Fréttablaðið - 28.09.2017, Page 15
Eitt helzta vígorð Donalds Trump í kosningabaráttu hans í fyrra var „America first“. Áður höfðu
menn ekki heyrt bandarískan forseta-
frambjóðanda tala eins og ofvaxinn
þjóðrembill í smáríki sem á undir
högg að sækja.
Vígorðið „America first“ var sótt
til flugkappans Charles Lindbergh
sem flaug fyrstur manna einsamall
og viðstöðulaust yfir Atlantshafið,
studdi Adolf Hitler og hataði gyðinga.
Þetta var bara byrjunin. Trump for-
seti sækir margar fyrirmyndir leynt
og ljóst til nasista og fasista. Óvildin
í garð innflytjenda, virðingarleysið
gagnvart gyðingum, þ.m.t. kæruleysis-
legt tal um helförina, hvatning til
ofbeldis og erlendra njósna um and-
stæðinga og endalausar lygar ásamt
öðru bera vitni. Þegar málflutningur
forsetans og manna hans er skoð-
aður, þegar ummerkin hrannast upp,
þegar fasisminn er kominn fast upp
að hlið okkar, þá skiptir sagan máli
eins og Timothy Snyder prófessor í
Yale-háskóla lýsir í nýrri metsölubók
sinni On Tyranny (Um harðstjórn). Þá
skiptir það máli að faðir Trumps var
handtekinn á fundi hjá Ku Klux Klan
eins og ég rifjaði upp á þessum stað
fyrir viku.
Vígorðið „Íslandi allt“ sem fv. for-
sætisráðherra skreytti sig með er
sömu ættar.
Ummerkin hrannast upp
Við eðlilegar aðstæður ætti upprifjun
á þeim hörmungum sem þýzkir nas-
istar, ítalskir fasistar og bandamenn
þeirra í Japan kölluðu yfir heiminn á
sinni tíð ekkert erindi inn í umræður
um stjórnmál. Það stafar einkum af
því að Þjóðverjar hafa gert svo ræki-
lega upp við fortíð sína að sómi er að
þótt nú syrti aftur í álinn. Mestan ugg
vekur ástandið í Bandaríkjunum eins
og sakir standa en þar telja margir rétt
og nauðsynlegt að draga forsetann
fyrir landsdóm vegna meintra lög-
brota og aðrir hóta borgarastyrjöld,
jafnvel í guðs nafni, verði það gert.
Hvernig gat þetta gerzt í landi sem
þar til nýlega taldist vera óskoraður
leiðtogi hins frjálsa heims? Bandarísk
stjórnmál eru í uppnámi m.a. vegna
þess að peningarnir hafa tekið þar
völdin í boði Hæstaréttar sem nam
árið 2010 brott allar takmarkanir á
fjárframlög til stjórnmálastarfs. Lýð-
ræði vék fyrir auðræði og stefnir í þjóf-
ræði sjái menn sig ekki um hönd, segir
Timothy Snyder í bók sinni. Honum
sýnast Bandaríkin vera á sömu leið og
Rússland. Fárið breiðist út.
Ísland stóðst prófið, Rússland féll
Tilburða í átt til fasisma hefur einn-
ig orði vart á Íslandi. Tilraun ríkis-
stjórnar undir forustu Sjálfstæðis-
flokksins til að setja fjölmiðlalög til
höfuðs Fréttablaðinu og Stöð 2 var
eftir á að hyggja aðför að frjálsri fjöl-
miðlun í fasískum anda. Aðförina bar
upp á sama tíma og Vladímir Pútín
forseti Rússlands notaði svipaðar
aðferðir til að loka einkasjónvarps-
stöðvum þar í landi til að styrkja
stöðu sína og hefta frelsi fjölmiðla.
Munurinn var sá að hér heima tókst
að hrinda aðförinni. Ísland stóðst
prófið sem Rússland féll á. Mikinn
þátt í því átti Þjóðarhreyfingin
undir forustu Ólafs Hannibalssonar
blaðamanns, Hans Kristjáns Árna-
sonar annars stofnanda Stöðvar 2,
sr. Arnar Bárðar Jónssonar og Einars
Árnasonar hagfræðings. Fyrir tilstilli
þeirra m.a. sköpuðust skilyrði til þess
að forseti Íslands synjaði fjölmiðla-
lögunum staðfestingar 2004. Ríkis-
stjórnin gafst upp.
Nokkru síðar tóku „skrímsla-
Eftirdrunur nasismans
Þorvaldur
Gylfason
Í dag deild“ Sjálfstæðisflokksins og „gas-
ljósameistarar“ að láta að sér kveða.
