Fréttablaðið - 28.09.2017, Síða 14

Fréttablaðið - 28.09.2017, Síða 14
Frá degi til dags Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kjartan Hreinn Njálssson kjaranh@frettabladid.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Halldór Kjartan Hreinn Njálsson kjartanh@frettabladid.is Bæjarhrauni 2 | Hafnarfirði | Sími: 4370000 | hafis@hafis.is Komdu og fáðu rjómaís og laktósafrían vegan ís Íslenskur ís með ítalskri hefð Eftir sex áratugi af nær hömlulausri notkun á sýklalyfjum blasir öld ónæmis við. Leikar hefjast Nú er þingi lokið og kosninga- barátta fram undan. Á næstu dögum munu listar flokka liggja fyrir og þá mun einnig koma í ljós hvað nýr flokkur Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar á að heita. Ef svo fer að sá flokkur bjóði fram gæti stefnt í að níu flokkar verði á þingi á næsta kjörtímabili og því enn þá ólík- legra að hægt verði að mynda tveggja flokka meirihlutastjórn. Spennandi verður að sjá hvað gerist í kosningabaráttunni og hvort eitthvað nái að rista jafn- djúpt og kökuskreytingarmynd- band Bjarna Benediktssonar, fráfarandi forsætisráðherra, gerði í fyrra. Viðsnúningur Willum Þór Þórsson, fyrrver- andi þingmaður Framsóknar- flokksins og knattspyrnustjóri, tilkynnti í gær að hann vildi oddvitasætið í Suðvesturkjör- dæmi. Eygló Harðardóttir, fráfarandi oddviti, tilkynnti á dögunum að hún myndi ekki bjóða sig fram í ár. Spurning er hvort Willum takist að standa að álíka við- snúningi fyrir Framsóknarflokk- inn og hann hefur gert fyrir KR í sumar. Vesturbæjarliðið var í níunda sæti þegar hann tók við því en er nú í því fjórða. Til samanburðar fékk Framsóknar- flokkurinn sína verstu kosningu frá stofnun í fyrra og lenti í raun í fjórða sæti. thorgnyr@frettabladid.is Bóksala hefur dregist saman um rúm 31% frá árinu 2008 og má segja að um hrun sé að ræða. Lilja Alfreðsdóttir þingmaður Fram- sóknarflokksins Íslendingar eru bókaþjóð. Bækur eru vettvangur nýsköpunar og grundvöllur símenntunar alla ævi. Bækur eru snar þáttur í málþroska barna. Þær gegna lykilhlutverki í menntakerfinu og miðla sögu og menn- ingu okkar til komandi kynslóða. Menntun, skólar og bækur eru lykill að framförum og því mikilvægt að efla allt er viðkemur skapandi skrifum, lestri og útgáfu. Læsi er forsenda þekkingar og lykill að sjálfsvirðingu. Íslensk tunga á undir högg að sækja. Öflug útgáfa á frumsömdu og þýddu fræðslu- og kennsluefni á öllum skólastigum er nauðsynleg til að styrkja innlent fræðastarf og auðga íslenska tungu af hugtökum og íðorðum á öllum sviðum. Niðurstöður PISA-rannsóknar frá 2015 sýna að Ísland kemur lakast út á Norðurlöndunum í stærðfræðilæsi, lesskilningi og vísindalæsi og er auk þess undir OECD- meðaltali. Ljóst er að þessi árangur í PISA-rannsókninni er óásættanlegur. Bóksala hefur dregist saman um rúm 31% frá árinu 2008 og má segja að um hrun sé að ræða. Þegar svona aðstæður koma upp, þá ber stjórnvöldum að nýta stjórnvaldstæki sín, eins og skattkerfið, og bregðast við. Ein leið er að afnema bókaskatt og því lagði ég fram frumvarp á lokadegi þingsins þess efnis. Þverpólitísk sátt hefur myndast í þinginu um málið, þar sem full- trúar allra stjórnmálaflokka eru meðflutningsmenn. Bækur eru almennt í lægra skattþrepi meðal þjóða heims. Fimm Evrópuþjóðir hafa afnumið virðisauka- skatt á bókum til að efla læsi og vernda menningu sína og