Morgunblaðið - 12.09.2019, Síða 34

Morgunblaðið - 12.09.2019, Síða 34
34 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2019 VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Einnig mikið úrval varahluta í Ifor Williams og aðrar gerðir af kerrum, ásamt úrvals viðgerðarþjónustu. Kerrur frá Ifor Williams í öllum stærðum og útfærslum SVIÐSLJÓS Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Margir kannast eflaust við það að hafa hnerrað af krafti og næsti maður þá sagt „Guð hjálpi þér!“ Á tímum mikillar umræðu um trú- mál, og þeirrar staðreyndar að hér á landi hefur fækkað í þjóðkirkj- unni á undanförnum árum, er eðli- legt að spyrja hvort upphrópun á borð við þessa sé á undanhaldi. Miðað við þau samtöl sem Morgunblaðið átti virðist þetta raunin og það fer líka eftir trú- félögum hvaða orð eru notuð. Eru þau af ýmsu tagi. Guðrún Kvaran málfræðipró- fessor hefur svarað fjölmörgum spurningum á Vísindavef Háskóla Íslands, eða hátt í 1.200. Fyrir nokkrum árum fékk hún einmitt spurningu um af hverju fólk segði „Guð hjálpi þér“. Í svari hennar segir að fyrr á tímum, þegar fólk var almennt bænræknara en nú gerist, hafi það leitað til Guðs um hjálp og styrk við erfiðleikum, sjúkdómum og öllu því sem hrjáði það. „Það bað Guð um hjálp til að lifa sönnu kristnu lífi og breyta rétt gagnvart öðrum. Vissulega gera margir þetta enn, en upp- hrópunin „Guð hjálpi þér“ heyrist sjaldnar en fyrir fáeinum áratug- um. Hún var þó afar algeng þegar fólk var að býsnast yfir einhverju eða vildi sýna hneykslun sína. Nú á dögum lætur yngra fólk sér nægja að segja: „Jesus“, með enskum framburði í sama skyni,“ segir í svari Guðrúnar. Frá tímum Svarta dauða Hún segir það hafa fylgt frá- sögnum af Svarta dauða að hnerri hafi verið merki þess að fólk væri sýkt. „Pestin var mjög skæð og því hrukku menn óneitanlega við ef einhver hnerraði. Af einhverjum ástæðum hnerrar fólk oft þrisvar í röð og var þá sagt við fyrsta hnerrann: „Guð hjálpi þér“, við annan hnerrann „styrki þig“ og við þriðja hnerrann „og styðji“. Annað og meira var oft ekki hægt að gera. Þessi siður hefur haldist hjá mörgum fram á þennan dag,“ segir loks í svari Guðrúnar á Vís- indavefnum. Í samtali við Morgunblaðið seg- ir Guðrún að í raun sé litlu við þetta svar að bæta, þó að það hafi verið skrifað fyrir rúmum áratug. Þessi upphrópun, „Guð hjálpi þér“, sé líklega frekar á undan- haldi en hitt. Hætt sé við að þetta hverfi úr málinu með tíð og tíma, nema þá að einhver vakning eigi sér stað um að endurvekja þennan sið. „Hér áður fyrr var þetta meira hugsað til að koma í veg fyrir að fólk fengi svæsnar pestir líkt og Svarta dauða. Ég er alin upp við það að amma mín sagði alltaf „Guð hjálpi þér, styrki og styðji“ við hvern hnerra. Þetta er klár- lega á undanhaldi. Það þykir ekki fínt að biðja Guð að hjálpa sér nú á dögum, nema þá eldra fólk – eins og ég,“ bætir Guðrún við. Hún telur að í seinni tíð hafi fólk sagt þetta meira af gömlum vana eða sið frekar en að trú hafi ráðið för. Þetta hafi þróast út í málvenju, líkt og í fleiri tungu- málum, samanber „Gesundheit“ á þýsku og „bless you“ á ensku. Guðrún telur líklegra að í náinni framtíð muni fólk segja, ef það heyrir næsta mann hnerra: „Æ, æ, ertu kominn með kvef?