Hvorugt orðið er skráð í Orðabók
Háskóla Íslands en þau lýsa þeim
hópi manna sem ræðst með skipu-
legum óhróðri gegn andstæðingum
Sjálfstæðisflokksins. Áður hafði
Styrmir Gunnarsson ritstjóri Morg-
unblaðsins lýst þessum aðferðum
úr návígi og kennt þær eftirminni-
lega við „andrúmsloft dauðans“.
Nýtt dæmi er harðar árásir á Smára
McCarthy alþingismann fyrir orð
hans um afhjúpun leynimakks for-
ustumanna Sjálfstæðisflokksins
varðandi valinkunna meðmæl-
endur í máli tveggja dæmdra kyn-
ferðisbrotamanna. Nú er komið í
ljós að hluti skjalanna sem um er að
ræða virðist falsaður og dómsmála-
ráðuneytið hefur orðið uppvíst um
„forkastanleg vinnubrögð“. Og þá
er blásið í herlúðra gegn stjórnar-
andstöðuþingmanni sem hefur auk
fjölmargra annarra fjallað um málið.
Árásir forsetaframbjóðanda Sjálf-
stæðisflokksins á Guðna Th. Jóhann-
esson fyrir forsetakosningarnar í
fyrra vegna meintrar afstöðu Guðna
til kröfunnar um að Íslendingar
tækju að hluta ábyrgð á Icesave-
reikningum Landsbankans voru
angi á sama meiði. Svipaðar árásir
bergmála á samfélagsmiðlum flesta
daga eins og um skipulega aðför sé
að ræða að rússneskri fyrirmynd.
Upplognar fullyrðingar Donalds
Trump um að Obama forseti væri
fæddur erlendis og væri því ólög-
mætur forseti voru sömu ættar. Og
nú eru íslenzkir álitsgjafar sakaðir
um að bera fréttir af stjórnmálaspill-
ingu á Íslandi í erlenda fjölmiðla eins
og útlendingar séu ekki fullfærir um
að mynda sér sjálfstæða skoðun á
málinu.
Ær og kýr
Föðurlandssvikabrigzl og valdarán
eru ær og kýr fasista enn sem fyrr.
Ísland þarf að gæta sín á fárinu sem
ríður nú yfir nálæg lönd. Framganga
Sjálfstæðisflokksins og taglhnýtinga
hans gagnvart nýju stjórnarskránni
sem 67% kjósenda lýstu stuðningi
við 2012 er skýr viðvörun.
Setjum náttúruna
og fólkið í öndvegi
I. Strokulaxar úr eldi tvöfalt eiri en villtir laxar
Gera má ráð fyrir að einn eldislax sleppi úr hverju tonni sem er alið í opnum sjókvíum.
Það þýðir að 71 þúsund erfðabreyttir norskir eldislaxar munu sleppa í sjóinn við Ísland á
hverju ári miðað við hóegustu áætlanir eldissinna. Hrygningarstofn íslenska villta laxins
er um 35 þúsund skar. Eldislax hefur valdið erfðablöndun á 80% náttúrulegra stofna í
Noregi.
II. Yr 1.500 fjölskyldur njóta tekna af veiðihlunnindum
Hlunnindi af silungs- og laxveiði hafa kynslóðum saman verið mikilvæg stoð við búsetu
í sveitum landsins. Sjókvíaeldi ógnar afkomu fjölda bændafjölskyldna.
III. Skólpmengun á við 568 þúsund manns
Landssamband skeldisstöðva segir að skólp af hverju tonni í eldi sé á við „klóakrennsli
frá 8 manns.“ Umhverssamtök segja þessa tölu vera hærri. Miðað við tölu skeldis-
stöðvanna mun skólp sem jafngildir klóakrennsli frá 568 þúsund manns streyma árlega til
sjávar frá skeldisstöðvum (miðað við 71 þúsund tonn af eldislaxi). Líklega er þessi tala
mun hærri.
IV. Allir laxastofnar á Íslandi í hættu
Eldislaxar sem sleppa úr sjókvíum á Vestfjörðum og Austurlandi geta synt mörg hundruð
kílómetra norður eða suður fyrir landið og þannig borist í öll ferskvatnsker á Íslandi sem
renna til sjávar.
Byggjum upp umhversvænt eldi eftir ströngustu kröfum
Í Noregi er eldi í opnum sjókvíum á útleið. Vöndum til verka og byggjum upp eldi með
bestu mögulegu tækni: í lokuðum kerfum þar sem mengun og strok ska eru í lágmarki.
Þessi auglýsing er kostuð af The Icelandic Wildlife Fund sem er nýr náttúruverndarsjóður.
Sjóðurinn er grasrótarstofnun, rekinn með frjálsum framlögum og ekki í ágóðaskyni.
Stórfellt iðnaðareldi í opnum sjókvíum ógnar náttúru,
lífríki og afkomu fólks í sveitum Íslands.
S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 15F i M M T u d a g u R 2 8 . S e p T e M B e R 2 0 1 7