Morgunblaðið - 12.09.2019, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 12.09.2019, Blaðsíða 36
Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum 36 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2019 JAPANSKT 12 MÁNAÐA BÓN FUSSO 12 mánaða bílabón Útsölustaðir: Verkfæralagerinn • ET verslun • RS partar GLACO 12 mánaða rúðubón Hann segir að það taki einungis níu klukkutíma að fljúga með beinu flugi frá Nýju Delí til Lundúna, og þaðan sé auðvelt að komast til Íslands. Fjölbreyttur hópur Með Goenka í sendinefndinni er mjög fjölbreyttur hópur viðskipta- fólks. Þar má nefna fjárfesta og fyrir- tæki í fjármálaþjónustu, fólk úr fast- eignafélögum og fyrirtækjum í stáliðnaði, innviðaframkvæmdum og byggingariðnaði. Þá eru með í för fulltrúar fyrirtækja í matvælaiðnaði, svo sem framleiðslu mjólkurvara, sjávarafurða og umhverfisvænna um- búða, en einnig forsvarsmenn fyrir- tækja á sviði endurnýjanlegrar orku, fjarskiptabúnaðar, fjölmiðla, prentun- ar, upplýsingatækni og hugbúnaðar. Fyrirtæki í flugi, skipaflutningum og ferðaþjónustu eiga einnig sína full- trúa. „Þetta er mjög blandaður hópur,“ segir Goenka. Hann segir að Indverjar almennt þekki til Íslands, en það að koma hingað nú í eigin persónu í fyrsta sinn hafi breytt sýn sinni á landið verulega. „Ég held að þessi heimsókn forsetans og viðskiptasendinefndarinnar muni breyta miklu í samskiptum þjóðanna. Ísland er mjög ólíkt því sem ég bjóst við. Þetta er framsækið þjóðfélag og okkur líður mjög vel hér. Mig langar að koma hingað aftur og hafa þá fjöl- skylduna með.“ Goenka er sjálfur umsvifamikill í viðskiptum. Hann stofnaði fyrirtækið Welspun árið 1986, en fyrirtækið, sem er stór framleiðandi textílvara, röra fyrir olíu og gas og hefur með höndum byggingu hraðbrauta svo eitthvað sé nefnt, veltir um þremur milljörðum bandaríkjadala á ári, jafnvirði 377 milljarða íslenskra króna. Eignir Goenka sjálfs eru metnar á einn millj- arð dala, samkvæmt Forbes-tímarit- inu bandaríska. „Við erum eitt af þremur stærstu fyrirtækjum í heimi í textílvörum fyrir heimili og seljum þær fyrir um einn milljarð dala á ári. Þá erum við með stóra viðskiptavini í Bandaríkjunum, Sádi-Arabíu og fleiri löndum í gas- og olíuleiðslum og skipt- um við helstu fyrirtæki á því sviði, eins og Exxon Mobil og Chevron,“ sagði Goenka að lokum. Segir Ísland framsækið Viðskipti Goenka flutti framsöguerindi á indversk-íslensku viðskiptaþingi.  Formaður indverskrar viðskiptasendinefndar sér mikil tækifæri í viðskiptum milli Íslands og Indlands  Stofnaði mörg hundruð milljarða króna fyrirtæki Indland » Viðskipti Íslands og Ind- lands námu rösklega fimm milljörðum íslenskra króna á síðasta ári. » 40 þúsund manns komu hingað til lands frá Indlandi á síðasta ári. » Stofnaði Welspun 1986. BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Balkrishan Goenka, formaður 36 manna indverskrar viðskiptasendi- nefndar sem stödd er hér á landi í til- efni af opinberri heimsókn Ram Nath Kovind, forseta Indlands, hingað til lands, segist í samtali við Morgun- blaðið sjá ýmis líkindi milli landanna tveggja. Miklu skiptir að Íslendingar hafi opnað sendiráð í höfuðborg lands- ins, Nýju-Delí, árið 2006 og Indverjar hafi sömuleiðis opnað sitt sendiráð hér á landi 2010. Það tengi löndin saman í sívaxandi mæli. „Auðvitað eru viðskipti milli landanna ekki mikil, sérstaklega í samhengi við stærð landanna (á Indlandi búa rúmlega 1,3 milljarðar manna), eða um 40 millj- ónir dala á ári (röskir fimm milljarðar íslenskra króna). En ég held að það séu mikil tækifæri fyrir hendi. Við sjáum það einkum í ferðaþjónustu, sjávarútvegi, líftækni og í hátækni, eins og við í sendinefndinni höfum fengið að kynnast hjá Marel til dæm- is,“ segir Goenka. Hann segir að vissulega hafi beint flug WOW til Nýju-Delí á síðasta ári staðið stutt yfir, en hann segist telja að fljótlega komi eitthvað sem gæti breytt landslaginu aftur í þeim efnum. 