Fréttablaðið - 28.09.2017, Qupperneq 60
Urðarhvarfi 4 / 203 Kópavogi
Sími 557 4848 / www.nitro.is
Þarf ekki próf, tryggja eða skrá!
MIKIÐ ÚRVAL AF RAFMAGNSREIÐHJÓLUM
RafmagnsReiDhjól-
Electric system CHASSIS
Frame: Aluminium,Al6061
Front Fork: Aluminium,T40,26”
Head Set: VP-A41AC
Brake: F/R:TEKTRO DISC
BRAKE,MD-M300,TR180/MD-
M300TR-160
DRIVETRAIN
Motor: 8FUN,SWXH2,36V,250W /
350W
Max Speed(KM/H): EU: 25km/h,
Mileage: From 40-60km, depending on
usage & conditions
Crank Set: PROWHEEL,Al6061,-
PRO-E48PP,3/32*48T*170mm
Derailleur Level: SHIMANO,SL-M310
Derailleur: SHIMANO,ARD-TX55D
WHEELSET
Rim: DS75G,26”X4.0
Tire: KENDA K1151 26*4.0
Hub: MODUS/MD-JA165F-DSE-
30%
AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM
HJÓLUM
gæði – þekking – þjónusta
Krókhálsi 1 110 Reykjavík s. 567 8888 www.pmt.is
VAKÚMVÉLAR
Mikið úrval af vakúmvélum
sem henta einstaklingum
og fyrirtækjum
PÖKKUNARVÉLAR - BRETTAVAFNINGSVÉLAR - BINDIVÉLAR
BAKKALOKUNARVÉLAR - FLÆÐIPÖKKUNARVÉLAR
FILMUPÖKKUNARVÉLAR - KASSALOKUNARVÉLAR
FÁÐU TILBOÐ
ára
Starfsmanna-
og munaskápar
www.rymi.is
Hágæða amerísk heilsurúm
sem auðvelt er að elska
Sofðu rótt í alla nótt
Þetta er aðeins meiri fullorðinsplata en fyrri verk. Við unnum hana á aðeins lengri tíma og hún er aðeins lengri – þrettán lög. Uppruna-
lega hugmyndin var að gera hryll-
ings-konseptplötu og við lögðum
upp með það. En ég veit ekki alveg
hvort þetta teljist til konseptplötu,
kannski svona mitt á milli. Það er
allavega mikil uppbygging og end-
urtekning, og í rauninni frásögn, þó
að það sé kannski ekki alveg línuleg
frásögn,“ segir Salka Valsdóttir úr
Cyber en sveitin gefur út plötu þann
13. október – föstudaginn þrettánda
– sem nefnist Horror. Í kvöld frum-
sýna þær svo myndband við lagið
Psycho, en það er jafnframt fyrsti
„singúll“ plötunnar.
„Við vorum dálítið mikið að reyna
að finna hryllinginn í hversdags-
leikanum, í þessum hlutum sem við
gerum á hverjum degi – djamminu,
að vera í sambandi, að vera ekki í
sambandi og aftur sambandi, ekki
sambandi. Við tengjum öll við þetta
en við erum að setja þetta í búning
sem okkur fannst spennandi að
leika okkur með. Hljóðheimarnir
eru miklu meira unnir og útpældir
en þeir hafa verið í fyrri verkefnum.
Við pródúseruðum aðeins meira
sjálfar, ég kom miklu nánar að
öllum hljóðheiminum en ég hef
gert áður.“
Salka er eins og hún segir með
hendurnar á tökkunum á plötunni
en einnig er heill hellingur af gest-
um: Marmari, en hann hefur verið
að gera takta fyrir þær áður, Young
Nazareth úr Sturlu Atlas og fleiru –
en hann pródúserar Psycho, Helgi
Sæmundur úr Úlfur Úlfur kemur að
borðinu, tónskáldið SiGRÚN, Sól-
veig Matthildur úr Kælunni miklu
og fleiri, en hér er einungis talið upp
fólkið sem kemur að tónheiminum.
Rappandi gestir eru Countess
Malaise sem er einmitt gestur í
Psycho, Emmsjé Gauti, Young Karin,
Karó, Geimfarar, Hatari og fleiri.
„Það er svolítið stór hópur af fólki
sem gerði þetta með okkur. Það er
frekar erfitt að gera samheldna
plötu í sándi og textum og sem
flæðir fallega saman þegar maður
vinnur með svona mörgum. Það er
búið að vera mjög skemmtilegt að
reyna það og held að það hafi tekist
vel.“
Salka segir plötuna hafa verið,
að mestu, í vinnslu frá áramótum,
sirka níu mánuði „eins og barn“, eða
síðan þær gáfu út EP plötuna Boys
á miðnætti um áramótin síðustu,
sem Salka segir alls ekki vera langan
tíma þó henni líði eins og þetta hafi
tekið heila eilífið.
Útgáfutónleikarnir verða haldnir
á Húrra þennan sama föstudag og
platan kemur út. Young Karin og
Geisha Cartel hita upp og allir sem
koma fram á plötunni munu mæta
sem gestir – svo úr verður væntan-
lega ein heljarinnar tónlistarveisla.
Sálfræðitími á Aktu taktu
„Þessi vídeóhugmynd kom fyrir
löngu síðan; okkur langaði að búa til
myndband tekið upp á Aktu taktu,
en við erum eiginlega alltaf á Aktu
taktu og mikið af textunum er tekið
upp á rúntinum. Draumurinn er að
fá Cyber-borgara á Aktu taktu. Við
erum að vona að myndbandið verði
rosalega vinsælt og hann verði að
veruleika,“ segir Salka beðin að lýsa
því hvað sé að gerast í myndband-
inu og laginu sem verður frumsýnt
á Prikinu í kvöld.
„Við vorum eiginlega að grafa
það upp sem óþægilegast er við
okkar nærveru og okkar persónur.
Ég greini oft illa hvað er verið að
meina í samskiptum og svara oft
á óviðeigandi hátt. Jóhanna er að
tala um hvað hún verður reið þegar
vinkonur hennar eru að reyna við
stráka sem hún hefði kannski ein-
hvern tímann viljað reyna við, þó að
hún eigi kærasta. Við fórum í raun
yfir hlutina sem okkur þykja óþægi-
legir í hvor annarri – það sem gerir
okkur að „psychopaths“.“
Myndbandið verður frumsýnt á
Prikinu í kvöld klukkan níu.
stefanthor@frettabladid.is
Hryllingurinn í
hversdagsleikanum
Hljómsveitin Cyber gefur út plötuna Horror föstudaginn 13. október.
Platan fjallar um hryllinginn sem við þekkjum öll úr hversdagsleik-
anum. Í kvöld verður svo frumsýnt nýtt myndband við lagið Psycho.
Cyber gefur út plötuna Horror í næsta mánuði en hún fjallar um hrylling hversdagsleikans. Mynd/HrefnA Björg
Nokkrir gestir
á Horror
n Emmsjé
Gauti
n Countess
Malaise
n Young
Nazareth
n SiGRÚN
n Young Karin
n Karó
n Sólveig
Matthildur
n Hatari
DraumuriNN er að
fá Cyber-borgara á
aktu taktu – við erum að
voNa að myNDbaNDið verði
rosalega viNsælt og HaNN
verði að veruleika.
2 8 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 F I m m t U D A G U r44 l í F I ð ∙ F r É t t A b l A ð I ð