Fréttablaðið - 28.09.2017, Blaðsíða 12
Finndu okkur
á facebook
Flísabúðin kynnir hágæða
Ítalska HELIOSA rafmagnshitara
HELIOSA hitarar henta
bæði innan- og utandyra.
Hitna strax, vindur hefur
ekki áhrif, vatnsheldir og
menga ekki.
Margar gerðir til á lager.
Flísabúðin
Stórhöfða 21 | s: 545 5500 | flis.is
Hugbúnaðarfyrirtækið Azazo, sem er meðal annars í eigu lífeyris-sjóða og áhættufjár-festingarsjóðs í eigu
íslenska ríkisins, rambar á barmi
gjaldþrots. Eignir þess hafa verið
kyrrsettar að beiðni fyrrverandi for-
stjóra og stofnanda Azazo sem hefur
stefnt félaginu fyrir dómstóla eftir að
ráðningarsamningi hennar var rift í
kjölfar mikilla deilna á milli hennar
og stjórnarmanna.
„Félagið stendur mjög illa. Þetta
er löng saga í samskiptum á milli
stofnanda og stjórnar í gegnum tíð-
ina sem hefur ekki gengið átakalaust
fyrir sig,“ segir Friðrik Friðriksson,
stjórnarformaður Azazo og fulltrúi
Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins
(NSA), áhættufjárfestingarsjóðs í
eigu íslenska ríkisins, í stjórn fyrir-
tækisins.
Ráðningarsamningi Brynju Guð-
mundsdóttur, stofnanda Azazo og
næststærsta hluthafa, var rift 6. júlí
síðastliðinn og henni samstundis
fylgt út úr húsakynnum fyrirtækis-
ins í Hafnarfirði. Velta Azazo á fyrri
helmingi ársins hafði þá lækkað um
33 prósent samanborið við sama
tímabil í fyrra og fjárhagsstaðan
versnað umtalsvert. Fyrirtækið var
rekið með 633 milljóna króna tapi
í fyrra en hagnaðist um 221 milljón
árið 2015. Tapið í fyrra má að mestu
leyti rekja til samdráttar í tekjum,
hækkunar launa- og annars rekstr-
arkostnaðar, en aðallega þess að
óefnislegar eignir rýrnuðu í virði um
565 milljónir. Var þar um að ræða
þróunarkostnað við hugbúnaðinn
CoreData sem var færður niður eftir
að fyrirtækið missti einn sinn stærsta
viðskiptavin, slitastjórn Glitnis, síðar
Glitnir HoldCo, um mitt þetta ár.
Samkvæmt ársreikningi Azazo fyrir
2016 stóð sala á þjónustu til Glitnis
undir um helmingi af heildarveltu
árin 2015 og 2016.
Samkvæmt Brynju, sem stofnaði
Azazo fyrir tíu árum, hafði samstarf
hennar og stjórnarmanna fyrirtæk-
isins gengið illa allt frá hausti 2014.
Hún hafi farið fram á kyrrsetningu
eigna þess þann 14. september, sex
dögum fyrir aðalfund, vegna launa-
kröfu sem hún eigi upp á 65 millj-
ónir króna. Kyrrsetningunni verði
ekki aflétt á meðan engin svör fáist
varðandi kröfuna.
„Það voru samskiptaörðugleikar
og trúnaðarbrestur en ég var með
bundinn ráðningarsamning til
31. ágúst 2018. Hann var svo stað-
festur af stjórn í desember í fyrra
eftir að ég gaf eftir launakröfu sem
ég átti á fyrirtækið. Ég er eini hlut-
hafinn með ábyrgðir, það er að
segja í ábyrgð fyrir yfirdráttarskuld
fyrirtækisins, og ég er búin að reyna
ítrekað síðustu ár að fá stjórnina til
að losa mig undan henni eða að aðrir
hluthafar beri þær byrðar með mér.
Þegar samningnum var rift fékk ég
ekki greitt uppsafnað orlof eða þá
daga sem ég hafði unnið í júlí. Ég tók
tugi milljóna króna í lán og setti inn
í fyrirtækið, og skuldsetti mig í botn
til að bjarga því, og hef hafnað öllum
ásökunum stjórnarinnar og tel upp-
sögnina ólögmæta,“ segir Brynja.
Núverandi stjórn Azazo var
kjörin á hluthafafundi félagsins
þann 27. júlí síðastliðinn áður en
aðalfundur var haldinn 20. septem-
ber. NSA á 17,1 prósents hlut í fyrir-
tækinu og Core Invest, félag Brynju,
fjórtán prósent. Auður 1 fagfjárfesta-
sjóður, í eigu lífeyrissjóða og fagfjár-
festa, á 13,9 prósent en samtals eru
hluthafar 43 talsins. Í þeim hópi eru
einnig núverandi eða fyrrverandi
starfsmenn Azazo en fyrirtækið
hefur undanfarna mánuði þurft að
ráðast í uppsagnir í ljósi stöðunnar.
