n n I n G ∙ F r É t t A b L A ð I ð Bíó KvIKmynDIr Kingsman: the Golden Circle HHHHH Leikstjóri: Matthew Vaughn Framleiðendur: Matthew Vaughn, David Reid Handrit: Matthew Vaughn, Jane Goldman Aðalhlutverk: Taron Egerton, Colin Firth, Julianne Moore, Pedro Pascal „Meira þýðir meira“ er hugarfar sem ríkir í flestum stórum framhalds- myndum. Það er heldur ekkert auð- velt verk að útbúa framhald sem gefur áhorfendum vænan skammt af því sem þeir kunnu að meta í síðustu umferð, en þá án þess að endurgera gömlu formúluna, og bjóða upp á eitthvað nýtt og spennandi á sama tíma. Venjulega er skammturinn af öllu einfaldlega tvöfaldaður og vonast til þess að afraksturinn verði helmingi skemmtilegri. Fyrri Kingsman-myndin kom ljómandi skemmtilega á óvart; hún var hnyttin, skörp og hressandi smekkleysa en ekki laus við sál eða ferskleika. Leikstjóranum tókst afbragðs vel að taka nýstárlegan snúning á gömlu Bond-uppskrift- irnar (sérstaklega ef um er að ræða myndirnar frá Roger Moore-tíma- bilinu) og gekk myndin bæði upp sem skopstæling og hylling slíkra. Leikstjórinn náði í kaupbæti að framkvæma hið ómögulega, með því að sýna að Colin Firth, herra Darcy sjálfur, gæti verið eitursvöl hasar- hetja með meiru. Forverinn var ósköp áreynslu- laus en töluvert meiri rembingur er í framhaldinu. Kingsman: The Golden Circle fellur strax í þá gryfju að vera ofhlaðin og virðist sem öllu hafi verið tjaldað til með því hugarfari að toppa fyrri myndina. Það tekst eitthvað brösuglega og þegar upp er staðið er óskaplega lítið sem slær út hápunkta síðustu lotu. Auk þess er The Golden Circle alltof löng, alltof heimskuleg, sund- urlaus, bjánaleg á tíðum og stöku sinnum pínlega ófyndin, en á sinn ósmekklega máta er eitthvað sak- laust skemmtanagildi að finna innan um alla sýnimennskuna. Hér er það mestmegnis eðalhópi leikara að þakka og er allt útlit fyrir að helstu leikendur hafi skemmt sér konung- lega, og þegar kátínan smitast svona út fyrir bíótjaldið er erfitt að taka ekki þátt. Um Kingsman: The Golden Circle má svo sannarlega segja margt, en leiðinleg er myndin svo sannarlega ekki. Taron Egerton sannar sig áfram sem hörkutraustur í aðalhlutverkinu sem ofurnjósnar- inn Eggsy, sem hefur þroskast mikið frá því að hann var vandræðageml- ingur úr fátækrahverfi. Nú er hann orðinn formlegur arf- taki njósnarans Gala- hads (Firths), sem lést í fyrri kaflanum, og nú taka við nýjar áskoranir. Í upphafi sögunnar kemur í ljós að athyglissjúkur eiturlyfjabarón vill útrýma Kingsman- leyniþjónustunni eins og hún leggur sig, en það er aðeins fyrsta skrefið í áformunum um að valda usla á heims- vísu, verði ekki tekið upp á því að lögleiða eiturlyf hið snarasta. E f t i r l i f a n d i meðlimir leyniþjónustunnar og bandarískir „frændur“ þeirra, nefndir Statesmen, verða að snúa bökum saman. Eins og þetta sé ekki allt nægur hausverkur fyrir Eggsy þarf hann líka að gæta að því að sam- bandið við kærustuna hrynji ekki í sundur og um leið reyna að glíma við endurlífgaðan, minnislausan læri- föður sinn. Um leið og áhorfandinn kemst yfir þá aulalegu ákvörðun handritshöf- unda að endurlífga Firth – og hvernig því var háttað – fylgir manninum fjörug og hugguleg nærvera sem hefur miklu við heildina að bæta. Hanna Alström er sömuleiðis pínu heillandi sem