Morgunblaðið - 12.09.2019, Síða 11
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2019
Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700
Opið: 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga www.alno.is
Buxur
6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
kr. 7.900
Str. 36-52 • Margir litir
Skoðið laxdal.is
Skipholti 29b • S. 551 4422
NÝJAR
HAUSTLÍNUR
Í LAXDAL
Þann 12. september gefur Pósturinn út fjögur frímerki
og eina smáörk. Efni frímerkjanna er tileinkað 200 ára
minningu Jóns Árnasonar þjóðsagnasafnara, flugi á
Íslandi 100 ára og Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga
100 ára. Einnig kemur út Sepac-frímerki þar sem þemað
er gömul íbúðarhús og smáörk tileinkuð Degi íslenskrar
náttúru, þann 16. september 2019.
Fyrstadagsumslög fást á helstu pósthúsum.
Einnig er hægt að panta þau hjá
Frímerkjasölunni. Sími: 580 1050.
Netfang: stamps@stamps.is
Heimasíða: www.stamps.is
facebook.com/icelandicstamps
Safnaðu litlum listaverkum
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna
Netverslun á www.belladonna.is
Str.
38-58
Nýjar vörur í hverri viku
Í gær hófust fundir utanríkisráð-
herra Norðurlandaríkjanna og
munu þeir verða í Borgarnesi í dag
og á morgun. Guðlaugur Þór Þórð-
arson utanríkisráðherra býður til
fundanna þar sem Ísland gegnir for-
mennsku í utanríkismálasamstarfi
ríkjanna.
Meðal þess sem rætt var um í gær
var tvíhliða skýrsla um framkvæmd
tillagna úr svokallaðri Stoltenberg-
skýrslu frá 2009 sem fjallar um sam-
starf Norðurlandanna á sviði ör-
yggis- og varnarmála. Alþjóða- og
öryggismál í víðara samhengi, mál-
efni norðurslóða og Evrópumál voru
einnig rædd á fundi ráðherranna.
Sérstaklega var rætt um með hvaða
hætti standa mætti vörð um norræn
gildi og styðja stöðu réttarríkisins,
lýðræðis og mannréttinda.
Guðlaugur Þór átti einnig tvíhliða
fund með Pekka Haavisto, utan-
ríkisráðherra Finnlands, þar sem
þeir ræddu m.a. norðurslóðamál og
öryggismál. Þá funduðu Guðlaugur
Þór og Jeppe Kofod, utanríkis-
ráðherra Danmerkur, þar sem m.a.
var rætt um samstarf á norður-
slóðum og áherslur Norðurlanda-
ríkjanna á vettvangi mannréttinda-
ráðs Sameinuðu þjóðanna. Þeir
Guðlaugur Þór og Kofod undirrit-
uðu tvíhliða samning milli Íslands og
Danmerkur um fyrirsvar í vega-
bréfsmálum.
Í dag fer svo fram fram fundur
utanríkisráðherra Norðurlandaríkj-
anna og Eystrasaltsríkjanna.
Norrænir utanríkisráðherrar funda
Vala Pálsdóttir, formaður Lands-
sambands sjálfstæðiskvenna, og
Eyþór Arnalds, oddviti Sjálf-
stæðisflokksins í borgarstjórn
Reykjavíkur, lýstu því bæði yfir í
gær að þau hygðust ekki gefa
kost á sér í embætti ritara Sjálf-
stæðisflokksins. Bæði höfðu sagst
vera að hugsa málið og að margir
hefðu hvatt þau til framboðsins.
Í færslu á Facebook-síðu sinni
skrifaði Vala að hún hefði fengið
hvatningu víða að til að bjóða sig
fram og að hún hefði átt
skemmtileg samtöl vítt og breitt
um landið um stöðu stjórnmála
og Sjálfstæðisflokksins. Að vel
ígrunduðu máli hefði hún ákveðið
að halda áfram á þeirri braut sem
hún hefði markað með Lands-
sambandi sjálfstæðiskvenna.
Eyþór sagði á Facebook-síðu
sinni að hann hefði fengið mikla
hvatningu og að hann væri þakk-
látur fyrir það. Embætti ritara
Sjálfstæðisflokksins krefðist fullr-
ar einbeitingar þess sem því
sinnti og að hann teldi að það
gagnaðist borgarbúum best að
hann einbeitti sér að borgar-
málunum.
„Ég vona að nýjum ritara
auðnist að sameina sjálfstæðis-
menn um allt land þannig að
flokkurinn blómstri sem aldrei
fyrr,“ skrifaði Eyþór í færslu
sinni.
Vala og
Eyþór
ekki í rit-
arann