Morgunblaðið - 12.09.2019, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2019
Samskipti ehf. - Söluferli
Íslandspóstur ohf. býður til sölu
allt hlutafé í dótturfélagi sínu Samskiptum ehf.
Samskipti er öflugt þjónustufyrirtæki á sviði
prentlausna sem hefur veitt einstaklingum,
fyrirtækjum og stofnunum alhliða prentþjónustu
síðan 1978. Fyrirtækið hefur verið leiðandi á sínu
sviði og leggur áherslu á faglega og persónulega
þjónustu.
Til að nálgast frekari upplýsingar og gögn eru
áhugsamir bjóðendur beðnir um að hafa
samband við Deloitte ehf., sem er ráðgjafi
Íslandspósts í söluferlinu, með tölvupósti á
netfangið samskipti@deloitte.is.
Frestur til að skila inn óskuldbindandi tilboðum
er til klukkan 16:00 þann 10. október 2019.
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Nú styttist í að hinn nýi og öflugi
dráttarbátur Magni verði afhentur
Faxaflóahöfnum. Hans bíður síðan
löng og ströng sigling frá Víetnam til
Reykjavíkur.
Smíðin gengur vel og er á lokastigi.
Báturinn er smíðaður í Hi Phong í
Víetnam. Skipasmíðastöðin Damen
Shipyards í Hol-
landi smíðar bát-
inn, en hún rekur
skipasmíðastöð í
Víetnam. Reiknað
er með að bátur-
inn verði klár um
næstu mánaða-
mót, nánar til-
tekið 4. október,
samkvæmt upp-
lýsingum Gísla
Jóhanns Hallssonar, yfirhafnsögu-
manns hjá Faxaflóahöfnum.
„Dagana 8. til 19. september fara
fram allsherjarprófanir á sjó þar sem
allur búnaður bátsins verður próf-
aður og togprufa fer fram. Eftir það
verður tíminn til mánaðamóta not-
aður til að laga hnökra sem upp
kunna að koma og báturinn þrifinn
hátt og lágt,“ segir Gísli Jóhann.
Að því loknu er stefnt að því að
sigla bátnum heim, en Damen sér um
að manna bátinn og stefnir að því að
afhenda hann í Reykjavík um miðjan
janúar 2020. Áætlað er að siglingin
taki 60 daga með stoppum en leiðin er
áætluð 10.350 sjómílur, eins og sjá má
á meðfylgjandi korti.
Gísli Jóhann, Júlíus Víðir Guðna-
son skipstjóri og Þórarinn Pálsson
vélstjóri eru í Víetnam og fylgjast
með lokametrunum. Þeir verða ytra
fram yfir prófanir og frágang.
Hinn nýi dráttarbátur er 32 metra
langur og 12 metra breiður. Hann er
með tvær 2.025 kW aðalvélar (saman-
lagt 6.772 hestöfl). Togkraftur er
sagður verða 85 tonn fram og 80 aft-
ur. Er það helmingi meiri togkraftur
en núverandi Magni hefur og sá sami
og samanlagt allra fjögurra núver-
andi báta Faxaflóahafna.
Ákveðið var að hinn nýi bátur fengi
nafnið Magni. „Magni hefur verið öfl-
ugasti báturinn okkar frá því að elstu
menn muna og ákveðið var að halda í
þá hefð. Núverandi Magni verður
endurskírður og mun heita Haki,“
segir Gísli Jóhann.
Stjórn Faxaflóahafna hefur haft til
skoðunar um nokkra hríð að láta
smíða öflugri dráttarbát en hafnirnar
hafa nú til umráða. Komum risastórra
skemmtiferðaskipa hefur fjölgað mik-
ið á undanförnum árum og þau
stærstu eru yfir 150 þúsund brúttó-
tonn að stærð. Þá var einnig horft til
þess að Eimskip er að láta smíða stór
og öflug vöruflutningaskip í Kína.
Smíði bátsins var boðin út í fyrra og
voru tilboð opnuð í nóvember sl. Alls
bárust 15 tilboð frá átta skipasmíða-
stöðvum og var tilboði Damen Ship-
yards að upphæð jafnvirði 1.040 millj-
óna tekið.
Nýr Magni siglir 10 þúsund mílur
Smíði á nýjum dráttarbáti á lokastigi í Víetnam Væntanlegur til Reykjavíkur um miðjan janúar
Ljósmynd/Gísli Jóhann Hallsson
Nýr Magni Báturinn er mjög nýtískulegur. Hann er væntanlegur til Reykjavíkur í byrjun næsta árs.
Heimild: Faxafl óahafnir
Reykjavík
Hai Phong
Indlandshaf
Kyrrahaf
Atlantshaf
Súesskurðurinn Gíbraltar-
sund
Áætlað er að siglingin taki
60 daga með stoppum en
leiðin er um 10.350 sjómílur
Báturinn er smíðaður í
Hai Phong í Víetnam á
vegum hollensku skipa-
smíðastöðvarinnar Damen
Siglingin heim frá Hai Phong
Kraftur Nýi Magni er með mjög öflugan togbúnað.
Togkraftur er tvöfaldur miðað við gamla Magna.
Gísli Jóhann
Hallsson