Fréttablaðið - 28.09.2017, Page 46
2 8 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 F I m m t U D A G U r30 b í l A r ∙ F r É t t A b l A ð I ð
Bílar
Ástralinn Jason Day fór holu í höggi á BMW Championship golfmótinu um daginn
og vann með því lúxuskerruna
BMW M760i, en grunnverð hennar
er 156.700 dollarar. Jason Day ætlar
ekki að eiga bílinn þrátt fyrir að
hafa unnið fyrir honum, heldur gefa
hann til góðgerðarmála og BMW
ætlar reyndar að bæta við 100.000
dollurum sem einnig fara til góð
gerðarmála. Svo vill til að Jason
Day er á mála hjá bílaframleiðand
anum Lexus og er því vart stætt á
því að ferðast um á BMW bíl. Í því
ljósi kemur kannski ekki svo á óvart
að hann skuli gefa bílinn til góð
gerðarmála. BMW M760i er engin
smákerra, en undir húddi hans
lúrir 601 hestafls V12 vél með 6,6
lítra sprengirými. Þessi gríðar öfluga
vél hendir þessum 2,3 tonna bíl í
hundraðið á litlum 3,6 sekúndum.
Bíllinn er fjórhjóladrifinn og með
átta gíra sjálfskiptingu. BMW hefur
haft þann háttinn á að hver sá sem
fer holu í höggi á BMW Champion
ship mótunum á hverju ári fær BMW
bíl í vinning. Það gerðist síðast árið
2013 þegar bandaríski kylfingurinn
Hunter Mahon fór holu í höggi ein
mitt á sömu 17. braut sama vallar
og Jason Day nú og þá fékk Mahon
BMW i3 rafmagnsbíl í verðlaun.
Jason Day gaf BMW
M760i til góðgerðarmála
BMW M760i er 601 hestafls lúxuskerra sem kostar skildinginn. Rá ð st e f n a n C h a r g e Energy Branding verður haldin í Hörpunni í annað sinn 9. og 10. október næstkomandi.
Markmið ráðstefnunnar er að skapa
umræðugrundvöll fyrir orkufyrir
tæki og aðila tengda orku sem hafa
það að markmiði að láta orkufyrir
tæki tengja betur við fólk í gegnum
mörkun (e. branding). Fyrirlesarar
og gestir koma frá stærstu orku
fyrirtækjum í Evrópu, Eurelectric –
samtökum orkufyrirtækja í Evrópu,
Evrópusambandinu auk nokkurra
stórra nafna frá Bandaríkjunum. Þá
mun borgarstjóri Vaasa í Finnlandi
ræða um uppbyggingu borgarinnar
sem vörumerkis í orku og aðilar frá
stórum alþjóðlegum auglýsinga
stofum munu flytja erindi tengd
orkumálum. Eitt þema ráðstefn
unnar snýr að rafbílum og sjálf
bærni í samgöngum. Bílaumboðin
Askja og BL eru samstarfsaðilar ráð
stefnunnar.
Tveir Bretar munu aka
hringinn á rafbílum
Tveir Bretar, þeir Stuart McBain og
Mark Gorecki, munu keyra hring
inn í kringum landið á tveimur
rafbílum vikuna fyrir ráðstefnuna.
Annar þeirra ekur Nissan Leaf frá BL
og hinn ekur Kia Soul EV frá Öskju.
Bílarnir eru óbreyttir og engar vara
rafhlöður verða með í för. ,,Með ferð
inni ætla þeir að sýna fram á að það
er raunhæfur kostur að skipta yfir í
rafmagnsbíl og nota græna orku við
samgöngur,“ segir Friðrik Larsen,
stjórnarformaður ráðstefnunnar.
Friðrik er eigandi Larsen Energy
Branding sem heldur ráðstefnuna.
„Bretarnir komu til Íslands í fyrra
og sögðust þá ætla að koma á ráð
stefnuna það sem eftir væri ævinnar
því þeir voru svo ánægðir með hana.
Þetta eru hugsjónamenn og þeir
voru t.d. fyrstir til að keyra hringinn í
Bretlandi á rafmagnsbíl og ætla næst
að keyra eftir miðbaug. Þeir hlaða
víða um landið m.a. á hótelum og
veitingastöðum. Það er ekkert mál
að komast hringinn á rafmagnsbíl ef
maður skipuleggur sig aðeins fyrir
fram. Bretarnir ætla að sýna þetta og
sanna með ferð sinni.
