Morgunblaðið - 12.09.2019, Page 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2019
Opið virka daga 10.00 - 18.15 laugardaga 11.00 - 14.00 | Gnoðarvogi 44, 104 Reykjavík | sími: 588 8686
Gómsætir og girnilegir réttir
í fiskborði beint í ofninn
Þorskhnakkar | Glæný lúða | Klausturbleikja
Glæný línuýsa | Nýlöguð humarsúpa
hólum er gömul friðuð rétt sem
áhugi er á að lagfæra í samvinnu
við þjóðgarðinn.
Eggert hefur einnig áhuga á að
sögu staðarins verði gerð skil með
sögusýningu í húsinu og biður fólk
að senda ljósmyndir og sögur.
Vinir Skógarhóla
LH býður fólki sem vill leggja
þessu máli lið að skrá sig sem vini
Skógarhóla á vef sínum, lhhestar.is.
Þá hefur verið boðaður fundur til
að fara yfir málin í Íþróttamiðstöð-
inni í Laugardal 17. þessa mán-
aðar.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Landssamband hestamannafélaga
(LH) hefur áhuga á að bæta að-
stöðuna á áningarstaðnum í
Skógarhólum á Þingvöllum. Óskað
er eftir sjálfboðaliðum til að koma
að skipulagningu og framkvæmd
verksins.
„Við fengum góðan stuðning frá
fyrirtækjum á þessu ári og nokkrir
lögðu hendur á plóg. Það komu fáir
í sumar en unnu mikið en betra er
að fá marga sem vinna í styttri
tíma,“ segir Eggert Hjartarson,
stjórnarmaður í LH.
Liggur vel við reiðleiðum
Fyrsta landsmót hestamanna var
haldið á Þingvöllum árið 1950.
Síðar var útbúinn mótsstaður í
Skógarhólum og varð hann helsti
landsmótsstaður hestamanna til
ársins 1978. Síðan hefur LH haft
þar aðstöðu sem notuð hefur verið
sem áningarstaður, einkum fyrir
hesta og hestamenn. Í húsinu er
gistirými fyrir 30 manns, eldhús og
matsalur, salerni og sturtur og
hnakkageymsla. Einnig er beitar-
hólf á landinu sem LH hefur til af-
nota.
„Við viljum auka nýtingu á að-
stöðunni. Þetta er þvílík perla í
náttúru Íslands og liggur vel við
góðum reiðleiðum,“ segir Eggert.
Stærsta verkefnið í sumar var að
endurnýja vatnslagnir í beitarhólfin
og laga girðingar og húsið sjálft.
„Það er ærið verkefni framundan.
Lagfæra þarf húsið, meðal annars
að einangra matsalinn og gera vist-
legri. Svo þarf að halda áfram að
laga húsið að utanverðu og stækka
beitarhólfin. Þá þarf að koma upp
flokkun á sorpi og finna leiðir til að
spara orku til að draga úr raf-
magnskostnaði,“ segir Eggert en
tekur fram að hann vilji fá fólk til
liðs við sig til að ákvarða hvað best
sé að gera fyrst og hvernig best sé
að standa að málum. Það verði ekki
allt gert á einu sumri. Í Skógar-
Ljósmynd/Eggert Hjartarson
Skógarhólar Aðstöðuhúsið hefur verið lagfært en þarfnast meiri viðgerða. Að þeim verður unnið næstu árin.
Safna liði til að bæta aðstöðu í Skógarhólum
Áhugi á að
koma upp sýningu
um sögu áningar-
staðarins
Inni Einangra þarf þak salarins og gera húsið hlýlegra.