Morgunblaðið - 12.09.2019, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 12.09.2019, Blaðsíða 14
14 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2019 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Þetta verður maraþon hjá mér, ætliþað taki ekki um tvo tíma. Þettaverður afslappað og fólk getur kom-ið og farið, hlustað á brot, enginn þarf að staldra við í tvo tíma frekar en hann vill. Ég tek það að mér,“ segir Rósa Jóhann- esdóttir kvæðakona og fiðluleikari sem ætlar að kveða Disneyrímur í heild sinni á kaffi- húsinu Stofunni í Reykjavík nk. laugardag. Það gerir hún í tilefni af 90 ára afmæli Kvæðamannafélagsins Iðunnar, en Rósa læt- ur það ekki duga því hún ætlar á afmælishá- tíðinni í Iðnó á sunnudeginum að kveða Óð til Iðunnar, sem maður hennar, Helgi Zimsen, hefur samið sérstaklega í tilefni afmælisins. „Þar mun ég líka stjórna hópi söng- elskra ungmenna sem ætlar að kveða Snúllu- rímur, glænýjar rímur eftir Ragnar Inga Aðalsteinsson. Við ætlum að leika okkur að því að vaða yfir í hvert kvæðalagið á fætur öðru, spinna réttu kvæðalögin við ólíkt við- fangsefni textans. Þetta eru tólf krakkar á aldrinum sjö til tuttugu ára og þrjú þeirra eru mín eigin börn, Jóhannes Jökull sem er sjö ára og yngstur í hópnum og dætur mínar Gréta Petrína 10 ára og Iðunn 13 ára. Þau eru alvön að kveða en hin þekktu þetta ekk- ert og þeim finnst slaufurnar og skrautið í kvæðalögunum svolítið skrýtin og voru feim- in að hella sér í þau óvenjulegheit, enda er það heilmikil þjálfun.“ Hann var hneykslaður á að ég þekkti ekki eina einustu íslenska rímu Rósa kynntist kveðskap þegar hún var ung að árum. „Ég var tvítug þegar ég fór í framhalds- nám í tónlist og fiðluleik til Þýskalands, en þá var Steindór bróðir minn Andersen for- maður Kvæðamannafélagsins Iðunnar. Hann hringdi í mig og spurði hví ég væri að hunsk- ast til útlanda í tónlistarnám þegar til væru á Íslandi rímur sem ég væri ekkert búin að læra um. Hann var hneykslaður á mér að þekkja ekki eina einustu íslenska rímu. Þannig brýndi hann mig til dáða og sendi mér út til Þýskalands spólu og bað mig að spila inn fyrir sig fjölmörg kvæðalög. Sem ég gerði. Þá komst ég á bragðið,“ segir Rósa, sem fluttist heim 1997 og fór að venja komur sínar á fundi hjá kvæðamannafélaginu þar sem Steindór bað hana að spila kvæðalög á fiðlu. „Mörgum áratugum fyrr höfðu komið fiðluleikarar á kvæðamannafund en þeim var hent út. Slíkt spilerí þótti alveg ómögulegt, rímur átti að flytja einvörðungu með fagurri röddu. Steindór sagði mér að mæta með fiðl- una og við kæmumst svo að því hvort mér yrði hent út. Þetta gekk fjarska vel, mér var fagnað og upp frá þessu var farið að kveða rímur við undirleik hvers konar hljóðfæra. Steindór var forgangsmaður í því að koma með hljóðfæri inn í rímnahefðina, hann taldi rímur vera eins og hvert annað þjóðlag; fal- legar melódíur sem hljóðfærin ættu að kynn- ast,“ segir Rósa sem fór að mæta reglulega á fundi hjá Kvæðamannafélaginu Iðunni og lærði að kveða, sem reyndist örlagaríkt því á slíkum fundum kynntist Rósa eiginmanni sín- um Helga Zimsen hagyrðingi. Nú eiga þau saman þrjú börn, sem öll hafa kveðið frá blautu barnsbeini og koma reglulega fram og kveða undir nafninu Tríó Zimsen. „Við flökkum um með börnin og flytjum kveðskap,“ segir Rósa sem er með barna- kvæðalagaæfingu tvisvar á vetri hjá Kvæða- mannafélaginu Iðunni, en slík æfing er öllum opin og er oftast í nóvember og mars. Fyrir áhugasama er hægt að fylgjast með hvenær slík æfing verður næst á vefsíðunni rimur.is Steindór bróðir brýndi mig til dáða Þjóðleg Rósa með börnunum sínum þremur, Iðunni, Jóhannesi Jökli og Grétu Petrínu. 