Fréttablaðið - 28.09.2017, Qupperneq 18
Veikindi og heilsutjón af völdum myglusveppa er vaxandi sam-félagslegt böl sem nauðsyn-
legt er að koma í veg fyrir. Fjárhags-
legt tjón er einnig verulegt. Fræðsla
um orsakir og afleiðingar af völdum
myglusveppa er nauðsyn. Þar til bærir
aðilar þurfa að sýna ábyrgð. Hönnun
húsa, byggingaraðferðir, ábyrgð og
eftirlit með húsbyggingum er höfuðat-
riði til að koma í veg fyrir myglutjón,
einnig viðhald og umgengni fólks í
húsum og híbýlum. Löggjöf og viður-
lögum í þessum efnum er ábótavant.
Aðstandendur fólks sem veikst
hefur af völdum myglusveppa,
almenningur, heilbrigðisstéttir og
yfirvöld þurfa á upplýsingu að halda
til að skilja hve mikil martröð það er
að lifa eða hafa lifað með myglusvepp.
Skjótra viðbragða er þörf.
Myglusveppir hafa fylgt mönnum
frá öndverðu. Myglusveppir eru
hvorki afmarkaðir við lönd né þjóð-
ríki og finnast alls staðar. Fólk sem
verður fyrir barðinu á myglusvepp-
um verður oft flóttafólk í eigin landi.
Myglusveppaflóttamaður er sá sem
hvorki getur búið, dvalið né unnið
í myglu- og rakaskemmdu húsnæði
vegna einkenna og veikinda sem
orsakast við innöndun.
Í Finnlandi eins og hér á landi
er fjöldi myglusýktra bygginga.
Samkvæmt upplýsingum finnska
umhverfisráðuneytisins (Moisture
and Mould Programme) er áætlað að
sex til átta hundruð þúsund Finnar af
rúmum fimm milljónum landsmanna
búi við það að anda að sér eiturefnum
af völdum myglusveppa. Afleiðing-
arnar geta verið varanlegir og alvar-
legir sjúkdómar. Fólki sem er orðið
ofurnæmt af völdum myglu er lífsins
ómögulegt að búa og starfa í raka og
mygluskemmdum byggingum.
Margar orsakir
Undirrót myglusveppa er raki sem
getur átt sér margar orsakir. Algeng-
ustu ofnæmisvaldandi mygluteg-
undirnar eru Alternaria, Aspergillus,
Cladosporium og Penicillium. Agnir
eða brot losna úr myglusveppunum,
menga inniloftið og valda veikindum
fólks og gæludýra. Agnirnar eru brot
af sveppþráðum, gróum og ask-
hirslum sem eru minna en 0,1 µm upp
í 2,5 µm en það er minna en gró eru.
Ofursmáar sveppaagnirnar blandast
ryki sem óhjákvæmilega er alls staðar
í húsnæði. Agnirnar smjúga svo inn
um öndunarfæri og slímhúð.
Algeng byrjunareinkenni geta lýst
sér eins og frjóofnæmi með stíflum
og ertingu í nefi, nefrennsli, hósta og
höfuðverk en einnig með augnkláða.
Þreyta og útbrot gera vart við sig og
önnur einkenni geta svo fylgt í kjöl-
farið, mismunandi eftir því hver á
í hlut. Fram geta komið skemmdir
á innri líffærum, taugasjúkdómar,
alvarlegar minnisraskanir, lungna-
sjúkdómar, ofnæmi fyrir ilmefnum
og rokgjörnum efnum sem og ýmsir
sjálfsnæmissjúkdómar. Ónæmiskerf-
ið veiklast og fólk fær umgangspestir.
Eiturefnapróf og ofnæmispróf á
fólki nema ekki þau áhrif sem myglu-
sveppir hafa á heilsuna. Hafi fólk
fengið ofnæmi fyrir myglusveppum
einu sinni getur verið á brattann að
sækja við að endurheimta heilsuna.
Í því sambandi er heilbrigð þarma-
flóra lykilþáttur. Niðurstöður rann-
sókna styðja í vaxandi mæli tengsl
þarmaflóru við bólgur og sýkingar í
líkamanum við langvinna sjúkdóma,
við taugakerfið og samskipti þarma
og heila. Sýnt hefur verið fram á að
niðurbrot þarmaflóru tengist myglu-
sveppum.
