Morgunblaðið - 12.09.2019, Qupperneq 34
34 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2019
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Einnig mikið úrval varahluta
í Ifor Williams og aðrar gerðir af kerrum,
ásamt úrvals viðgerðarþjónustu.
Kerrur
frá Ifor Williams í öllum stærðum
og útfærslum
SVIÐSLJÓS
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Margir kannast eflaust við það að
hafa hnerrað af krafti og næsti
maður þá sagt „Guð hjálpi þér!“ Á
tímum mikillar umræðu um trú-
mál, og þeirrar staðreyndar að hér
á landi hefur fækkað í þjóðkirkj-
unni á undanförnum árum, er eðli-
legt að spyrja hvort upphrópun á
borð við þessa sé á undanhaldi.
Miðað við þau samtöl sem
Morgunblaðið átti virðist þetta
raunin og það fer líka eftir trú-
félögum hvaða orð eru notuð. Eru
þau af ýmsu tagi.
Guðrún Kvaran málfræðipró-
fessor hefur svarað fjölmörgum
spurningum á Vísindavef Háskóla
Íslands, eða hátt í 1.200. Fyrir
nokkrum árum fékk hún einmitt
spurningu um af hverju fólk segði
„Guð hjálpi þér“.
Í svari hennar segir að fyrr á
tímum, þegar fólk var almennt
bænræknara en nú gerist, hafi það
leitað til Guðs um hjálp og styrk
við erfiðleikum, sjúkdómum og
öllu því sem hrjáði það.
„Það bað Guð um hjálp til að
lifa sönnu kristnu lífi og breyta
rétt gagnvart öðrum. Vissulega
gera margir þetta enn, en upp-
hrópunin „Guð hjálpi þér“ heyrist
sjaldnar en fyrir fáeinum áratug-
um. Hún var þó afar algeng þegar
fólk var að býsnast yfir einhverju
eða vildi sýna hneykslun sína. Nú
á dögum lætur yngra fólk sér
nægja að segja: „Jesus“, með
enskum framburði í sama skyni,“
segir í svari Guðrúnar.
Frá tímum Svarta dauða
Hún segir það hafa fylgt frá-
sögnum af Svarta dauða að hnerri
hafi verið merki þess að fólk væri
sýkt.
„Pestin var mjög skæð og því
hrukku menn óneitanlega við ef
einhver hnerraði. Af einhverjum
ástæðum hnerrar fólk oft þrisvar í
röð og var þá sagt við fyrsta
hnerrann: „Guð hjálpi þér“, við
annan hnerrann „styrki þig“ og
við þriðja hnerrann „og styðji“.
Annað og meira var oft ekki hægt
að gera. Þessi siður hefur haldist
hjá mörgum fram á þennan dag,“
segir loks í svari Guðrúnar á Vís-
indavefnum.
Í samtali við Morgunblaðið seg-
ir Guðrún að í raun sé litlu við
þetta svar að bæta, þó að það hafi
verið skrifað fyrir rúmum áratug.
Þessi upphrópun, „Guð hjálpi
þér“, sé líklega frekar á undan-
haldi en hitt. Hætt sé við að þetta
hverfi úr málinu með tíð og tíma,
nema þá að einhver vakning eigi
sér stað um að endurvekja þennan
sið.
„Hér áður fyrr var þetta meira
hugsað til að koma í veg fyrir að
fólk fengi svæsnar pestir líkt og
Svarta dauða. Ég er alin upp við
það að amma mín sagði alltaf
„Guð hjálpi þér, styrki og styðji“
við hvern hnerra. Þetta er klár-
lega á undanhaldi. Það þykir ekki
fínt að biðja Guð að hjálpa sér nú
á dögum, nema þá eldra fólk –
eins og ég,“ bætir Guðrún við.
Hún telur að í seinni tíð hafi
fólk sagt þetta meira af gömlum
vana eða sið frekar en að trú hafi
ráðið för. Þetta hafi þróast út í
málvenju, líkt og í fleiri tungu-
málum, samanber „Gesundheit“ á
þýsku og „bless you“ á ensku.
Guðrún telur líklegra að í náinni
framtíð muni fólk segja, ef það
heyrir næsta mann hnerra: „Æ, æ,
ertu kominn með kvef?“
Oh, dear Darwin!
