Morgunblaðið - 12.09.2019, Page 40

Morgunblaðið - 12.09.2019, Page 40
FRÉTTASKÝRING Guðni Einarsson gudni@mbl.is Reiknivillan sem hafði áhrif áprófniðurstöður hlutaþeirra sem þreyttu inn-tökupróf í Læknadeild Háskóla Íslands (HÍ) síðastliðið sum- ar finnst ekki í Excel-skjölum sem geyma prófniðurstöður undanfarinna fimm ára og enn eru til, að sögn Eng- ilberts Sigurðssonar, deildarforseta Læknadeildar. Villan virðist hafa komið inn þegar línum var bætt í skjal frá því í fyrra. Engilbert taldi að Excel-forritið hefði verið notað til að halda utan um útreikninga á próf- niðurstöðum allt frá árinu 2003 þegar inntökupróf voru tekin upp í Lækna- deild HÍ. 29 fengu próf með villu Rúmlega 420 próftakar gengust undir inntökupróf í læknisfræði og sjúkraþjálfun við Læknadeild HÍ í júní sl. Þar af tóku 316 inntökupróf í læknisfræði. Villa var í formúlu í prófum hjá 29 próftökum af þessum 316. Hún var ekki í prófum þeirra sem þreyttu inntöku- próf í sjúkraþjálf- un. Engilbert leit- aði nánari upplýsinga hjá stærð- fræðingnum sem reiknaði út niðurstöður prófanna, en hann er staddur erlendis. „Þessi villa varð líklega þegar nýjum línum var bætt í skjalið frá því í fyrra þar sem talsvert fleiri tóku prófið í ár en þá. Þessi villa leiddi til þess að einkunnir voru rangar hjá þessum próftökum. Þeir hafa nú allir fengið senda rétta lokaeinkunn og röðun í tölvupósti,“ sagði Engilbert. Próftakar skoða niðurstöður Hann sagði að 40-50 próftakar frá því í sumar hefðu óskað eftir að fá að sjá niðurstöður prófanna og er það svipaður fjöldi og á síðustu árum. Eftir að fréttir bárust af villunni og því að fimm próftökum hefði verið bætt í hóp læknanema fjölgaði þeim aðeins sem vildu fá að skoða nið- urstöðurnar, þeir eru þó innan við tíu. En eru margir próftakar að kanna stöðu sína varðandi niðurstöður inn- tökuprófsins í sumar? „Þó nokkrir tölvupóstar hafa borist. Öllum próftökum voru sendir tölvupóstar í gær, mánudag, þar sem fram kom hvort reiknivillan hefði haft áhrif á stöðu þeirra eða ekki og hver rétt lokaeinkunn og röðun væri í þeim tilfellum þar sem reiknivillan hafði áhrif,“ sagði Engilbert. En hvernig þykir inntökuprófið hafa reynst? Stöðug umræða um prófin „Inntökuprófið var tekið upp eft- ir talsverða yfirlegu 2003 og þykir í flestu tilliti hafa heppnast vel. Áður hafði verið horft til hæstu einkunna á fyrsta ári og síðar á haustmisseri við val inn í Læknadeild (numerus clau- sus). Það fyrirkomulag þótti óheppi- legt fyrir þá 1. árs nema sem ekki komust inn í námið hverju sinni þar sem þeir gætu ella nýtt þann tíma til að leggja stund á aðrar greinar. Eins var það erfitt í framkvæmd eftir því sem nemum fjölgaði að vera með numerus clausus, ekki síst með tilliti til verklegrar kennslu á 1. ári,“ sagði Engilbert. Hann sagði að stöðug um- ræða væri innan Læknadeildar um inntökuprófið og leiðir til að þróa það og bæta og bætti við: „Ólíklegt er að aftur verði snúið til fyrra fyrirkomulags, numerus clausus. Líkt og fram hefur komið í fjölmiðlum þá verður sú breyting gerð á næsta ári að tveir stærðfræð- ingar verða fengnir til að reikna nið- urstöður prófsins, hvor í sínu lagi. Það ætti að gulltryggja að svona vill- ur geti ekki farið fram hjá þeim leið- um sem til þessa hafa verið notaðar við villuleit í Excel-skjalinu,“ sagði Engilbert. Villan virðist hafa komið við breytingu Morgunblaðið/Sigurður Bogi Háskóli Íslands Villa reyndist vera í útreikningum á prófniðurstöðum nokkurra próftaka í inntökuprófi í Læknadeild HÍ í sumar sem leið. 40 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Þess varminnst íBandaríkj- unum og víðar í gær, að átján ár eru liðin frá hryðjuverkaárásunum á tví- buraturnana og Pentagon. Minningin um þá voveiflegu atburði mun enda seint líða þeim úr minni er lifðu og enn er glímt við afleiðingar þeirra. Meðal þeirra er stríðsrekstur Bandaríkjanna í Afganistan, sem staðið hef- ur óslitið nær alla tíð síðan. Það vakti því skiljanlega athygli vestanhafs, þegar það spurðist út um helgina, að Donald Trump Banda- ríkjaforseti hefði á síðustu stundu hætt við samninga- fund með fulltrúum talíbana og Ashraf Ghani, forseta Afganistans. Tilefni fundar- ins mun hafa verið að leggja lokahönd á friðarsamkomu- lag milli Bandaríkjastjórnar og talíbana, en það sem vakti líklega mesta undrun og jafnvel hneykslan var sú ákvörðun Trumps að fundur- inn skyldi haldinn í Camp David, sumarbústað forseta- embættisins, skömmu fyrir 11. september. Nú