Við fæðingu fáum við þarmaflóru
í líkamann um fæðingarveg móður.
Barn, sem fæðist um fæðingarveg
móður, hefur betri þarmaflóru í
veganesti en barn sem tekið er með
keisaraskurði. Brjóstamjólk er rík af
gerlum og góðum bakteríum. Þann-
ig m.a. byggist þarmaflóra okkar upp.
Við ráðum sjálf miklu um hvernig
við förum með þarmaflóruna okkar.
Heilbrigðir lífshættir og heilbrigð
fæða er grunnurinn að endurheimt
heilsunnar. Afeitrun líkamans undir
leiðsögn næringarfræðinga, lækna
eða grasalækna er þekkt bataleið sem
gagnast mörgum.
Þekking á bataleiðum vegna
myglusveppaeitrunar er takmörkuð
enn sem komið er. Læknar standa
iðulega ráðþrota. Sterar og pensilín
hafa gagnast sumum myglusveppa-
þolendum. Leiðir til bata geta ráðist
af aðstæðum hvers og eins. Ráðlegt
er að leita ráðgjafar vitrustu manna á
bataleiðinni.
Það er martröð að lifa með myglu-
sveppum. Það vita þeir sem reynt
hafa. Mygludraugurinn er staðreynd
og sá draugur verður trauðla kveðinn
niður.
Myglan er skaðleg
Steinn Kárason
umhverfis
hagfræðingur
Á Alþingi síðastliðið vor lagði ég fyrir fjármála- og efna-hagsráðherra, Benedikt
Jóhannesson, og umhverfis- og auð-
lindaráðherra, Björt Ólafsdóttur,
nokkrar spurningar. Þær snérust um
lítið mál norður í landi, en stórt þó.
Um það hvernig einkafjárfestar bera
sig að við að sækja sér virkjunar-
heimildir á ríkisjörð, Stóru-Tungu
í Bárðardal, til 10 MW vatnsafls-
virkjunar í eigin þágu. Markmiðið
með bröltinu er ekki að lýsa upp
rafmagnslausar sveitir, eða knýja
hjól atvinnulífs afskekktra byggða,
heldur einfaldlega að finna arðbæra
leið til að ávaxta fé nokkurra ein-
staklinga á markaði.
Að sækja sér virkjunarrétt
Svör fjármála- og efnahagsráðherra
eru athyglisverð. Þau draga fram
mjög veigamikil atriði um náttúru-
vernd á Íslandi almennt:
„Lagaheimildir til gerðar nýt-
ingarsamninga um orkuauðlindir
á landi í eigu ríkisins eru ekki ein-
skorðaðar við félög í eigu ríkisins.
Áður hefur verið gengið til samn-
inga um nýtingu orkuauðlinda
á landsvæðum í eigu ríkisins við
einkaaðila.“
„Samkvæmt lögum er það Orku-
stofnun sem gefur út rannsóknar-
leyfi sem er grundvöllur fyrir virkj-
unarleyfi ef rannsóknir sýna að
hagkvæmt getur verið að virkja til-
tekna auðlind. Slík rannsóknarleyfi
eru gefin út til umsækjanda um slík
leyfi án sérstaks samþykkis land-
eiganda. Meginhugsun laganna er
að eigandi jarðeigna geti ekki staðið
í vegi fyrir nýtingu á auðlindum
landsins að þessu leyti ef virkjunar-
kosturinn er metinn hagkvæmur.“
Þetta skýrir sig sjálft. Svo virðist
sem ráðuneytið líti svo á að hér geti
nokkurn veginn hver sem er gengið
á fund ríkisstofnunar og sótt sér
heimildir til „rannsókna“ á virkj-
unarkostum. Og það sé hægt að gera
fyrir luktum dyrum án nokkurra
opinberra upplýsinga eða auglýs-
inga. Hagkvæmni er svo forsendan
fyrir „virkjunarleyfi“ sem ráðherr-
ann gefur út og sennilega notuð
reglan „fyrstur kemur fyrstur fær“.
Sérstakt samþykki landeigenda er
óþarft. Í tilviki Svartárvirkjunar, og
þeirra einstaklinga sem ásælast þá
auðlind, myndi samningur tryggja
90-97% af rentum í vasa einka-
fjárfestanna til framtíðar. Ríkið/
almenningur fengi hlutdeild í
3-10%. Húsöndin og urriðinn ekk-
ert.
