Morgunblaðið - 12.09.2019, Síða 10

Morgunblaðið - 12.09.2019, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2019 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Ný bensínstöð Olís í Vík í Mýrdal, undir merkjum ÓB, verður opnuð í næstu viku. Þetta er í frásögur fær- andi einkum sak- ir þess að þetta er þriðja bensín- stöðin í þorpinu, þar sem búa um 450 manns. Nú verða öll íslensku olíufélögin þrjú, Olís, N1 og Skelj- ungur, með starf- semi í þorpinu og eru stöðvar þeirra allra nánast á sama blett- inum. Heitur reitur Vík er einn fjölfarnasti ferða- mannastaður landsins og því sjá olíufélögin sér hag í að vera með starfsemi í byggðarlaginu. „Vík í Mýrdal er heitur reitur þar sem við sjáum ýmis tækifæri. Við eignuð- umst lóð þar fyrir mörgum árum en svo hefur dregist annarra verkefna vegna að fara í framkvæmdir,“ segir Jón Ólafur Halldórsson, forstjóri Olís. Við bensínafgreiðsluna nýju hefur Olís látið reisa þjónustuskála eða verslunarhús. Sú aðstaða verður leigð út til ferðaþjónustufyrirtækis- ins Kötlutrack, sem þar verður með afgreiðslu sína og veitingasölu. Einkabíllinn er nauðsyn Athygli vekur að á sama tíma og ný bensínstöð er opnuð í Vík í Mýr- dal á að fækka þeim í Reykjavík. „Í dreifbýlinu er einkabíllinn nauðsynlegur og umferð ferðafólks hér er mikil. Í Reykjavík er hins vegar verið að efla hjólreiðar og al- menningssamgöngur með tilliti til orkuskipta í samgöngum,“ segir Einar Freyr Elínarson, oddviti Mýr- dalshrepps. „Að fá fleiri bensín- stöðvar er ekki markmið hér í Mýr- dal, en allt þetta styrkir þjónustuna og eflir samkeppni.“ Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Olís Nýja stöðin verður rekin undir merkjum ÓB. Ferðaþjónustufyrirtæki á staðnum mun reka verslun við stöðina. Þrjár stöðvar á sama stað  Öll olíufélögin nú með starfsemi í Vík í Mýrdal  Tæki- færi, segir forstjóri Olís  Eflir samkeppni, að sögn oddvita Orkan Sjálfsafgreiðslustöð sem er starfrækt á vegum Skeljungs. N1 Dælur framan við Víkurskála. Jón Ólafur Halldórsson áður en hún varð borgarfulltrúi hefði hún starfað sem landslagsarkítekt, við hönnun, skipu- lag og verkefnis- stjórn hjá Yrki arktitektum. Þegar skipulags- vinna sem Yrki vann að hafi verið til umfjöllunar í ráðinu hafi hún talið eðlilegt að víkja af fundi. „Ég vék svona oft af fundum ráðsins á þessum árum, þ.e. 2017 og 2018, vegna þess að sú stofa sem ég var að vinna hjá vann að nokkrum skipulags- verkefnum í Reykjavík og það var mitt mat að það væri betra að víkja af fund- um, þótt ég hefði engra persónulegra hagsmuna að gæta, þegar mál sem Yrki arkitektar hefði komið að voru til umfjöllunar eða afgreiðslu í ráðinu,“ sagði Sigurborg Ósk. Sigurborg segir að ef til umfjöllunar í ráðinu séu mál frá fyrra kjörtímabili víki hún áfram af fundum en ef um ný verkefni sé að ræða, sem tengist henni ekki á neinn hátt, sé engin ástæða fyrir hana til þess að víkja af fundi. Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, borgar- fulltrúi Pírata og núverandi formaður skipulags- og samgönguráðs Reykja- víkurborgar, vék á árunum 2017 og 2018 í einhverja tugi skipta af fundi ráðsins, sem hét reyndar umhverfis- og skipulagsráð, á síðasta kjörtíma- bili. Lengst af því kjörtímabili var Sig- urborg áheyrnarfulltrúi í ráðinu, en varð svo formaður þess undir nýju nafni á þessu kjörtímabili. Ekki fengust nákvæmar upplýsing- ar um það hjá umhverfis- og skipu- lagssviði Reykjavíkurborgar hversu oft Sigurborg hefði vikið af fundi, þar sem ekki er sérstaklega haldið utan um slíkt að sögn Glóeyjar Helgu- dóttur Finnsdóttur, skrifstofustjóra sviðsins. Mögulegir hagsmunaárekstrar Sigurborg Ósk sagði í samtali við Morgunblaðið að ástæður þess að hún vék svo oft af fundi hefðu verið þær að hún taldi að um hagsmunaárekstra hefði getað verið að ræða. Hún hefði því hugsanlega verið vanhæf til þess að taka þátt í umfjöllun ráðsins, því Vék mjög oft af fundum ráðsins  Taldi sig vera mögulega vanhæfa Sigurborg Ósk Haraldsdóttir Ríkisendurskoðun hefur ákveðið að gera stjórnsýsluúttekt á embætti ríkislögreglustjóra, sem fagnar ákvörðuninni, að því er fram kemur í tilkynningu frá ríkislögreglu- stjóra. „Einnig er því fagnað að fyrir- huguð úttekt nái til embættisins í heild sinni einkum í ljósi þeirra fjöl- mörgu og umfangsmiklu verkefna sem hafa verið færð til embættisins á síðustu árum,“ segir í tilkynning- unni sem birt var á vefsíðu embætt- isins í gærkvöldi. Undanfarna daga hafa fjölmörg lögregluembætti í landinu lýst yfir stuðningi við stjórn Landssam- bands lögreglumanna (LL), sem hefur sagt að úttekt á embætti ríkislögreglustjóra sé löngu tíma- bær og að lengi hafi ríkt mikil óánægja meðal lögreglumanna með störf yfirstjórnar embætttisins. Fyrr í vikunni gerði ríkislög- reglustjóri athugasemdir við álykt- un LL. Meðal athugasemdanna var m.a. að stjórn LL hefði ekki haft neitt samband við embætti ríkislög- reglustjóra til að koma umkvört- unum á framfæri eða viðra áhyggj- ur sínar af stöðu mála. Þá teldi ríkislögreglustjóri tíma- bært að hugað yrði að framtíðar- skipan lögreglumála í landinu. Úttekt á embætti ríkislögreglustjóra

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.