Inga Auðbjörg K. Straumland,
formaður Siðmenntar, segir félag-
ið hafa tekið umræðu um svona
upphrópanir, þar sem kristin trú
kemur við sögu. Það sé ekki óeðli-
legt í ljósi tilgangs og stefnu fé-
lagsins.
„Ég persónulega reyni að nota
ekki mikið af upphrópunum sem
snúa að kristni. En auðvitað getur
alltaf eitthvað dottið óvart út úr
fólki af gömlum vana,“ segir Inga
sem sjálf segist oft nota orðið „Ge-
sundheit“ þegar einhver hnerrar
við hlið hennar, sem á íslensku
mætti leggja út sem „heilsist þér“.
Inga segir þá upphrópun einmitt
notaða í mörgum löndum og nái
einnig til þess þegar verið sé að
skála.
Innan Siðmenntar segi einnig
margir „blessi þig“ og enn aðrir
eigi það til að segja „hættu þess-
um hamagangi“ eða annað í léttum
dúr.
„Ég hef líka stundum sagt „oh
dear Darwin“ frekar en að blanda
kristni inn í þetta,“ segir Inga.
„Bless“ úr Biblíunni
Gunnlaugur A. Jónsson, guð-
fræðiprófessor við HÍ, tekur undir
það að upphrópanir með vísun í
kristna trú séu fátíðari en áður
fyrr. Þó telji hann trúna standa
sterkari stoðum í einkalífi fólks en
það viðurkenni opinberlega, eink-
um þegar eitthvað bjátar á eða við
ástvinamissi. Hins vegar segi
menn líklega síður „Guð hjálpi
þér“ við hnerra náungans ef menn
hafi skrifað upp á að þeir séu ekki
trúaðir.
Gunnlaugur bendir á að orðin
„blessi þig“ hafi einnig biblíulega
skírskotun, sem og algengar
kveðjur á borð við „blessaður“ og
„bless“.
„Við munum eftir því þegar
Geir Haarde endaði sjónvarps-
ávarp sitt í hruninu 2008 með orð-
unum „Guð blessi Ísland“. Rætt
var um þau orð með háðulegum
hætti en ég bendi á að forsetar
Bandaríkjanna segja oft „Guð
blessi Ameríku“ og enginn gerir
athugasemd við það,“ segir Gunn-
laugur.
Hann bætir við að í jarðarförum
sé gjarnan sótt í kristna trú, jafn-
vel þótt hinn látni hafi verið trú-
laus. Þannig sé 23. Davíðssálmur,
Drottinn er minn hirðir, líklega
leikinn í þriðju hverri jarðarför
hér á landi. Þá sé Guð oft nefndur
á nafn í minningargreinum, eins
og „Guð blessi minningu“ hins
látna. Þetta sé þó líklega á undan-
haldi, eins og með „Guð hjálpi
þér“ þegar fólk hnerrar.
Eir orni þér!
Það ætti ekki að koma á óvart
að ásatrúarmenn forðast það að
ákalla Guð eða Jesú Krist í dag-
legu tali. Þar er heiðinn siður og
trú í öndvegi. Hilmar Örn Hilm-
arsson allsherjargoði segir þessa
umræðu með viðbrögð við hnerra
vissulega hafa komið upp. Stefán
Pálsson sagnfræðingur hafi komið
með góða tillögu sem hann reyni
að tileinka sér þegar fólk í kring-
um hann hnerrar, eða „Eir orni
þér“. Þar er vísað til læknagyðj-
unnar en í Snorra-Eddu er talað
um að gyðjan Eir hafi verið
„læknir bestur“.
„Mér fannst þetta góð tillaga
hjá Stefáni, líka miklu betra að
óska fólki góðrar heilsu á íslensku
frekar en að sletta upp á þýsku.
Það hafa margir ásatrúarmenn
tekið þetta upp og finnst þetta
flott,“ segir Hilmar Örn.
Hann segir ásatrúarmenn að
öðru leyti frjálslynda hvað orð-
notkun varðar og engum sektum
sé beitt þó að menn nefni Guð á
nafn.
Skrattinn skili þér!
