Morgunblaðið - 12.09.2019, Síða 30
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Borgarráð hefur samþykkt að aug-
lýsa tillögu að breyttu deiliskipu-
lagi fyrir svokallaðan Byko-reit, áð-
ur Steindórsreit, þ.e. lóðir nr. 77
við Sólvallagötu og nr. 116 við
Hringbraut. Lóðin stendur nálægt
Ánanaustum í Vesturbænum,
gegnt JL-húsinu við Hringbraut.
Helstu breytingar frá fyrra
skipulagi eru þær að íbúðum á
reitnum fjölgar um 14, fara úr 70 í
84. Íbúðirnar verða í þremur hús-
um. Hæst verða húsin fimm hæðir
næst Hringbraut. Atvinnustarf-
semi verður á jarðhæð.
Það telst til tíðinda að samkvæmt
nýju tillögunni er fallið frá fyrri
hugmyndum um hótel. Því verður
eingöngu íbúðabyggð á reitnum.
Hótelið átti að vera í fimm hæða
byggingu, alls 4.300 fermetrar.
Inn- og útkeyrsla úr bílakjallara
verður heimiluð frá Hringbraut
samkvæmt nýju tillögunni en engin
innkeyrsla verður við Sólvallagötu.
Loks er gert ráð fyrir að svalir
megi ná út fyrir byggingarreit/
lóðamörk að Hringbraut. Tillagan
er unnin af Plúsarkitektum ehf.
Kaldalón eigandi reitsins
Byko-reitur markast af Fram-
nesvegi, Hringbraut og Sólvalla-
götu. Eigandi reitsins er þróunar-
félagið Kaldalón, sem hyggst
standa fyrir uppbyggingu þar.
Gildandi deiliskipulag var sam-
þykkt í desember 2016. Samkvæmt
deiliskipulagstillögunni verður
heildarbyggingamagn 15.700 fer-
metrar og verður það óbreytt. Gert
er ráð fyrir ca. einu bílastæði fyrir
hverja íbúð, alls 85 bílastæðum.
Á norðurhluta Byko-reitsins
standa stórar verslunarbyggingar
á einni hæð með mikilli lofthæð.
Þar eru bílastæði með aðkomu frá
Hringbraut og götustæði/kantstæði
meðfram húshlið á Sólvallagötu.
Byggingar við Framnesveg standa
utan skipulagssvæðisins.
Í desember 2006 samþykkti
borgarráð deiliskipulag fyrir reit-
inn. Þar var gert ráð fyrir að 70
íbúðir yrðu byggðar á lóðinni. Ekk-
ert varð úr að byggt yrði á reitnum
samkvæmt þessu skipulagi.
Í deiliskipulaginu frá 2006 hét
umrædd lóð Steindórslóð við
Hringbraut. Í nýja skipulaginu er
hins vegar talað um Byko-reit. Er
hér væntanlega vísað til þess að í
verslunarhúsinu á lóðinni var Byko
um árabil með rekstur. Síðar var
þar verslun Víðis en verslunar-
húsnæðið hefur staðið autt síðan sú
verslun varð gjaldþrota. Hins veg-
ar rekur Íslandspóstur póstmiðstöð
í suðurenda hússins.
Fyrsta stóra tónleikahúsið
Húsið stendur við Sólvallagötu
77 og er 1.483 fermetrar. Húsið
reisti Steindór Einarsson, jafnan
nefndur bílakóngur Reykjavíkur,
undir starfsemi sína. Hann rak Bif-
reiðastöð Steindórs, sem var þekkt
fyrirtæki á sinni tíð. Á jólaföstu ár-
ið 1939 stóð Tónlistafélagið í
Reykjavík fyrir miklum menn-
ingarviðburði í húsinu. Flutt var
„Sköpunin“ eftir Joseph Haydn og
stjórnandi var Páll Ísólfsson. Var
þetta fyrsta óratórían sem flutt var
hér á landi. Ekkert annað hús í
bænum rúmaði bæði kór og hljóm-
sveit, sem voru um 100 manns.