1499 kr.kg Lambalæri af nýslátruðu 2799 kr.kg Lambahryggur af nýslátruðu ... hjá okkur í d a g H já bó nda í gæ r ...Bændur vikunnar Lambakjöt vikunnar kemur frá Vogum í Mývatnssveit 999 kr.kg Lambasúpukjöt af nýslátruðu Afgreiðslutímar á www.kronan.is Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og/eða myndabrengl. Dagur rímnalagsins verður haldinn hátíðleg- ur í fyrsta skiptið á afmælisdegi Kvæða- mannafélagsins Iðunnar og verður hann á almanaksárinu framvegis hinn 15. septem- ber. Rímnahefðin á sér merka sögu í íslenskri menningu og merkisberar þeirrar hefðar voru kvæðamenn, skáld, hagyrðingar, hand- ritaskrifarar, bókaútgefendur og unnendur íslenskrar ljóðlistar um aldaraðir. Rímurnar eru séríslensk tegund langra söguljóða og lögin sem kveðin eru við þau eiga einnig sína sérstöðu. Með stofnun dags rímnalagsins er því ekki einungis verið að efla íslenska tón- listarhefð, heldur einnig íslenska tungu. Í tilefni af stofnun dags rímnalagsins hafa Bára Grímsdóttir og Ragnar Ingi Aðalsteins- son samið námsefni fyrir tónmennt, íslensku og samfélagsfræði grunnskóla og nefnist það Í geislum sólarlagsins. Í námsefninu eru fróðleiksmolar um kveðskaparhefðina, kvæðamenn og skáld, 10 stemmur úr safni Kvæðamannafélagsins Iðunnar á nótum og hljóðritum, gömul og ný kvæði ort undir rímnaháttum, brot úr eldri rímum, Stúllu- rímur, nýr rímnaflokkur fyrir börn sem sér- staklega er saminn fyrir þessa útgáfu. Þar er einnig kafli um bragfræði þar sem eru orða- vísur eða æfingar til að setja saman vísur. Námsefnið má finna á heimasíðu félagsins rimur.is. Bára og Ragnar Ingi héldu námskeið í maí fyrir grunnskólakennara til að kynna náms- efnið og hafa nokkrir skólar þegar ákveðið að taka þátt í degi rímnalagsins í sínum skólum. Rímnahefðin á sér merka sögu DAGUR RÍMNALAGSINS Eftirtaldir viðburðir verða haldnir af til- efni afmælis Kvæðamannafélagsins Ið- unnar og eru opnir öllum: Laugardagur 14. september Rímnamaraþon: Kvæðamenn úr Iðunni kveða rímur á þremur stöðum í miðbæ Reykjavíkur. Kvæðamennirnir munu flytja heilan rímnaflokk, sem tekur um tvo tíma: Rósa Þorsteinsdóttir kvæðakona kveður í Tólf tónum, Skólavörðustíg 15, kl. 11. Rósa Jóhannesdóttir kvæðakona kveður í kaffi- húsinu Stofunni, Vesturgötu 3, kl. 13. Pét- ur Húni Björnsson kvæðamaður kveður í Borgarbókasafni í Grófinni kl. 14. Sunnudagur 15. september Á kvæðaslóð: Söguganga hefst við Hallgrímskirkju kl. 11 árdegis og lýkur við Iðnó um klst. síðar. Gengið verður um götur Þingholtanna og stiklað á stóru í sögu Kvæðamannafélagsins Iðunnar. Áð verður við staði sem tengjast sögu fé- lagsins og stemmur og vísur rifjaðar upp og kveðnar. Pétur Húni Björnsson leiðir gönguna. Félagar Iðunnar verða með hátíðardag- skrá kl. 15 í Iðnó með góðum gestum, kveðskap og tónlistaratriðum. Þar verða Stúllurímur m.a. frumfluttar af ung- mennakór. Fjölbreytt dag- skrá um helgina STÓRAFMÆLI IÐUNNAR Kvæðamannafélagið Iðunn heldur upp á 90 ára afmæli um helgina og býður m.a. upp á sögugöngu, rímnamaraþon og hátíðardagskrá þar sem Snúllurímur verða kveðnar í fyrsta sinn. Rósa Jóhannes- dóttir og börnin hennar eru öll mikið kvæðafólk og leggja sitt af mörkum við að halda hefðinni lifandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.