Fréttablaðið - 28.09.2017, Blaðsíða 32
Útgefandi: 365 miðlar Veffang: Visir.isÁbyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson Sölumaður auglýsinga: Jóhann Waage, johannwaage@365.is, s. 512 5439
OTTO húsin eru 145 fermetrar. Þau kosta 18,6 milljónir án uppsetningar.
Húsasmiðjan býður upp á gott úrval tómstundahúsa og einbýlishúsa. Þetta hús stendur í Hrifunes Natural Park á Suðurlandi.
Einingahúsin eru björt og falleg að innan. Hægt er að kaupa tengihús og raðhús í mörgum stærðum og útfærslum.
Seve er eitt af stærstu fyrir-tækjum í einingahúsasmíði í Eistlandi. Húsin sem Seve
framleiðir eru á mjög hagstæðu
verði en í Noregi má sjá um það
bil átta hundruð slík hús af öllum
stærðum og gerðum víða um
land. Þá hafa húsin verið seld til
Svíþjóðar og Sviss, að því er Ingvar
Skúlason, ráðgjafi á fagsölusviði
Húsasmiðjunnar, upplýsir. „Húsa-
smiðjan hefur áratuga reynslu
í framleiðslu og sölu á eininga-
húsum, en fyrsta húsið var reist í
Melgerði árið 1957. Við byggjum
því á gömlum grunni. Nýlega
tókum við upp samstarf við Seve í
Eistlandi en þeir hafa framleitt hús
í marga áratugi. Þetta eru íbúðar-
hús, parhús, smáhýsi og í rauninni
einingahús af öllum stærðum
og gerðum. Nefna má leikskóla,
grunnskóla ásamt alls kyns húsum
sem henta vel í ferðaþjónustu,“
segir Ingvar og bendir á að nýlega
hafi fyrstu húsin risið í Hrífunesi,
skammt frá Vík í Mýrdal.
Ódýrt en vandað
Það var byrjað að grafa grunn fyrir
fjórum húsum í Vík í Mýrdal í byrj-
un mars sem voru fullbúin í byrjun
júní. „Aðeins tók fjórtán vikur frá
því byggingaframkvæmdir hófust
þar til hægt var að afhenda húsin.
Þetta eru allt fullbúin einbýlishús
af stærðinni 120-145 fermetrar.
Byggingarhraðinn er mikill og
húsin eru vönduð og vel einangruð
að norskum kröfum sem eru meiri
en við höfum hér á landi. Norð-
menn leggja til dæmis meira í
hitaeinangrun. Við erum líka að
bjóða margs konar lausnir fyrir
ferðaþjónustuna, t.d. smærri hús
af stærðinni 22-30 fermetrar. Þetta
eru einingahús með gistirými,
snyrtingu og eldunaraðstöðu.“
Ingvar bendir á að einingahúsin
séu ódýr en um leið vandaður
byggingarmáti. „Með því að velja
þessa leið styttum við byggingar-
tímann til muna og lækkum
fjármagnskostnað. Ef fólk kaupir
hús af Húsasmiðjunni er gerður
viðskiptasamningur og þá getur
húskaupandinn keypt allt annað
hjá okkur sem þarf til að klára
húsið, t.d. baðtæki, eldhúsinnrétt-
ingar, hurðir og margt fleira.“
Þrjú byggingarstig
Húsin er hægt að kaupa á þremur
byggingarstigum. „Á fyrsta stigi
eru bara einingarnar, út- og inn-
veggir. Á öðru stigi reisum við
húsið og skilum því fullbúnu að
utan. Á þriðja stigi er það afhent
tilbúið til spörslunar og málunar
að innan,“ segir Ingvar og bætir
við að þetta sé mjög ódýr og góður
kostur. Afgreiðslutími er stuttur og
húsin eru fljótleg í uppsetningu.
Hægt er að velja um margvíslegar
utanhússklæðningar hjá Húsa-
smiðjunni.
Sérfræðingar hjá Húsasmiðjunni
ráðleggja kaupendum um hvernig
hús hentar best, miðað við hönnun
að innan, herbergjastærð, -fjölda og
fleira. „Það er í raun allt frjálst með
hönnun innanhúss en við breytum
ekki burðarstrúktúr hússins. Húsin
henta vel íslenskum markaði og
standast allar byggingarkröfur.
Þetta er falleg hönnun, einföld og
skemmtileg,“ segir Ingvar.
Margir áhugasamir
Hann segir Húsasmiðjuna finna
fyrir feikimiklum áhuga á eininga-
húsunum. „Margir eru þegar búnir
að panta hús og eru með teikningar
hjá skipulagsyfirvöldum til sam-
þykktar. Þessi hús munu rísa víða
um land. Við erum til dæmis með
nokkra sumarbústaði sem verða
reistir núna í haust. Það eru bæði
staðlaðar einingar og sérhönnuð
hús. Þetta er mun ódýrari kostur en
að kaupa eldri bústað og frábær hús
sem gott er að búa í,“ segir Ingvar.
Frekari upplýsingar um Seve
einingahúsin, stálgrindarhús,
krosslímd einingahús frá Húsa-
smiðjunni, svalalokanir og fleira
tengt húsasmíði má fá hjá fagsviði
í Kjalarvogi þar sem veitt er fagleg
og persónuleg þjónusta. Einnig
er hægt að nálgast upplýsingar á
www.husa.is og hjá Ingvari Skúla-
syni í síma 660-3087.
Fjölbreyttar og
skemmtilegar
útfærslur eru í
boði.
Framhald af forsíðu ➛
2 KYNNINGARBLAÐ 2 8 . S E P T E M B E R 2 0 1 7 F I M MT U DAG U REININGAHÚS