Utan á húsinu er skjöldur til minn-
ingar um þennan viðburð.
„Ekki er gerð krafa um varð-
veislu neins húss á skipulags-
reitnum,“ segir í deiliskipulags-
tillögunni frá 2016. Samþykkt
tillögunnar mun þó ekki þýða að
niðurrif húsa sé heimilað. Ákvörð-
un um slíkt yrði tekin á seinni
stigum.
Deiliskipulagstillagan hefur ver-
ið birt á vefnum www.reykjavik.is
undir liðnum skipulag í kynningu.
Þar getur almenningur kynnt sér
tillöguna og sent inn athugasemdir.
Frestur til að skila inn athuga-
semdum rennur út þriðjudaginn 22.
október.
Hætt við hótel á Byko-reitnum
Nýr þéttingarreitur í Vesturbænum Deiliskipulag gerir ráð fyrir 84 íbúðum nyrst við Hring-
braut Þekkt verslunarhús á lóðinni þarf að víkja Steindór „bílakóngur“ reisti húsið á síðustu öld
Tölvumyndir/Plúsarkitektar
Nýbyggingar Þannig sjá arkitektarnir fyrir sér aðalbygginguna á Byko-reitnum. Horft er frá hjólastígnum við
Ánanaust. Grandatorg er fyrir framan húsið. Það verður skeifulaga, líkt og JL-húsið beint á móti.
Byko-reiturinn Hann markast af Framnesvegi, Hringbraut og Sólvallagötu. Íbúðir verða í tveimur minni húsunum
við Sólvallagötuna og íbúðir, verslun og þjónusta í því stærsta. Húsaröðin við Framnesveginn verður óbreytt.
30 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2019
Byggðastofnun hefur opnað fyrir
umsóknir um framlög sem veitt eru
til verslana í strjálbýli á grundvelli
stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir
árin 2018-2024. Gert er ráð fyrir að
3-4 verslanir verði styrktar.
Markmið með aðgerðinni er að
styðja verslun í skilgreindu strjál-
býli fjarri stórum þjónustukjörnum
þar sem verslun hefur átt erfitt upp-
dráttar, segir í frétt á heimasíðu
Byggðastofnunar. Þar er að finna
nánari upplýsingar um verkefnið.
Framlögin geta nýst til að bæta
rekstur verslana og skjóta frekari
stoðum undir hann, m.a. með sam-
spili við aðra þjónustu, breyttri upp-
setningu í verslunum og bættri að-
komu. Umsóknarfrestur er til 16.
október næstkomandi.
Verslunarrekendur eða þeir sem
hyggja á verslunarrekstur á skil-
greindum svæðum geta sótt um þau
framlög sem auglýst eru. Verslan-
irnar þurfa að vera í a.m.k. 150 kíló-
metra akstursfjarlægð frá höfuð-
borgarsvæðinu, 75 km aksturs-
fjarlægð frá Akureyri og 40 km
akstursfjarlægð frá byggðakjörnum
með yfir 1.000 íbúa, eða í Grímsey og
Hrísey. Þriggja manna valnefnd ger-
ir tillögur til ráðherra um veitingu
framlaga á grundvelli skilmála.
Byggðastofnun annast umsýslu um-
sókna um framlög fyrir hönd ráðu-
neytisins. sisi@mbl.is
Morgunblaðið/ÞÖK
Frá Grímsey Einn þeirra staða á landinu þar sem verslun getur hlotið styrk.
Verslanir í strjál-
býli verða styrktar
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is
Bakteríuvörn
Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum.
Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri
bakteríu- og sveppavörn.
Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendummeð Silestone.
Blettaþolið Sýruþolið
Högg- og
rispuþolið
Kvarts steinn
í eldhúsið
silestone.com