Fréttablaðið - 28.09.2017, Blaðsíða 52
2 8 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 F I m m t U D A G U r36 m e n n I n G ∙ F r É t t A b L A ð I ð
Bíó
KvIKmynDIr
Kingsman: the Golden Circle
HHHHH
Leikstjóri: Matthew Vaughn
Framleiðendur: Matthew Vaughn,
David Reid
Handrit: Matthew Vaughn, Jane
Goldman
Aðalhlutverk: Taron Egerton, Colin
Firth, Julianne Moore, Pedro Pascal
„Meira þýðir meira“ er hugarfar sem
ríkir í flestum stórum framhalds-
myndum. Það er heldur ekkert auð-
velt verk að útbúa framhald sem
gefur áhorfendum vænan skammt af
því sem þeir kunnu að meta í síðustu
umferð, en þá án þess að endurgera
gömlu formúluna, og bjóða upp á
eitthvað nýtt og spennandi á sama
tíma. Venjulega er skammturinn
af öllu einfaldlega tvöfaldaður og
vonast til þess að afraksturinn verði
helmingi skemmtilegri.
Fyrri Kingsman-myndin kom
ljómandi skemmtilega á óvart; hún
var hnyttin, skörp og hressandi
smekkleysa en ekki laus við sál eða
ferskleika. Leikstjóranum tókst
afbragðs vel að taka nýstárlegan
snúning á gömlu Bond-uppskrift-
irnar (sérstaklega ef um er að ræða
myndirnar frá Roger Moore-tíma-
bilinu) og gekk myndin bæði upp
sem skopstæling og hylling slíkra.
Leikstjórinn náði í kaupbæti að
framkvæma hið ómögulega, með því
að sýna að Colin Firth, herra Darcy
sjálfur, gæti verið eitursvöl hasar-
hetja með meiru.
Forverinn var ósköp áreynslu-
laus en töluvert meiri rembingur er í
framhaldinu. Kingsman: The Golden
Circle fellur strax í þá gryfju að vera
ofhlaðin og virðist sem öllu hafi verið
tjaldað til með því hugarfari að toppa
fyrri myndina. Það tekst eitthvað
brösuglega og þegar upp er staðið er
óskaplega lítið sem slær út hápunkta
síðustu lotu.
Auk þess er The Golden Circle
alltof löng, alltof heimskuleg, sund-
urlaus, bjánaleg á tíðum og stöku
sinnum pínlega ófyndin, en á sinn
ósmekklega máta er eitthvað sak-
laust skemmtanagildi að finna innan
um alla sýnimennskuna. Hér er það
mestmegnis eðalhópi leikara að
þakka og er allt útlit fyrir að helstu
leikendur hafi skemmt sér konung-
lega, og þegar kátínan smitast
svona út fyrir bíótjaldið er erfitt að
taka ekki þátt. Um Kingsman: The
Golden Circle má svo sannarlega
segja margt, en leiðinleg er myndin
svo sannarlega ekki. Taron Egerton
sannar sig áfram sem hörkutraustur
í aðalhlutverkinu sem ofurnjósnar-
inn Eggsy, sem hefur þroskast mikið
frá því að hann var vandræðageml-
ingur úr fátækrahverfi. Nú er hann
orðinn formlegur arf-
taki njósnarans Gala-
hads (Firths), sem
lést í fyrri kaflanum,
og nú taka við nýjar
áskoranir. Í upphafi
sögunnar kemur í
ljós að athyglissjúkur
eiturlyfjabarón vill
útrýma Kingsman-
leyniþjónustunni
eins og hún leggur
sig, en það er aðeins
fyrsta skrefið í
áformunum um að
valda usla á heims-
vísu, verði ekki
tekið upp á því að
lögleiða eiturlyf
hið snarasta.
E f t i r l i f a n d i
meðlimir leyniþjónustunnar og
bandarískir „frændur“ þeirra, nefndir
Statesmen, verða að snúa bökum
saman. Eins og þetta sé ekki allt
nægur hausverkur fyrir Eggsy þarf
hann líka að gæta að því að sam-
bandið við kærustuna hrynji ekki í
sundur og um leið reyna að glíma við
endurlífgaðan, minnislausan læri-
föður sinn.
