Fréttablaðið - 28.09.2017, Qupperneq 62
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Lagið B.O.B.A með JóaPé og Króla er eitt vinsælasta lag Íslands um þessar mundir
en það byggir á fleygum
orðum sem tónlistar-
m a ð u r i n n B u b b i
Morthens lét flakka
í beinni útsendingu
á sínum tíma, árið
2002 nánar tiltekið.
Þá ætlaði Bubbi að
stafa orðið „bomba“
en í miklum ákafa
gleymdist einn bók-
stafur. „Lagið er flott,“
segir Bubbi spurður út í
hvernig honum lítist á lagið B.O.B.A.
og þá staðreynd að mismæli hans
spili stórt hlutverk í laginu. „Þetta
var í beinni box-lýsingu, ég var
búin að tapa mér í æsingi og
henti m-inu út um glugg-
ann. Þannig varð boba-
frasinn til. Gaman að
þessu,“ segir Bubbi.
Þess má geta að
JóiPé og Króli eru
fæddir árið 2000 og
1999 og voru því
mögulega enn þá
að nota snuð þegar
Bubbi gerði tilraun til
að stafa „bomba“ á eftir-
minnilegan hátt. – gha
Bubbi er hrifinn af laginu B.O.B.A.
Bubba þykir lag JóaPé og Króla flott.JóiPé og Króli hafa slegið í gegn.
V ið erum í starthol-unum að opna lista-smiðju í Bankastræti, í húsnæðinu sem hýsti lager herrafata-verslunar Sævars
Karls. Eitt sinn var þetta verslun en
í dag er þetta rekið sem einhvers
konar listasmiðja. Við erum að festa
kaup á þessu húsnæði og breyta því
í athvarf fyrir listamenn sem hafa
verið í ýmist áfengis- eða eiturlyfja-
neyslu,“ segir lögmaðurinn Sævar
Þór Jónsson sem er að koma lista-
smiðjunni á laggirnar ásamt eigin-
manni sínum, lögmanninum Lárusi
Sigurði Lárussyni.
„Hugmyndin er að horfa svolítið
til yngri aldurshópa, allt frá ungl-
ingum upp í fólk í kringum þrítugt.
Svo munum við finna einhverja lista-
menn til að leiðbeina þeim og veita
innblástur.“
Sævar og Lárus stefna á að koma
á samstarfi við meðferðarstofnanir
og finna þannig hæfileikaríkt fólk
sem hefur áhuga á að fá athvarf og
stuðning til að stunda listsköpun.
„Við viljum aðstoða fólk við að
koma sér aftur af stað og þá er gott
að hafa eitthvað fyrir stafni.“
Lárus og Sævar hafa báðir mikinn
áhuga á myndlist og hafa líka fengið
innsýn í heim fíknar og vita hvaða
áhrif hún getur haft. „Það eru stór-
merkilegir hlutir sem þessir einstakl-
ingar geta gert í listinni og margt af
því sem ég hef fengið að kynnast
er mjög áhugavert. Það eru miklir
hæfileikar þarna og ef maður getur
hjálpað einhverjum, þó það væri
ekki nema bara einum, þá er maður
að gera eitthvað gott,“ segir Sævar.
Sævar hefur í gegnum starf sitt
sem lögmaður kynnst ungum ein-
staklingum sem hafa glímt við fíkn
af einhverju tagi. „Ég hef starfað
með þessu fólki og ég hef talað svo-
lítið fyrir málstað yngra fólks sem
glímir við fíkn. Og við Lárus þekkjum
afleiðingarnar af þessu, við erum að
ala upp son saman en móðir hans
fór frá og ástæðuna má að einhverju
leyti rekja til neyslu. Þetta er okkur
mjög hugleikið.“
Ekki næg úrræði til
Spurður nánar út í hverjir það eru
sem eiga möguleika á að fá aðstöðu
í listasmiðjunni segir Sævar: „Fólk
þarf að vera virkt í meðferð eða hafa
lokið meðferð og vera í eftirfylgni.
Edrúmennska er algjört skilyrði og
það að fólk sé að vinna í sjálfu sér.“
Sævar hefur orðið var við að ekki
séu til næg úrræði fyrir þá einstakl-
inga sem eru að koma sér aftur af
stað eftir að hafa farið í meðferð en
hann er viss um að listasmiðja gæti
hjálpað einhverjum við að fá útrás
á réttum stað. „Það er svo mikilvægt
að skapandi einstaklingar sem eru
að koma úr meðferð sjái sköpun
sína gleðja aðra. Það er markmiðið
að fólk vinni í listasmiðjunni í ein-
hvern tíma og svo ljúki fólk veru
sinni í húsnæðinu með listsýningu.
Húsnæðið býður ekki bara upp á að
þar sé unnið að list, heldur líka að
hún sé sýnd.“
gudnyhronn@365.is
Málefni þeirra sem hafa barist við fíknisjúkdóma eru Lárusi og Sævari hugleikin. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
EdrúmEnnskA Er
Algjört skilyrði Og
þAð Að fólk sé Að vinnA í
sjálfu sér.
sem hafa glímt við fíkn
lárus sigurður og sævar þór eru að vinna að því að opna lista-
smiðju fyrir þá sem eru í meðferð vegna áfengis- eða eiturlyfja-
fíknar. Smiðjan er hugsuð sem úrræði fyrir skapandi einstaklinga.
Listasmiðja fyrir þá
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
20.09.17 - 26.09.17
1 2
5 6
7 8
109
43
Með lífið að veði
Yeonmi Park
Gagn og gaman
Helgi E. / Ísak J.
Stúlkan sem gat ekki fyrigefið
David Lagercrantz
Kanínufangarinn
Lars Kepler
Verstu börn í heimi
David Walliams
Kalak
Kim Leine
Hringiðan
Frode Granhus
Iceland in a Bag
Ýmsir höfundar
Umsátur
Robert Marvin
Independent People
Halldór Laxness
2 8 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 F I m m t U D A G U r46 l í F I ð ∙ F r É t t A b l A ð I ð