40 þúsund Indverjar komu hingað til lands á síðasta ári að sögn Goenka. í fiskeldi. „Laxeldi er í örri þróun. Við verðum að tryggja að starfs- menn okkar hafi tækifæri til menntunar og fræðslu í greininni. Markmið okkar er að 50% starfs- manna ljúki því námi í fiskeldi sem við höfum nú samið við Fisktækni- skóla Íslands um að hafa umsjón með og þróa til framtíðar í sam- ræmi við þá hröðu þróun sem á sér stað í greininni. Við stefnum að því að hámarka framleiðsluna og því mikilvægt að auka sérþekkingu starfsmanna.“ Gert er ráð fyrir að um 20 starfs- menn Arnarlax hefji nám á braut- inni nú í haust. Forsvarsmenn fiskeldisfyrirtækisins Arnarlax hafa sett sér það markmið að 50% starfsmanna fyrirtækisins ljúki námi í fiskeldi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Fyrirtækið skrifaði nýverið undir samning við Fisktækniskóla Íslands um að hafa umsjón með og þróa til framtíðar fræðslu starfsfólks í fisk- eldi. Í tilkynningunni segir að nám- ið sé hagnýtt og hafi að markmiði að auka sérþekkingu starfsfólks á rekstri og öryggismálum á sínu starfssviði. Björn Hembre, forstjóri Arnar- lax, segir í tilkynningunni að mik- ilvægt sé að byggja upp námsbraut Vilja að 50% starfsfólks ljúki námi  Hröð þróun í fiskeldinu Samningur Iða Marsibil, mannauðsstjóri Arnarlax, Björn Hembre, forstjóri Arnarlax, Ólafur Jón Arnbjörnsson, skólastjóri Fisktækniskóla Íslands, Klem- enz Sæmundsson, deildarstjóri fiskeldis, og Ásdís Pálsdóttir verkefnastjóri. 12. september 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 125.31 125.91 125.61 Sterlingspund 154.56 155.32 154.94 Kanadadalur 95.03 95.59 95.31 Dönsk króna 18.539 18.647 18.593 Norsk króna 13.944 14.026 13.985 Sænsk króna 12.862 12.938 12.9 Svissn. franki 126.43 127.13 126.78 Japanskt jen 1.1666 1.1734 1.17 SDR 171.52 172.54 172.03 Evra 138.31 139.09 138.7 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 169.5309 Hrávöruverð Gull 1494.6 ($/únsa) Ál 1775.5 ($/tonn) LME Hráolía 62.82 ($/fatið) Brent 18.489 launagreið- endur voru að jafnaði á Íslandi frá ágúst 2018 til júlí 2019 og fjölg- aði þeim um 300, eða um 1,7% frá síðustu 12 mán- uðum þar á und- an. Á sama tímabili greiddu launa- greiðendur að meðaltali um 194.500 einstaklingum laun sem er aukning um 1.800, 1%, samanborið við 12 mán- aða tímabil ári fyrr. Í júlí 2019 voru um 135.100 launþegar í viðskipta- hagkerfinu og hefur þeim fækkað um 5.200, 3,7%, samanborið við júlí 2018. Á sama tímabili hefur launþegum í heild fækkað um 400, eða 0,2%. Fleiri launa- greiðendur  194.500 einstak- lingum greidd laun ● Rautt var um að litast í Kaup- höll Íslands í gær þar sem ekki eitt einasta félag hækkaði í verði. Mest lækkuðu hlutabréf Sýnar, eða um 2,93% í 40 milljóna við- skiptum og stend- ur gengi bréfanna í 26,5 kr. Kvika lækkaði um 2,36% í 52 milljóna viðskiptum, Eimskip um 1,69% í 17 milljóna viðskiptum, Reitir um 1,43% í 115 milljóna króna við- skiptum og Icelandair um 1,17% í 42 milljóna króna viðskiptum. Stendur gengi bréfanna í 6,77 krónum. Mest voru viðskipti með bréf Símans sem lækkuðu um 0,21% í 623 milljóna króna viðskiptum. Samtals námu við- skipti í Kauphöllinni í gær 2.349 millj- ónum króna. Rautt um að litast í Kauphöll Íslands Rautt Mörg félög lækkuðu í verði. STUTT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.