Fréttablaðið - 28.09.2017, Side 64

Fréttablaðið - 28.09.2017, Side 64
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja mest lesna dagblað landsins. ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ. Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu. Nýtt Nýtt GRILL- MATURINN ELSKAR Nú tvær nýjar tegundir! Ódý rt 469 kr.pk. Avocado í neti, 750 g, Kólumbía OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN Í ICELAND ENGIHJALLA, VESTURBERGI, ARNARBAKKA, GLÆSIBÆ OG STAÐARBERGI Tómasar Þórs Þórðarsonar BAkþAnkAR Maður tekur alls konar ákvarðanir í þessu lífi. Sumar eru góðar, sumar eru slæmar og sumar eru hvort tveggja. Fyrir mánuði missti ég eiginlega út úr mér við konuna að ég ætlaði ekki að borða kolvetni fram að jólum. Í einhverri þrjósku ákvað ég svo að viðhalda því og hef ég því ekki lagt mér til munns neitt sem inniheldur þann draum sem kolvetni eru. Þetta er náttúrlega það leiðin- legasta sem ég hef gert þó svo að árangurinn sé sjáanlegur. Það er voða gaman og allt það, en hafið þið verið án kartaflna??! Vitið þið hvað þetta undraverða rótargræn- meti er gott, sama í hvaða mynd það er? Þið kunnið ekki að meta þessa hógværu fegurð sem kart- aflan er fyrr en þið kveðjið hana í mánuð eða svo. Mig dreymir dansandi bakaðar kartöflur í rigningu sem er sýrður rjómi og graslaukur. Hoppandi glaðar franskar leika um huga mér á meðan ég borða enn eitt kjúkl- ingasalatið. Beljur verða öfund- sjúkar yfir öllu grasinu sem ég er búinn að borða síðasta mánuðinn. Eins og þetta kolvetnislausa líf sé ekki nógu erfitt þá er nú búið að boða til kosninga. Frábært. Mánuður af fésbókar-statusum um að þessi flokkur sé drasl og þeir sem kjósa hann séu heimskir. Mánuður af upp til hópa glöt- uðum pólitíkusum að ráðast á hver annan í beinni útsendingu í staðinn fyrir að tala um málefnin og fólkið í landinu. Fólkið sem þeir eiga að þjóna. Ég mun allavega fylgjast vel með því sem stjórnmálamennirnir segja um íslenska garðyrkjubænd- ur og hvernig eigi að vernda það ágæta fólk. Það er nefnilega eins gott að það verði til kartöflur fyrir mig þegar jólin banka á dyrnar. Kosningar og kartöfluskortur

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.