“ Oh, dear Darwin! Inga Auðbjörg K. Straumland, formaður Siðmenntar, segir félag- ið hafa tekið umræðu um svona upphrópanir, þar sem kristin trú kemur við sögu. Það sé ekki óeðli- legt í ljósi tilgangs og stefnu fé- lagsins. „Ég persónulega reyni að nota ekki mikið af upphrópunum sem snúa að kristni. En auðvitað getur alltaf eitthvað dottið óvart út úr fólki af gömlum vana,“ segir Inga sem sjálf segist oft nota orðið „Ge- sundheit“ þegar einhver hnerrar við hlið hennar, sem á íslensku mætti leggja út sem „heilsist þér“. Inga segir þá upphrópun einmitt notaða í mörgum löndum og nái einnig til þess þegar verið sé að skála. Innan Siðmenntar segi einnig margir „blessi þig“ og enn aðrir eigi það til að segja „hættu þess- um hamagangi“ eða annað í léttum dúr. „Ég hef líka stundum sagt „oh dear Darwin“ frekar en að blanda kristni inn í þetta,“ segir Inga. „Bless“ úr Biblíunni Gunnlaugur A. Jónsson, guð- fræðiprófessor við HÍ, tekur undir það að upphrópanir með vísun í kristna trú séu fátíðari en áður fyrr. Þó telji hann trúna standa sterkari stoðum í einkalífi fólks en það viðurkenni opinberlega, eink- um þegar eitthvað bjátar á eða við ástvinamissi. Hins vegar segi menn líklega síður „Guð hjálpi þér“ við hnerra náungans ef menn hafi skrifað upp á að þeir séu ekki trúaðir. Gunnlaugur bendir á að orðin „blessi þig“ hafi einnig biblíulega skírskotun, sem og algengar kveðjur á borð við „blessaður“ og „bless“. „Við munum eftir því þegar Geir Haarde endaði sjónvarps- ávarp sitt í hruninu 2008 með orð- unum „Guð blessi Ísland“. Rætt var um þau orð með háðulegum hætti en ég bendi á að forsetar Bandaríkjanna segja oft „Guð blessi Ameríku“ og enginn gerir athugasemd við það,“ segir Gunn- laugur. Hann bætir við að í jarðarförum sé gjarnan sótt í kristna trú, jafn- vel þótt hinn látni hafi verið trú- laus. Þannig sé 23. Davíðssálmur, Drottinn er minn hirðir, líklega leikinn í þriðju hverri jarðarför hér á landi. Þá sé Guð oft nefndur á nafn í minningargreinum, eins og „Guð blessi minningu“ hins látna. Þetta sé þó líklega á undan- haldi, eins og með „Guð hjálpi þér“ þegar fólk hnerrar. Eir orni þér! Það ætti ekki að koma á óvart að ásatrúarmenn forðast það að ákalla Guð eða Jesú Krist í dag- legu tali. Þar er heiðinn siður og trú í öndvegi. Hilmar Örn Hilm- arsson allsherjargoði segir þessa umræðu með viðbrögð við hnerra vissulega hafa komið upp. Stefán Pálsson sagnfræðingur hafi komið með góða tillögu sem hann reyni að tileinka sér þegar fólk í kring- um hann hnerrar, eða „Eir orni þér“. Þar er vísað til læknagyðj- unnar en í Snorra-Eddu er talað um að gyðjan Eir hafi verið „læknir bestur“. „Mér fannst þetta góð tillaga hjá Stefáni, líka miklu betra að óska fólki góðrar heilsu á íslensku frekar en að sletta upp á þýsku. Það hafa margir ásatrúarmenn tekið þetta upp og finnst þetta flott,“ segir Hilmar Örn. Hann segir ásatrúarmenn að öðru leyti frjálslynda hvað orð- notkun varðar