Umhverfisráðherra mótfallinn?
Víkjum þá að umhverfis- og auðlinda-
ráðherra. Svar hennar um virkjun
einkafjárfestanna í Svartánni er vissu-
lega loðið eins og við var að búast. Það
verður þó seint túlkað í þá veru að
það lýsi jákvæðni gagnvart áformum
garpanna sem vilja fórna Svartá fyrir
ávöxtun aura sinna. Ráðherra segir
m.a.:
„Almennt er það afstaða ráðherra
að leggja þurfi aukna áherslu á frið-
lýsingar og náttúruvernd og það er
stefna hennar að vinna að fjölgun og
stækkun á friðlýstum svæðum á land-
inu. Í því geta falist mikil tækifæri.“
„Almennt er afstaða ráðherra sú að
ekki dugi að líta eingöngu til þeirra
verðmæta sem felast í orkuauðlind-
um svæða, heldur eru jafnframt mikil
verðmæti fólgin í lífríki, víðerni og
náttúru sem ekki hefur verið raskað.“
„[...] ef til þess kæmi að vatnasvið
Svartár og Suðurár yrði friðlýst, væri
rökrétt að það yrði gert með því að
svæðið yrði fellt inn í Vatnajökuls-
þjóðgarð og yrði hluti af stjórnkerfi
hans.“
„Svartárdeilan“
næsta Laxárdeila?
Þetta er Svartárdeilan. Og hún er
hafin. Það vekur óhug að í henni
birtast að nokkru leyti áþekk öfl og
í frægustu náttúruverndardeilu á
Íslandi, Laxárdeilunni, sem átti sér
stað í þarnæsta dal fyrir fáeinum
áratugum. Þarna eru í aðalhlut-
verki nokkrir gráðugir einstakl-
ingar sem áforma vatnaflutninga
með virkjun einstæðrar náttúru-
perlu á landi ríkisins, í eigin þágu.
Og reyna að nýta til þess máttlaust
viðbragðskerfi opinberrar stjórn-
sýslu náttúruverndar. Skalinn er
annar en forsendurnar svipaðar.
Það sem gerir Svartárdeiluna verri
er þó hvernig hún afhjúpar hversu
berskjaldað landið okkar virðist
vera fyrir áformum einstaklinga og
einkafyrirtækja í virkjunarhug.
Einn hópinn í þessu leikriti öllu
skulum við þó ekki vanmeta. Það er
fólkið í landinu. Sama fólk í sama
landi og stöðvaði galnar hugmyndir
gráðugu aflanna í Laxárdeilunni.
Svartárvirkjun verður stöðvuð, á
því leikur lítill vafi. Því fyrr sem allir
átta sig á því, því betra. En hitt þarf
að stöðva líka, að skotleyfi sé opið
fyrir einkaaðila á náttúru Íslands í
gegnum eitthvert ógegnsætt stjórn-
sýslupukur við leyfisútgáfu til hvers
sem eftir því sækist.
Svör umhverfis- og auðlindaráð-
herra: http://www.althingi.is/altext/
146/s/1159.html
Svör fjármála- og efnahagsráð-
herra: http://www.althingi.is/altext/
146/s/1160.html
Nú er það Svart(á)
Óli Halldórsson
umhverfisfræð
ingur og sveitar
stjórnarmaður
Vinstri grænna í
Norðurþingi
Fólki sem er orðið ofurnæmt
af völdum myglu er lífsins
ómögulegt að búa og starfa
í raka og mygluskemmdum
byggingum.
intellecta.is
RÁÐNINGAR
Fimmtudagur 28. september
KL. 16:55LAZIO SV ZULTE
KL. 16:55B. BORISOV ARSENAL
KL. 19:00TEL-AVIV VILLARREAL
KL. 19:00EVERTON LIMASSOL
365.ISSÍMI 1817
*miðað við 12 mánaða bindingu
Tryggðu þér
áskrift á aðeins
399 kr. á dag
11.990 kr. á mánuð
i
*
2 8 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 F I m m t U D A G U r18 s k o ð U n ∙ F r É t t A b L A ð I ð