Fréttablaðið - 28.09.2017, Síða 48
Full búð af
nýjum vörum!
Verið velkomin í Verslun Guðsteins, Laugavegi 34
Síðan 1918
Kapella og kjallari St. Jósefs-spítala í Hafnarfirði, þar sem áður var beðist fyrir og
lík voru lögð til, er nú vettvangur
vídeólistar Sigurðar Guðjónssonar
myndlistarmanns. Innljós nefnist
sýningin hans sem samanstendur af
þremur verkum, einu í kapellunni
og tveimur niðri í kjallara.
„Þetta byrjaði með því að Lista-
safn ASÍ tók ákvörðun um að setja
upp sýningar í ýmsum bæjum og
Hafnarfjörður varð fyrst fyrir val-
inu. Við Elísabet Gunnarsdóttir,
forstöðumaður safnsins, fórum í
vettvangsferðir að skoða húsnæði
og fannst kapellan strax hentugur
staður fyrir það sem við ætluðum
að gera,“ segir Sigurður og kveðst
nýta aðstæðurnar á vissan hátt,
til dæmis gólfið í kapellunni fyrir
myndvörpun. „Áhorfandinn getur
gengið kringum verkið og upplifað
það eins og skúlptúr. Líka farið upp
á svalir og horft yfir. Öllum verkun-
um fylgja hljóð sem unnin eru
út frá myndefninu og hljóm-
burðurinn er mjög góður á
staðnum þannig að rétta
andrúmsloftið skapast í
kapellunni.“
Spurður hvað hann sé
að segja með sýningunni
svarar Sigurður: „Það er
undir hverjum og einum
komið að skynja
og sjá sitt út
úr verkunum
en hreyfing
og tímaele-
mentið eru
l yk i l a t r i ð i .
Ég er ekki að
vinna með
nein ákveðin skilaboð heldur snýst
sýningin um marglaga upplifun og
heildarvirkni. Því er betra að hafa
góðan tíma til að fara á milli verk-
anna og dvelja við þau.“
St. Jósefsspítali er við Suður-
götu 41 í Hafnarfirði. Sýning-
in Innljós er opin þar mið-
vikudaga til sunnudaga frá 12
til 17 fram í miðjan október og
opnuð fyrir hópa utan reglu-
legs opnunartíma.
gun@frettabladid.is
Rétta andrúmsloftið skapast í kapellunni
Hægt er að ganga kringum verkið á gólfinu og líka njóta þess ofan af svölum. Mynd/Vigfús Birgisson
sigurður hefur
meðal annars
sýnt í Berlín, new
york, Lundún-
um, Peking og
seúl. Mynd/Vig-
fús Birgisson
Þetta er sagnfræðisöng-leikur eftir dúettinn Hund í óskilum, þá Eirík Stephensen og Hjörleif Hjartarson. Drepfyndinn að sjálf-
sögðu því þeir eru snillingar í að lesa
tíðarandann og tala beint til þjóðar-
sálarinnar,“ segir Ágústa Skúladóttir
leikstjóri um sýninguna Kvenfólk
sem Leikfélag Akureyrar frumsýnir
annað kvöld í Samkomuhúsinu.
Ágústa kveðst afskaplega stolt
af því að hafa verið valin til vera
hlýðniþjálfari þeirra Eiríks og
Hjörleifs á sviðinu. „Það er sko bara
gaman,“ segir hún sannfærandi.
„Það er líka dásamlegt að tveir
miðaldra karlmenn hafi fundið hjá
sér þörf til að koma sögu kvenna
og kvennabaráttu til skila. Hún var
vanrækt öldum saman og það urðu
þeir félagar illilega varir við þegar
þeir unnu að Sögu þjóðar sem fékk
Grímuverðlaun á sínum tíma. Nú
velta þeir við hverjum steini og grafa
upp ýmislegt óvænt og skemmtilegt
í sögu jafnréttisbaráttunnar.“
Sýningin Kvenfólk er hárbeitt
ádeila að sögn Ágústu. „Þar eru
slegin kjaftshögg og valdir margir
mikilvægir punktar í sögunni enda
kemur drifkraftur höfundanna frá
þeirri sannfæringu að femínism-
inn sé þýðingarmesta hugmynd
og félagslega hreyfing sem komið
hefur fram á síðustu öldum. Þess
vegna er sýningin áríðandi skila-
boð til fólks í dag því eins og segir á
Vísindavefnum er femínisti karl eða
kona sem veit að jafnrétti kynjanna
hefur ekki verið náð og vill gera
eitthvað í því. Þeim kyndli þarf að
halda á lofti og það gera Hjörleifur
og Eiríkur með sínum einstaka frá-
sagnarhætti í tali og tónum.“
gun@frettabladid.is
Drepfyndin sagnfræði með ádeilu og söngvum
Hjörleifur og Eiríkur kunna manna best að bregða nýju ljósi á söguna. Mynd/Auðunn níELsson
Ágústa segir það heiður að vera
hlýðniþjálfari Hunds í óskilum.
fréttABLAðið/Anton Brink
Í sýningunni Kvenfólk
sem frumsýnd verður
í Samkomuhúsinu á
Akureyri á morgun fara
félagarnir Hjörleifur
Hjartarson og Eiríkur
Stephensen á hunda-
vaði yfir kvennasöguna
á tveimur tímum – með
húmorinn að vopni.
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
2 8 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 F I m m t U D A G U r32 m e n n I n G ∙ F r É t t A b L A ð I ð
menning