Hefur starfsmannafjöldinn af þeim
sökum farið úr um fimmtíu niður í
um tuttugu. Starfsfólk hefur verið
upplýst um stöðuna og var hlutafé
fyrirtækisins í síðustu viku lækkað
úr 60 milljónum að nafnvirði í fjórar.
Stjórn Azazo telur Brynju hafa
haldið eftir upplýsingum um fjár-
hagsstöðu fyrirtækisins og fegrað
bókhald þess. Ákvörðun hennar um
að fara fram á kyrrsetningu eigna
hafi síðan fælt í burtu fjárfesta sem
hafi verið tilbúnir til að leggja fjár-
magn inn í félagið.
„Við tökum við sem funkerandi
starfsstjórn yfir fyrirtæki sem stend-
ur ekki vel. Við erum með fyrirtækið
í gjörgæslu en það er erfitt fyrir okkur
að fara út í smáatriðin,“ segir Friðrik.
Á hluthafafundinum 27. júlí var
samþykkt að gefa út skuldabréf fyrir
allt að 100 milljónum króna í þeim
tilgangi að styrkja fjárhag Azazo og
treysta rekstrarhæfi. Skuldabréfa-
útgáfan stendur að sögn Friðriks
enn yfir og gengur þokkalega. Aftur
á móti þarf hún að klárast fyrir októ-
berlok ef fyrirtækið á að ná að standa
við sínar lágmarks skuldbindingar.
„Þegar hluthafafundurinn var
haldinn í júlí var félagið komið í
strand. Menn hafa verið að rifa seglin
þannig starfsfólki fækkar um hver
mánaðamót,“ segir Friðrik og svarar
að NSA hafi ekki tekið ákvörðun um
hvort sjóðurinn muni fjárfesta frekar
í Azazo. Hann hafi ekki á reiðum
höndum hversu mikla fjármuni NSA
hefur sett inn í fyrirtækið.
„Ég vil meina að þessi hlut-
hafafundur í júlí hafi verið ólög-
lega boðaður og þar var kjörin ný
stjórn. Þar var mér úthúðað og
stjórnin þóttist koma af fjöllum
eins og þau vissu ekki hver staðan
væri á fyrirtækinu. Á aðalfundi
félagsins í síðustu viku, eftir að
ég kyrrsetti eigur félagsins, var ég
sökuð um að ég væri búin að „fiffa“
bókhaldið með Deloitte í fjölda-
mörg ár þar sem hugbúnaðurinn var
eignfærður. Mér finnst þessar
aðgerðir gegn mér mjög grófar enda
vita allir sem hafa farið í gegnum
alþjóðlega endurskoðun að þetta
eru fáránlegar ásakanir. Ég er ekki
hafin yfir það að missa vinnuna en
þarna er að baki löng saga og án þess
að það hafi verið reynt að setjast
niður og ná sáttum af einlægni,“ segir
Brynja og bætir við að hún skrifi nú
bók og kvikmyndahandrit um starfs-
feril sinn hjá Azazo.
„Ég tel þetta ósanngjarnt og ekki
einungis gegn mér heldur öllum hlut-
höfum. Það hefur fullt af starfsmönn-
um sett peninga í hlutafé sem eiga nú
á hættu að missa það ef félagið fer í
þrot eða ef þeir þynnast út í skulda-
bréfaútgáfunni. Ég er stolt af Azazo,
lausnum þess og starfsfólki. Ég vil að
fyrirtækið lifi þessar hremmingar af
og haldi áfram að blómstra.“
Brynja segir að persónuverndarlög
hafi einnig verið brotin þar sem hún
hafi ekki enn fengið einkagögn sem
voru á skrifstofu hennar og vinnu-
tölvu. Launakrafan upp á 65 millj-
ónir eigi að fara í að borga þau lán
sem hún tók til að stofna og halda
rekstri fyrirtækisins gangandi.
„Í lok síðasta árs gerði ég skriflegt
samkomulag við þáverandi stjórn
þar sem hún ábyrgðist að losa mig
undan ábyrgðum í síðasta lagi fyrir
1. september síðastliðinn. Ekki var
staðið við þetta samkomulag og mun
ég skoða réttarstöðu mína varðandi
það og mögulega stefna fyrirtækinu
og skoða það að sækja þessa stjórn-
armenn beint til saka persónulega
vegna þessa brots.“
Azazo í gjörgæslu eftir miklar deilur
Brynja Guðmundsdóttir, fyrrverandi forstjóri Azazo, lét kyrrsetja eignir fyrirtækisins sem hún hefur stefnt eftir að ráðningarsamningi
hennar var rift. Lífeyrissjóðir og Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins í hluthafahópnum. Stjórnarformaðurinn segir stöðuna erfiða.