Um leið og áhorfandinn kemst yfir
þá aulalegu ákvörðun handritshöf-
unda að endurlífga Firth – og hvernig
því var háttað – fylgir manninum
fjörug og hugguleg nærvera sem hefur
miklu við heildina að bæta. Hanna
Alström er sömuleiðis pínu heillandi
sem Tilde, erfðaprinsessa Svíþjóðar
sem gaf Eggsy hjarta sitt (jú, jú, segjum
það) undir lok fyrstu myndarinnar
og er nú orðin að kærustu hans.
Þetta er krúttlegt samband sem gefur
myndinni bæði meiri hlýju og eykur
klisjuskammtinn óþarflega, en hvorki
sambandið né hlýjan virðast smella
við mynd sem er nú þegar úttroðin af
bitlausum og áttavilltum söguþræði.
Það er óneitanlega galli við báðar
Kingsman-myndirnar að höfundar
virðast lítið vita hvað á að gera við
kvenpersónurnar og þetta stig-
magnast í framhaldinu. Julianne
Moore er undantekning og er hrein
dásemd að fylgjast með henni í hlut-
verki minnisstæðs skúrks. Því miður
fær leikkonan samt ekki nóg að gera
og sérstaklega í seinni hluta fram-
vindunnar. En Moore leikur sér að
persónu sinni af mikilli list og finnur
leið til þess að gera snarbilaða skúrk-
inn furðulega lokkandi.
Svo er það Jeff Bridges, mót-
leikari Moore úr The Big Lebowski
(og reyndar líka viðbjóðnum The
Seventh Son), en hann lætur vel
um sig fara en gerir sama og ekkert
(en þó meira en
aðrir gæðaleik-
arar á borð við
Michael Gambon
og Emily Watson,
sem eru einungis
til skrauts).
Channing Tatum
dúkkar upp í upp-
stækkuðu gesta-
hlutverki en er síðan
settur á ís þangað
til kemur að næsta
framhaldi – vænti ég.
Halle Berry gerir
heldur ekki nóg við
sinn tíma, sem er
fúlt því hún er einn
besti karakterinn og
skondin hliðstæða við
persónu Marks Strong.
Ef Firth var senuþjófur fyrri mynd-
arinnar þá er það Strong sem eignar
sér þessa og lætur hæst í honum.
Narcos-leikarinn Pedro Pascal
kemur einnig ágætlega út sem
Kanakúrekinn Whiskey. Aðkoma
söngvarans Eltons John er síðan væg-
ast sagt kostuleg. Brandarinn þynn-
ist fljótt út en hversu langt er gengið
með hann er eiginlega bara fullsúrt
til að glotta ekki yfir. Satt að segja
kemur mest á óvart að hann gegni
stærra hlutverki í söguþræðinum en
Tatum og Bridges.
Leikstjóranum Matthew Vaughn
tekst yfirleitt vel að halda jafnvægi á
milli hasars og persóna. Hann tekur
hvoruga Kingsman-myndina alvar-
lega hvað tóninn varðar en virðist
samt gera það þegar kemur að dýna-
mík og samböndum persóna, sem
er jákvætt. Vaughn hefur hins vegar
aðeins of marga bolta á lofti með The
Golden Circle og er himinn og haf á
milli gæða handrita myndanna og
samfélagsádeilan í seinni myndinni
er merkilega aum. En litríkur og hug-
myndaríkur hasar ásamt sæmilega
stemmdri smekkleysu sér annars
um að tryggja það að glápið sé rétt
svo þess virði.
Tómas Valgeirsson
nIðUrstAðA: Kingsman-framhaldið
stendur forvera sínum nokkuð langt
að baki en er ágætis afþreying ef ekki
eru gerðar of miklar kröfur.
Sjentilmenni og sýnimennska
Colin Firth fer með hlutverk Harrys Hart, sem einnig er þekktur sem Galahad. FréTTAbLAðið/EPA
Rauðagerði 25 - 108 Reykjavík
Sími: 517 0900 / 777 1901
www.kaelivirkni.is
VIÐHALD OG VIÐGERÐIR
Á KÆLI- OG FRYSTIKERFUM
VIÐ
SJÁUM
UM
Nýjar vörur frá
Útsöluaðilar:
Útilíf – Kringlunni – Smáralind • Sportver Akureyri • Toppmenn & Sport Akureyri
K Sport Keflavík • Nína Akranesi • Sportbær Selfossi • Axel Ó Vestmannaeyjum
Dreifingaraðili: DanSport ehf. Hægt að sjá vörur á dansport.is
www.nordanfiskur.is | 430-1700 | pantanir@nordanfiskur.is
Yfir 300 vörutegundir
fyrir veitingastaði,
mötuneyti og fyrir þig !