Pétur Þorsteinsson, prestur
Óháða safnaðarins, hefur með
nokkrum útgáfum á petrísk-
íslenskri orðabók kvatt sér hljóðs
með nýstárlegu orðfæri yfir hvers-
dagslega hluti.
Hann segir að innan safnaðarins
ríki fullt frjálsræði um hvað menn
segi við fólk sem hnerrar. Ekkert
sé að því að tilbiðja Guð í þeim
efnum og vel í anda safnaðarins.
Hann kjósi frekar að vera á léttu
nótunum og segir frekar við fólk
„skrattinn skili þér“ eða „fjandinn
sé fjarri þér“. Jafnvel noti hann
líka „djöfuls óvinur hreppi þig“,
þ.e. Guð. Það sé ekki síðri vísun í
fyrirbænir á tímum Svarta dauða
þegar grunur vaknaði um veikindi
hjá fólki. En ef fólk hnerri fjórum
sinnum í röð sé staðan öllu verri.
Þá segi hann frekar „Stalín styrki
þig“!
„Auðvitað segi ég þetta meira í
fíflagangi við fólk. Það skapast þá
léttar umræður og ég get útskýrt
fyrir fólki í hverju þetta felst. Við
fáum stundum áminningu um að
lífið sé fallvalt og veröldin sé ekki
alltaf á hreinu,“ segir séra Pétur.
Guði þakkað fyrir
Salmann Tamimi, formaður Fé-
lags múslima á Íslandi, segir
ákveðna málvenju gilda meðal
múslima þegar þeir hnerra. Þá
þurfi samskiptin að vera gagn-
kvæm, ef svo má að orði komast.
„Ef þú hnerrar þá áttu að segja
„þakka þér Guð fyrir“ og hinn
sem er við hliðina á þér á að segja
„megi Guð blessa þig“. Það er
þess vegna mikilvægt að sá sem
hnerrar þakki Guði sínum. Það er
þá merki þess að viðkomandi sé
lifandi, þótt hann hafi hnerrað,
eða losnað við allt ljótt. Sagt er að
hjartað stoppi í augnablik þegar
maður hnerrar. Það er þá fyrir
Guðs mildi að hjartað kemst í
gang aftur. Félagi þinn verður þá
að veita blessun sína með því að
svara,“ segir Salmann og bendir á
að margar þjóðir heims noti svip-
uð orð. „Guð er til staðar hjá öll-
um, sem betur fer.“
Þverrandi bænheyrn við hnerra
Ekki sama hvað sagt er þegar fólk hnerrar Á undanhaldi að ákalla Guð Siðmennt og ása-
trúarfólk grípa til annarra orða Meðal þess sem heyrist er Eir orni þér og Oh dear Darwin
Ljósmynd/Colourbox
Hnerri Fyrr á öldum var uppi ótti um skæða pest ef einhver hnerraði. Var fólki þá gjafnan óskað Guðs hjálpar.
Plágan mikla, Svarti dauði,
hafði um nokkurt skeið herjað á
Evrópu áður en hún náði til Ís-
lands, fyrst árin 1402 til 1404
og síðan aftur 1494-1495.
Heimildir eru fyrir því að þá
hafi fyrst borið á ákalli á borð
við „Guð hjálpi þér“ þegar fólk
hnerraði. Kom þá strax upp
grunur um að fólk hefði sýkst
af pestinni, sérstaklega ef það
hnerraði þrisvar eða oftar.
Upphaf þessa siðar má rekja
aftur til 590 þegar plága geis-
aði víða í Evrópu. Þá mun páf-
inn í Róm, Gregoríus I, hafa
fyrirskipað að ef einhver hnerr-
aði eða sýndi önnur veikinda-
merki skyldi sagt við hann:
„Guð blessi þig“. Náði þetta
fljótlega útbreiðslu á enskri
tungu en í mörgum öðrum
tungumálum er fólki óskað
góðrar heilsu.
Siður aftur
til 6. aldar
GUÐ BLESSI ÞIG
Guðrún
Kvaran
Pétur
Þorsteinsson
Inga Auðbjörg
Straumland
Hilmar Örn
Hilmarsson
Gunnlaugur A.
Jónsson
Salmann
Tamini