Fréttablaðið - 28.09.2017, Page 24
2 8 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 F I m m t U D A G U r24 s p o r t ∙ F r É t t A b L A ð I ð
sport
FótboLtI Nokkuð óvænt er hlaupin
spenna í Pepsi-deild kvenna þegar
aðeins lokaumferðin er eftir. Þór/
KA hefur verið með yfirburði í allt
sumar en misstígi liðið sig í dag gæti
það misst Íslandsmeistaratitilinn
yfir til Breiðabliks.
Þór/KA er með tveggja stiga for-
skot á Breiðablik. Jafntefli mun
ekki duga norðanstúlkum ef Blikar
klára sinn leik því markamunurinn
er betri hjá Kópavogsstúlkum. Þór/
KA verður því að vinna FH í dag til
að gulltryggja sér titilinn. Breiðablik
verður að vinna Grindavík og vona
það besta.
Leikirnir hefjast á hinum óhent-
uga tíma 16.15 en á Akureyri er von-
ast eftir því að allir standi saman svo
hægt verði að mynda flotta stemn-
ingu á leiknum en mikið verður lagt
í umgjörðina.
Hætta snemma í vinnunni
„Við höfum verið að hvetja atvinnu-
rekendur til þess að hleypa fólki fyrr
heim úr vinnunni svo það geti séð
leikinn. Hann er auðvitað á asna-
legum tíma og leiðinlegt því það
á að gera mikið í kringum leikinn.
Það verður stuðningsmannasveit
í stúkunni með trommur og læti
meðal annars. Það á að gera allt
sem er hægt til þess að skapa sem
besta stemningu á leiknum,“ segir
Sandra María Jessen, fyrirliði Þórs/
KA, en hún segir að liðið sé búið að
hrista af sér vonbrigðin frá því í síð-
ustu umferð er liðið tapaði óvænt í
Grindavík.
„Þetta var ágætis vakning. Alveg
eins og þegar við töpuðum í Eyjum
fyrr í sumar. Leikurinn gegn Stjörn-
unni sem kom í kjölfarið var einn
okkar besti leikur í sumar. Við
erum að tækla þetta mótlæti eins
og við gerðum þá. Við erum að
reyna að nýta okkur pirringinn og
vonbrigðin til þess að peppa okkur.
Það er góð blanda af spennu og til-
hlökkun í hópnum,“ segir Sandra
ákveðin og segir liðið alls ekki vera
að fara á taugum.
„Engan veginn. Þetta er bara eins
og hver annar fótboltaleikur nema
það er aðeins meira undir. Það er
því enn meiri vilji til þess að hafa
hausinn í lagi.“
Slökkvum á netinu
Rakel Hönnudóttir, fyrirliði Breiða-
bliks, viðurkennir að Blika stúlkur
hafi ekki átt von á því að vera í þess-
ari stöðu í dag.
„Þetta leit ekkert vel út á tíma-
bili og var langsótt. Við ákváðum
að pæla ekkert í öðrum. Bara klára
okkar leiki og sjá svo til hvernig það
færi. Það hefur ekkert breyst því við
ráðum örlögum okkar ekki sjálfar.
Við verðum að gera okkar og vona
svo það besta,“ segir Rakel en Blikar
verða án tveggja sterkra lykilmanna
sem eru nú í atvinnumennsku
erlendis.
Rakel ætlar ekki að fylgjast með
gangi mála á Akureyri.
„Ég held við græðum ekkert á því
að spá í þann leik. Við slökkvum
bara á netinu, spilum okkar leik og
sjáum svo til í lokin. Það eru smá
líkur á að þetta falli með okkur. Við
höldum samt í vonina.“
henry@frettabladid.is
Hvar endar
bikarinn?
Það er mikil spenna fyrir lokaumferðina í Pepsi-
deild kvenna sem fer fram í dag. Þór/KA og Breiða-
blik eiga bæði möguleika á titlinum.
Sandra Stephany Mayor, leikmaður Þórs/KA, hefur verið besti leikmaður Íslandsmótsins og getur verið örlagavaldur í dag. Hún skorar hér gegn Breiðabliki fyrr í
sumar en stöllur hennar þurfa á því að halda að hún verði í banastuði gegn FH í dag ef liðið ætlar sér að verða Íslandsmeistari. FréttABlAðið/eyÞór
Nýjast
meistaradeild evrópu
Qarabag - roma 1-2
Basel - Benfica 5-0
CSKA - Man. Utd 1-4
0-1 Romelu Lukaku (4.), 0-2 Anthony Martial
(19., víti), 0-3 Romelu Lukaku (27.), 0-4
Henrikh Mkhitaryan (57.), 1-4 Konstantin
Kuchaev (90.).
PSG - Bayern 3-0
1-0 Dani Alves (2.), 2-0 Edinson Cavani (31.),
3-0 Neymar (63.).
Anderlecht - Celtic 0-3
Atletico - Chelsea 1-2
1-0 Antoine Griezmann (39., víti), 1-1 Álvaro
Morata (59.), 1-2 Michy Batshuayi (90.).
Sporting - Barcelona 0-1
0-1 Sebastian Coates (49., sm).
Juventus - Olympiakos 2-0
1-0 Gonzalo Higuaín (69.), 2-0 Mario
Mandzukic (80.).
Í dag
16.00 Þór/KA - FH Sport
16.00 Breiðablik - FH Sport 2
16.55 lazio - Zulte Sport 3
16.55 BAte - Arsenal Sport 4
17.00 Presidents Cup Golfstöðin
19.00 Maccabi - Villarreal Sport 3
19.00 everton - limassol Sport 2
19.15 Stjarnan - Haukar Sport
19.20 Selfoss - Valur Sport 4
Olís er stoltur styrktaraðili úrvalsdeildar karla
og kvenna á Íslandsmótinu í handbolta.
KOMDU
Á VÖLLINN!
8. okt.
10. okt.
10. okt.
12. okt.
OLÍSDEILD KVENNA
Stjarnan - Valur
Selfoss - Fram
Fjölnir - Haukar
ÍBV - Grótta
28. sept.
28. sept.
28. sept.
28. sept.
28. sept.
28. sept.
8. okt.
8. okt.
OLÍSDEILD KARLA
ÍR - Fjölnir
Fram - Afturelding
Víkingur - ÍBV
Stjarnan - Haukar
Selfoss - Valur
FH - Grótta
Fjölnir - ÍBV
Grótta - Stjarnan