og engum sektum sé beitt þó að menn nefni Guð á nafn. Skrattinn skili þér! Pétur Þorsteinsson, prestur Óháða safnaðarins, hefur með nokkrum útgáfum á petrísk- íslenskri orðabók kvatt sér hljóðs með nýstárlegu orðfæri yfir hvers- dagslega hluti. Hann segir að innan safnaðarins ríki fullt frjálsræði um hvað menn segi við fólk sem hnerrar. Ekkert sé að því að tilbiðja Guð í þeim efnum og vel í anda safnaðarins. Hann kjósi frekar að vera á léttu nótunum og segir frekar við fólk „skrattinn skili þér“ eða „fjandinn sé fjarri þér“. Jafnvel noti hann líka „djöfuls óvinur hreppi þig“, þ.e. Guð. Það sé ekki síðri vísun í fyrirbænir á tímum Svarta dauða þegar grunur vaknaði um veikindi hjá fólki. En ef fólk hnerri fjórum sinnum í röð sé staðan öllu verri. Þá segi hann frekar „Stalín styrki þig“! „Auðvitað segi ég þetta meira í fíflagangi við fólk. Það skapast þá léttar umræður og ég get útskýrt fyrir fólki í hverju þetta felst. Við fáum stundum áminningu um að lífið sé fallvalt og veröldin sé ekki alltaf á hreinu,“ segir séra Pétur. Guði þakkað fyrir Salmann Tamimi, formaður Fé- lags múslima á Íslandi, segir ákveðna málvenju gilda meðal múslima þegar þeir hnerra. Þá þurfi samskiptin að vera gagn- kvæm, ef svo má að orði komast. „Ef þú hnerrar þá áttu að segja „þakka þér Guð fyrir“ og hinn sem er við hliðina á þér á að segja „megi Guð blessa þig“. Það er þess vegna mikilvægt að sá sem hnerrar þakki Guði sínum. Það er þá merki þess að viðkomandi sé lifandi, þótt hann hafi hnerrað, eða losnað við allt ljótt. Sagt er að hjartað stoppi í augnablik þegar maður hnerrar. Það er þá fyrir Guðs mildi að hjartað kemst í gang aftur. Félagi þinn verður þá að veita blessun sína með því að svara,“ segir Salmann og bendir á að margar þjóðir heims noti svip- uð orð. „Guð er til staðar hjá öll- um, sem betur fer.“ Þverrandi bænheyrn við hnerra  Ekki sama hvað sagt er þegar fólk hnerrar  Á undanhaldi að ákalla Guð  Siðmennt og ása- trúarfólk grípa til annarra orða  Meðal þess sem heyrist er Eir orni þér og Oh dear Darwin Ljósmynd/Colourbox Hnerri Fyrr á öldum var uppi ótti um skæða pest ef einhver hnerraði. Var fólki þá gjafnan óskað Guðs hjálpar. Plágan mikla, Svarti dauði, hafði um nokkurt skeið herjað á Evrópu áður en hún náði til Ís- lands, fyrst árin 1402 til 1404 og síðan aftur 1494-1495. Heimildir eru fyrir því að þá hafi fyrst borið á ákalli á borð við „Guð hjálpi þér“ þegar fólk hnerraði. Kom þá strax upp grunur um að fólk hefði sýkst af pestinni, sérstaklega ef það hnerraði þrisvar eða oftar. Upphaf þessa siðar má rekja aftur til 590 þegar plága geis- aði víða í Evrópu. Þá mun páf- inn í Róm, Gregoríus I, hafa fyrirskipað að ef einhver hnerr- aði eða sýndi önnur veikinda- merki skyldi sagt við hann: „Guð blessi þig“. Náði þetta fljótlega útbreiðslu á enskri tungu en í mörgum öðrum tungumálum er fólki óskað góðrar heilsu. Siður aftur til 6. aldar GUÐ BLESSI ÞIG Guðrún Kvaran Pétur Þorsteinsson Inga Auðbjörg Straumland Hilmar Örn Hilmarsson Gunnlaugur A. Jónsson Salmann Tamini

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.