Morgunblaðið - 12.09.2019, Side 25
FRÉTTIR 25Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2019
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Mér líkar þetta ágætlega. Vinnu-
dagarnir eru langir, eins og á sjón-
um, og verkefnið tiltölulega afmark-
að eins og þar. Ég er skipstjóri hér,
eins og á sjónum,“ segir Jóhann
Magnússon, skipstjóri og kaup-
maður í versluninni Albínu á Pat-
reksfirði.
Í Albínu er alhliða þjónusta við
bragðlauka íbúanna. Þar er bakarí,
ísbúð, sjoppa, grill í hádeginu og á
kvöldin og þar eru bakaðar pítsur og
steiktir hamborgarar. Þá er í versl-
uninni úrval matvara svo fólk geti
bjargað sér, eins og kaupmaðurinn
tekur til orða. „Fjölbreytnin er okk-
ar leið til að reka þessa þjónustu í fá-
menninu,“ segir hann.
Tvöfaldast á sumrin
„Þetta er endalaust hark. Það eru
svo miklar sveiflur á milli ferða-
mannatímans og vetrarins. Veltan
minnkar um meira en helming á vet-
urna þegar við erum bara 730 íbúar
eftir á staðnum. Það eru ekki aðeins
ferðamennirnir sem bætast við á
sumrin því íbúarnir gera betur við
sig á þeim tíma,“ segir Jóhann kaup-
maður.
Íbúum á Patreksfirði hefur fjölg-
að vegna aukinna umsvifa fiskeldis-
ins. Það eykur viðskiptin og fyrir-
tækin sjálf eru einnig viðskiptavinir
hjá Albínu. „Ég efast um að það væri
rekstrargrundvöllur fyrir þessari
verslun ef fiskeldið hefði ekki komið
til,“ segir Jóhann.
„Allt annað líf“
Hann telur einnig að samfélagið á
Patreksfirði sé heilbrigðara en áður
var. Nýja fólkið sé fjölskyldufólk, ef
ekki íslenskt þá pólskt fjölskyldu-
fólk. Það skapi öðruvísi stemningu í
þorpinu en þegar atvinnulífið grund-
vallaðist á einhleypingum sem komu
á vertíð og bjuggu í verbúðum. Nú
sé fasteignaverð á uppleið og fólk
sjái tilgang í því að halda við húsum
sínum. „Þetta er allt annað líf,“ segir
Jóhann.
Þau hjónin, Jóhann og Ingunn
Jónsdóttir, keyptu verslunina fyrir
tæpum tveimur árum. Hann hafði
starfað sem skipstjóri í 22 ár og unn-
ið hjá fiskeldisfyrirtækjum um tíma,
eftir að þau fluttu aftur heim. Ræt-
urnar eru á Patreksfirði.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Gerðu svo vel Patreksfirðingar borða mikið af pítsu. Jóhann Magnússon
selur oft pítsur eða deig í annað hvert hús á staðnum.
Skipstjórinn á bak
við búðarborðið
Fjölbreytni nauðsynleg í fámenninu
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Þetta verður bara venjuleg bjór-
hátíð nema hún er haldin inni í
gróðurhúsi. Það er reyndar kannski
ekkert venjulegt við það,“ segir
Elvar Þrastarson, einn eigenda Öl-
verks í Hveragerði.
Elvar og hans fólk undirbúa nú
mikla bjórhátíð laugardaginn 5. októ-
ber næstkomandi í bænum. Hátíðin
verður haldin í gróðurhúsi í næstu
götu við Ölverk. Dagsetningin er
engin tilviljun því þennan dag verða
tvö ár liðin síðan fyrsti bjór Ölverks
var seldur. Síðan þá hefur staðurinn
skapað sér nafn sem frábær við-
komustaður fyrir þá sem kunna að
meta eldbakaðar pítsur og hand-
verksbjór.
Elvar segir í samtali við Morgun-
blaðið að fyrri hluti hátíðarinnar
verði með þeim hætti að milli klukk-
an 16 og 19 geti gestir sem keypt hafa
miða gengið á milli kynningarbása
frá íslenskum brugghúsum og fengið
að smakka bjór þeirra. Eftir það taki
við tónlistardagskrá og um kvöldið sé
öllum frjálst að líta inn og þá verður
seldur bjór frá Ölverki. Segir Elvar
að dagskráin taki mið af því að fólk
geti tekið strætó úr Reykjavík og aft-
ur heim að henni lokinni.
„Við erum búin að bjóða öllum
bjórframleiðendum á Íslandi að
koma og það eru þegar 10-15 stað-
festir. Einhverjir eiga eflaust eftir að
bætast við,“ segir Elvar. Meðal
þeirra sem staðfest hafa komu sína
eru Malbygg, Jón ríki, The Brothers
Brewery og RVK Brewing.
„Það er gaman að sjá hvað Ísland
er orðið öflugt í bjórgerð og á hátíð-
inni getur fólk smakkað alla vega
þrjátíu bjóra. Fólk kemur ekki fýlu-
ferð hingað,“ segir Elvar.
Bjórhátíð í gróður-
húsi í Hveragerði
Ölverk og fjöldi
brugghúsa kynna
framleiðslu sína
Morgunblaðið/Ásdís
Afmælishátíð Laufey og Elvar
opnuðu Ölverk fyrir tveimur árum.
Svifflugfélag Íslands var gestgjafi
Norræna svifflugssambandsins sem
hélt sitt 47. þing sl. helgi. Auk hefð-
bundinna fundarstarfa fóru þing-
fulltrúar að sjálfsögðu í svifflug.
Í tilkynningu segir að Norðmenn
hafi boðið fimm íslenskum ung-
mennum úr sviffluginu til dvalar í
Noregi á næsta ári.
Norrænt þing um
svifflugið haldið hér