tungu, þ.e. Norðmenn, Færeyingar, Bretar, Írar og Úkraínumenn. Meðaltal virðisaukaskatts á bókum í Evrópu er 7%. Þrjátíu lönd í Evrópu eru með lægri virðisaukaskatt á bókum en hér á landi. Sænsk stjórn- völd lækkuðu virðisaukaskatt á bókum árið 2002 úr 25% niður í 6%. Sala bóka jókst um 16% fyrsta árið og áhrifin voru viðvarandi. Ekki þurfti lengur að styðja sérstak- lega við bóksölu í jaðarbyggðum og fleiri fjölbreyttari bókaútgáfur spruttu upp. Það er afar ánægjulegt að þverpólitísk sátt hefur myndast um að afnema bókaskatt og því á að vera auð- velt að hrinda því í framkvæmd á næsta þingi. Bókaþjóð- in mun standa undir nafni með afnámi bókaskattsins. Bókaþjóðin vaknar Fyrr í vikunni vakti undirritaður athygli á áhyggjum Embættis landlæknis af lakri ásókn í bólusetningu hér á landi og var sú staðreynd sett í samhengi við þá tilhneigingu okkar að skilgreina núverandi ástand sem stöðugt og óbreytilegt. Að þeir sem telja bólusetningu óþarfa séu í raun álíka afvegaleiddir og þeir sem telja hana vera skaðlega. Önnur hlið á sama peningi er notkun okkar á sýklalyfjum og útbreiðsla sýkla- lyfjaónæmis. Rétt eins og með bóluefnið er erfitt að ímynda sér heim án sýklalyfja. Við þekktum þennan heim fyrir ekki svo mörgum árum. Við sáum það hvern- ig minnsti skurður gat þróast í lífshættuleg meiðsli og vorum vel meðvituð um það hversu hættulegur barnsburður gat verið fyrir móður og barn. Við höfum engan áhuga á að snúa aftur í þennan heim, en því miður stefnum við þangað. Eftir sex áratugi af nær hömlulausri notkun á sýklalyfjum blasir öld ónæmis við. Heilbrigðisyfirvöld vítt og breitt um heiminn berjast ekki við óvæntan óvin um þessar mundir. Þvert á móti. Sjálfur Alexander Fleming, maðurinn sem færði okkur töfralyfið, varaði okkur við: „Sá dagur mun koma að pensilín verður aðgengilegt öllum. Þá er hætta á að hinn fávísi noti lyfið í of litlu magni og örverur hans komist í tæri við lyfið í vægu magni svo ónæmi myndast.“ Þetta sagði Fleming þegar hann tók við Nóbelsverðlaunum í læknisfræði árið 1945. Í dag skilgreinir Alþjóða- heilbrigðismálastofnunin (WHO) ónæmis- vandann sem einhverja mestu áskorun okkar kynslóðar. Ónæmi er náttúrulegt fyrirbæri og að vissu leyti óumflýjanlegt. En með skynsamlegri notkun sýklalyfja í mönnum og dýrum er hægt að hægja á þessari þróun. Það hefur ekki tekist hingað til. Enn fremur hefur á allra síðustu áratugum hægt veru- lega á þróun nýrra sýklalyfja. Áskoranir í þróun nýrra sýklalyfja eru í senn af vísindalegum toga og efnahagslegum. Þetta er flókin vísindavinna og kostnaðarsöm sem óvíst er að borgi sig nema þá á löngum tíma. Hér á Íslandi þarf að leggja í verulegt átak til að stöðva útbreiðslu sýklalyfjaónæmis enda var nýverið sýnt fram á að sýklalyfjanotkun jókst árið 2016 borið saman við árið á undan. Stórkostlegar uppgötvanir eins og sýklalyf og bóluefni eiga það til að hverfa í bakgrunninn, þó svo að þær séu forsenda framfara og þess blóma- skeiðs sem við fengum – vonandi ekki óverðskuld- að – í vöggugjöf. Þegar við stöndum á öxlum risa og horfum fram á veginn megum við ekki gleyma fótfestu okkar, þá sérstaklega þegar óveðursskýin hrannast upp við sjóndeildarhringinn. Enn af andvaraleysi 2 8 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 F I m m t U D A G U r14 s k o ð U n ∙ F r É t t A b L A ð I ð SKOÐUN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.