Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.09.2017, Qupperneq 34

Fréttablaðið - 28.09.2017, Qupperneq 34
Innflutningur á tilsniðnum húsum frá Noregi tíðkaðist á fyrstu öldum Íslandsbyggðar og hefur slíkur innflutningur átt sér stað á öllum öldum síðan, ekki síst vegna katalóga sem sýndu hús, byggingahluta og skraut sem notaðir voru sem fyrirmyndir hjá íslenskum forsmiðum. Elstu hús sem varðveist hafa hér á landi, og eiga með vissu uppruna sinn í Noregi, eru frá seinni hluta 18. aldar, eru forsmíðuðu katalóghúsin frá norsku trésmiðjunni Strømmen Træ varefabrik. Norska húsið í Stykkishólmi er til að mynda forsmíðað, norskt hús, reist árið 1832 af Árna Thorlacius, kaupmanni og útgerðarmanni í Stykkishólmi. Húsið er fyrsta tvílyfta íbúðar­ húsið sem reist var á Íslandi en það var byggt úr tilsniðnum viði frá Noregi. Norska húsið er nú í eigu Byggðasafns Snæfellinga og Hnapp­ dæla. Á miðhæðinni hefur verið sett upp „heldra manna heimili“ Árna og Önnu Thorlacius á 19. öld, en á jarðhæð eru sýningarsalir og krambúð. Í risinu er opin safngeymsla þar sem gestir geta glöggvað sig á hinum miklu viðum sem húsið er byggt úr og upplifað stemningu liðins tíma. Heimild: stykkishólmur.is Norsku katalóghúsin Íbúðarhús úr gámum er í bygg­ingu úti í eyðimörkinni í Kali­forníu. Framkvæmdir munu hefjast í byrjun næsta árs en húsið á að byggja fyrir kvikmyndafram­ leiðanda nokkurn og fjölskyldu hans sem býr í Los Angeles. Hönnun hússins er í höndum James Whitaker sem rekur stúdíó í London. Whitaker hafði nokkrum árum áður unnið tillöguna að gámahúsinu sem skrifstofuhús­ næði á lóð í Þýskalandi en ekkert varð úr þeim framkvæmdum. Kvikmyndaframleiðandinn féll fyrir hönnun Whitakers þegar hann var staddur ásamt vinum sínum á landareign sinni í eyðimörkinni við Joshua Tree þjóðgarðinn. Einhverjum þeirra varð að orði: „Veistu hvað færi vel á þessum stað?“ og sýndi land­ eigandanum mynd af gámahúsi Whitakers. Gengið var frá samningum um að í eyðimörkinni risi sumarhús eða afdrep fyrir fjölskylduna eftir teikningunum af skrifstofuhús­ næði Whitakers. Húsið verður samsett úr hvít­ máluðum gámum sem standa út og upp af hver öðrum í allar áttir. Steinsteyptar súlur lyfta undir þá. Húsgögnin eru hönnuð af ísra­ elska iðnhönnuðinum Ron Arad en Whitaker vann lengi á hönn­ unarstofu Arads í London. Hugmyndin er að húsið tengist umhverfinu en veiti þó íbúum þess næði til þess að vera í friði. Whit­ aker hefur sagt eigandann vera „draumaviðskiptavin“ arkitekts og að bakgrunnur hans í kvikmynda­ iðnaðinum geri hann opinn fyrir óvenjulegum útfærslum. Óvenjulegt gámahús Nánari upplýsingar veita sölumenn timburverslunar BYKO í síma 515-4000 eða með tölvupósti á serlausnir@byko.is. RAMMAHÚS FORSNIÐIN Hentug lausn fyrir ferðaþjónustu - VAL UM TVÖ BYGGINGARSTIG - ÞÚ ÁKVEÐUR STÆRÐINA - KEMUR Í TILSNIÐNUM EFNISPÖKKUM Fjölmargir möguleikar Hér eru nokkur dæmi um skipulag húsa* RML 3292 RMM 22 RMM 5393 RMS 6893 RMM 27 RMM 32 RMM 36 RMM 41 RMM 46 RMM 51 RMM 56 RML 10 RML 13 RML 16 RML 19 RMS 53 RMS 59 RMS 65 RMS 71 RMS 78 RMS 84 RMS 90 RML 3292 RMM 22 RMM 5393 RMS 6893 RMM 27 RMM 32 RMM 36 RMM 41 RMM 46 RMM 51 RMM 56 RML 10 RML 13 RML 16 RML 19 RMS 53 RMS 59 RMS 65 RMS 71 RMS 78 RMS 84 RMS 90 RML 329 RM 2 RM 539 RMS 6893 RM 27 RM 32 RM 36 RM 41 RM 46 RM 51 RM 56 RML 10 RML 13 RML 16 RML 19 RMS 53 RMS 59 RMS 65 RMS 71 RMS 78 RMS 84 RMS 90 RML 3292 RMM 22 RMM 5393 RMS 6893 RMM 27 RMM 32 RMM 36 RMM 41 RMM 46 RMM 51 RMM 56 RML 10 RML 13 RML 16 RML 19 RMS 53 RMS 59 RMS 65 RMS 71 RMS 78 RMS 84 RMS 90 Lítil Miðlungs Stór 22 53 27 59 32 65 36 7141 7846 4 51 56 0 3,2 m 5,3 m 6,8 m 13 16 1 1 *stærðir í m2 4 KYNNINGARBLAÐ 2 8 . s e p t e m B e R 2 0 1 7 F I M MT U DAG U ReININGAhús
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.