Brynja Guðmundsdóttir hafnar öllum ásökunum stjórnar Azazo og segir uppsögn sína ólögmæta. FréttABlAðið/GVA
AZAZO er íslenskt hugbúnaðar- og
þekkingarfyrirtæki sem sér-
hæfir sig í stjórnun og varðveislu
upplýsinga og gagna en í fyrra
störfuðu þar um fimmtíu manns í
sex löndum.
Brynja stofnaði fyrirtækið árið
2007 en það hét þá Gagnavarslan.
Eftir það óx fyrirtækið hratt og
selur nú hugbúnaðinn Azazo Core-
Data sem er notað af mörgum af
stærstu fyrirtækjum og stofn-
unum á Íslandi. Einnig rekur það
gagnavörslu á Ásbrú í Reykjanes-
bæ í gegnum dótturfélag sitt, ráð-
gjafarsvið í Hafnarfirði og býður
skönnunar- og prentþjónustu.
Fyrir utan stærstu þrjá hlut-
hafana, NSA, Core Invest og Auður
1, eiga nokkrir aðrir nafntogaðir
fjárfestar bréf í félaginu, Hlér ehf.,
félag Guðmundar Ásgeirssonar,
sem yfirleitt er kenndur við skipa-
félagið Nesskip, á 5,5 prósent
samkvæmt nýjasta ársreikningi
Azazo. Frímann Elvar Guðjónsson,
sem var á lista Ríkisskattstjóra
yfir hæstu skattgreiðendur árið
2012, á 4,2 prósent og Aurora
velferðarsjóður, í eigu hjónanna
Ólafs Ólafssonar, sem oftast er
kenndur við Samskip, og Ingi-
bjargar Kristjánsdóttur, á 3,9
prósent.
Stofnað 2007 sem Gagnavarslan
Hagnaður Mylluseturs ehf., útgáfu-
félags Viðskiptablaðsins og tengdra
fjölmiðla, nam 12,6 milljónum í
fyrra og jókst um liðlega 2,5 millj-
ónir á milli ára. Allt frá 2010 hefur
útgáfustarfsemi félagsins skilað
hagnaði á hverju einasta rekstrarári.
Samkvæmt nýbirtum ársreikn-
ingi Mylluseturs námu rekstrar-
tekjur félagsins samtals 282 millj-
ónum og drógust saman um þrjár
milljónir frá fyrra ári. Launakostn-
aður minnkaði einnig á sama tíma-
bili um liðlega sjö milljónir og var
samtals 165,5 milljónir á síðasta
ári. Meðalfjöldi starfsmanna var 18
talsins og hélst óbreyttur á milli ára.
Heildareignir Mylluseturs námu
156 milljónum í árslok 2016 og bók-
fært eigið fé var ríflega 62 milljónir.
Eiginfjárhlutfall félagsins er því um
40 prósent. Eignir Mylluseturs eru
að langstærstum hluta útistandandi
viðskiptakröfur að fjárhæð um 135
milljónir. Heildarskuldir félagsins
nema 94 milljónum og jukust um
fjórar milljónir á milli ára. Engar
skuldir eru við lánastofnanir.
Eigendur Mylluseturs eru Pétur
Árni Jónsson, framkvæmdastjóri
hjá fasteignafélaginu Heild, með
67 prósenta hlut og Sveinn Biering
Jónsson fjárfestir með 33 prósenta
hlut. Pétur Árni lét af störfum sem
útgefandi Viðskiptablaðsins í febrú-
ar 2016 og staðan var samtímis lögð
niður. Þá hætti hann sömuleiðis
sem eini stjórnarmaður félagsins og
tók Jón Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri Mylluseturs og faðir Péturs
Árna, sæti hans í stjórninni. – hae
Viðskiptablaðið græddi 13 milljónir
Pétur Árni Jónsson er stærsti eigandi
Mylluseturs með 67 prósenta hlut.
Rekstrartekjur Myllu-
seturs námu 282 milljónum
króna á síðasta ári og drógust
saman um 3 milljónir frá
fyrra ári. Heildareignir
félagsins námu 156 millj-
ónum króna í árslok 2016.
Haraldur
Guðmundsson
haraldur@frettabladid.is
MaRkaðuRinn
2 8 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 F I m m t U D A G U r12 F r é t t I r ∙ F r é t t A b L A ð I ð