Mamman með
og breski sendiherrann
Það er gaman að segja frá því að
móðir annars þeirra fer hringinn
með þeim. Hún er 81 árs að aldri og
klár í slaginn. Breski sendiherrann á
Íslandi, Chris Donbavand, mun sitja
í með öðrum þeirra frá Varmahlíð til
Akureyrar og halda þar fund. Hann
er mjög opinn fyrir hugmynda
fræðinni varðandi ráðstefnuna og
rafbíla,“ segir Friðrik. Bretarnir
leggja af stað úr Reykjavík á hádegi á
laugardag. Þeir ætla að keyra hring
inn á átta dögum og koma til baka
daginn fyrir ráðstefnuna. „Við erum
búin að bjóða rafbílaeigendum að
mæta þá og keyra með þeim út úr
bænum. Það væri gaman að fá raf
bílalest til að fylgja þeim úr hlaði.
Við hvetjum líka eigendur raf og
tvinnbíla á Íslandi til að slást í för
með þeim hluta úr leið þeirra um
landið og hjálpa til við að vekja
athygli á því að tíminn er kominn
til að ferðast um á grænni orku,“
segir Friðrik.
Annar ökumannanna, Stuart
McBain, mun halda fyrirlestur á
ráðstefnunni. Friðrik segir að Stuart
muni ekki einungis tala um rafbíla
heldur sjálfbærni í heild sinni á
Íslandi í tengslum við rafvæðingu
samgangna. ,,Það er nákvæmlega
það sem við þurfum hér heima. Sér
í lagi mun hann skora á „range anx
iety“mýtuna, þ.e. að þú komist ekki
á leiðarenda ef þú ert á rafmagns
bíl,“ segir hann. Hægt er að fylgjast
með för þeirra Stuarts og Marks
á samfélagsmiðlum undir myllu
merkinu #chargearoundiceland.
Vekja athygli á
rafbílum í samgöngum
Vikuna fyrir ráðstefnuna munu tveir Bretar aka rafbílum hring-
inn í kringum landið til að vekja athygli á að rafbílar eru raun-
hæfur kostur, meira að segja til að aka hringinn.
Skúli Skúlason, Friðrik Larsen og Jón Trausti Ólafsson brosmildir við Nissan
Leaf og Kia Soul EV rafbílana.
Þeir sem þekkja vel til sportbílasögu Toyota ættu að þekkja bílnöfnin Supra og
Celica vel. Þau eiga það þó sam
eiginlegt að hafa horfið úr fram
leiðslulínu Toyota. Þau gætu samt
bæði birst þar aftur innan tíðar.
Nafnið Supra í formi sportbílsins
sem Toyota er að þróa með BMW
og Celica í formi næstu kynslóðar
sportbílsins GT86 sem í boði hefur
verið hjá Toyota í nokkur ár og var
þróaður í samstarfi við Subaru. Það
er þó ekki alveg víst að svo verði hjá
Toyota í tilfelli Celica nafnsins, en
einnig er möguleiki að framleiddur
verði glænýr coupelaga sportbíll
sem bæri nafnið Celica og að GT86
haldi nafni sínu. Ef svo færi yrði það
minnsti sportbíllinn sem Toyota
byði kaupendum. Hann yrði þá,
líkt og með Celica forðum, fram
hjóladrifinn bíll. Toyota hefur áður
boðað breyttan GT86 sportbíl árið
2019 og það líklega áfram í samstarfi
við Subaru. Hvort bíllinn breytir um
nafn þá og fær hið fornfræga nafn
Celica verður bara að koma í ljós,
en víst er að Celice er enn virtara og
frægara nafn en GT86 og það gæti
einmitt ýtt Toyota til að skipta um
nafn.
Verður Toyota GT86 að Celica?
Toyota GT86 sportbíllinn gæti orðið að Celica.
Hann yrði þá, líkt og
með Celica forðum, fram-
hjóladrifinn bíll.
Hótel – Veisluþjónustur
Gistiheimili – Mötuneyti
Ljúffengt…
… hagkvæmt og fljótlegt
Danco hefur allt til að auðvelda veitingarnar hvort sem er í
veisluna, mötuneytið, kokteilboðið, skólaeldhúsið, alls staðar.
Forréttir, pizzur, smáréttir, forskornar tertur og fleira.
Eingöngu selt til fyrirtækja
Fjölbreytt úrval af matvöru og veisluréttum