Tilde, erfðaprinsessa Svíþjóðar sem gaf Eggsy hjarta sitt (jú, jú, segjum það) undir lok fyrstu myndarinnar og er nú orðin að kærustu hans. Þetta er krúttlegt samband sem gefur myndinni bæði meiri hlýju og eykur klisjuskammtinn óþarflega, en hvorki sambandið né hlýjan virðast smella við mynd sem er nú þegar úttroðin af bitlausum og áttavilltum söguþræði. Það er óneitanlega galli við báðar Kingsman-myndirnar að höfundar virðast lítið vita hvað á að gera við kvenpersónurnar og þetta stig- magnast í framhaldinu. Julianne Moore er undantekning og er hrein dásemd að fylgjast með henni í hlut- verki minnisstæðs skúrks. Því miður fær leikkonan samt ekki nóg að gera og sérstaklega í seinni hluta fram- vindunnar. En Moore leikur sér að persónu sinni af mikilli list og finnur leið til þess að gera snarbilaða skúrk- inn furðulega lokkandi. Svo er það Jeff Bridges, mót- leikari Moore úr The Big Lebowski (og reyndar líka viðbjóðnum The Seventh Son), en hann lætur vel um sig fara en gerir sama og ekkert (en þó meira en aðrir gæðaleik- arar á borð við Michael Gambon og Emily Watson, sem eru einungis til skrauts). Channing Tatum dúkkar upp í upp- stækkuðu gesta- hlutverki en er síðan settur á ís þangað til kemur að næsta framhaldi – vænti ég. Halle Berry gerir heldur ekki nóg við sinn tíma, sem er fúlt því hún er einn besti karakterinn og skondin hliðstæða við persónu Marks Strong. Ef Firth var senuþjófur fyrri mynd- arinnar þá er það Strong sem eignar sér þessa og lætur hæst í honum. Narcos-leikarinn Pedro Pascal kemur einnig ágætlega út sem Kanakúrekinn Whiskey. Aðkoma söngvarans Eltons John er síðan væg- ast sagt kostuleg. Brandarinn þynn- ist fljótt út en hversu langt er gengið með hann er eiginlega bara fullsúrt til að glotta ekki yfir. Satt að segja kemur mest á óvart að hann gegni stærra hlutverki í söguþræðinum en Tatum og Bridges. Leikstjóranum Matthew Vaughn tekst yfirleitt vel að halda jafnvægi á milli hasars og persóna. Hann tekur hvoruga Kingsman-myndina alvar- lega hvað tóninn varðar en virðist samt gera það þegar kemur að dýna- mík og samböndum persóna, sem er jákvætt. Vaughn hefur hins vegar aðeins of marga bolta á lofti með The Golden Circle og er himinn og haf á milli gæða handrita myndanna og samfélagsádeilan í seinni myndinni er merkilega aum. En litríkur og hug- myndaríkur hasar ásamt sæmilega stemmdri smekkleysu sér annars um að tryggja það að glápið sé rétt svo þess virði. Tómas Valgeirsson nIðUrstAðA: Kingsman-framhaldið stendur forvera sínum nokkuð langt að baki en er ágætis afþreying ef ekki eru gerðar of miklar kröfur. Sjentilmenni og sýnimennska Colin Firth fer með hlutverk Harrys Hart, sem einnig er þekktur sem Galahad. FréTTAbLAðið/EPA Rauðagerði 25 - 108 Reykjavík Sími: 517 0900 / 777 1901 www.kaelivirkni.is VIÐHALD OG VIÐGERÐIR Á KÆLI- OG FRYSTIKERFUM VIÐ SJÁUM UM Nýjar vörur frá Útsöluaðilar: Útilíf – Kringlunni – Smáralind • Sportver Akureyri • Toppmenn & Sport Akureyri K Sport Keflavík • Nína Akranesi • Sportbær Selfossi • Axel Ó Vestmannaeyjum Dreifingaraðili: DanSport ehf. Hægt að sjá vörur á dansport.is www.nordanfiskur.is | 430-1700 | pantanir@nordanfiskur.is Yfir 300 vörutegundir fyrir veitingastaði, mötuneyti og fyrir þig !
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.