þarf það ekki að koma á óvart enda í samræmi við boðaða stefnu Trumps í utan- ríkismálum, að hann vilji draga úr þátttöku Bandaríkj- anna í hinum langa stríðs- rekstri í Afganistan, og það verður vart gert nema með einhvers konar samkomulagi við talíbana. Engu að síður átti sú gagnrýni sem hinn áformaði fundur í Camp David hlaut mikinn rétt á sér, einkum þar sem fulltrú- ar talíbana hafa aldrei sýnt nokkra iðran fyrir sinn þátt í voðaverkunum 11. septem- ber. Þá var tímasetningin vægast sagt óheppileg, svo stuttu áður en heiðra átti minningu þeirra sem létust þennan dag. Aðalástæðan fyrir því að Trump hætti við Camp David-fundinn tengdist þó gagnrýnisröddunum ekki neitt, heldur sáu talíbanar sjálfir um að koma sér út úr húsi með því að standa að hryðjuverkaárás í Kabúl, höfuðborg Afganistans, fyrir viku, þar sem tólf manns lét- ust, þar af einn bandarískur hermaður. Er það langt í frá eina hryðjuverkaárásin sem samtökin hafa staðið fyrir á undanförnum vikum, á sama tíma og fulltrúar þeirra lögðu drög að friðarsam- komulagi við Bandaríkjamenn. Framferði þetta sýnir glöggt við hverju má búast af talíbönum í framtíðinni, hvort sem samið verður um frið við þá eða ekki. Þá er vert að minnast þess, að yfirráðum þeirra í Afganistan fyrir um tveimur áratugum fylgdi ofstæki og ofsatrú, sem meðal annars leiddi til þess að ómetanlegar fornminjar voru lagðar í eyði og staða kvenna versnaði til mikilla muna. Ekkert bendir til þess að talíbanar myndu snúa af þeirri óheillabraut, fengju þeir að taka þátt í stjórnmálalífi Afganistans nú, hvað þá ef Bandaríkjaher dregur verulega úr viðveru sinni í landinu. Ljóst er að Trump Banda- ríkjaforseti telur mikinn ávinning fyrir Bandaríkin að því að ná friðarsamkomulagi við talíbana, raunar svo mik- inn að þjóðaröryggisráðgjafi hans, „haukurinn“ John Bolt- on, vék úr embætti vegna ágreinings þeirra á milli. Samband þeirra var raunar ávallt fremur stirt sem aftur sýndi að Trump er, þvert á það sem margir ætla, ekki herskár í gjörðum, þótt orð- færi hans á samfélagsmiðlum bendi iðulega til annars. Vert er að hafa í huga, að í desember næstkomandi verða fjörutíu ár liðin frá inn- rás Sovétríkjanna í Afganist- an. Segja má að sá atburður hafi öðrum fremur hrint af stað þeirri óheillavænlegu atburðarás, sem markað hef- ur svo djúp spor í heimssög- una síðan. En ef draga má lærdóm af innrásinni og eftirmálum hennar, þá er hann einkum sá, að Afganist- an mun þurfa mikinn og lang- varandi stuðning lýðræðis- ríkja til að samfélagið nái stöðugleika á ný. Það þýðir að þó að það kunni að vera freistandi, sér í lagi eftir 18 ára samfelld stríðsátök, að draga í land, þá þarf að íhuga gaumgæfi- lega hvort slík aðgerð yrði ekki einfaldlega til þess að Afganistan yrði á ný að öruggum dvalarstað öfga- manna og ótta. Þá kann að vera betra að ljúka verkinu og gefa hófsamari öflum lengri tíma til að fóta sig í landinu. Fátt bendir til að talíbanar ætli sér að semja af heilindum} Óvæntur fundur afboðaður í skyndi R íkisstjórnin ætlar ekkert að gera til að rjúfa fátæktina sem stjórn- völd undanfarinna áratuga hafa viðhaldið grímulaust gegn þeim sem höllustum fæti standa í sam- félaginu. Síðustu ríkisstjórnum hefur gróflega mistekist að byggja upp skilvirkt sanngjarnt velferðarkerfi. Stjórnvöld hanga á handónýtu mannvondu kerfi sem fáir eða enginn skilur. Veikt gamalt fólk fær ekki aðgang að hjúkrunarheimilum, stjórnvöld skattleggja fátækt grimmt og skerða kinnroðalaust þau sem veikast standa, tíu prósent barna líða skort, fólk skortir fæði, klæði og húsnæði. Á sama tíma státa þessi sömu yfirvöld af því að Ísland búi við gegndar- lausa hagsæld og ríkidæmi. Þrátt fyrir þunga undiröldu og ósk um réttlæti í samfélaginu kemur til valda ríkis- stjórn eftir ríkisstjórn og ver þetta brogaða mannvonsku- kerfi. Þau sem ráða ferð hafa hvorki dug né áhuga á að koma með raunverulegar breytingar til batnaðar fyrir þá sem mest þurfa á að halda. Þau hvorki ætla né vilja út- rýma fátækt. Þetta er óþolandi ástand og nú er mál að linni. Flokkur fólksins er eini stjórnmálaflokkurinn á Alþingi sem berst af afli og hugsjón gegn fátækt. Við höfum lagt inn á Alþingi fimm forgangsmál flokksins á komandi þing- vetri: 1. Skattleysismörk hækki svo að þeir sem lægstu launin hafa geti lifað mannsæmandi lífi. Við viljum hækka skatt- leysismörk upp í 350.000 krónur á mánuði og taka upp fallandi persónuafslátt. Okkar útfærsla skilar lágtekjufólki raunverulegri tekjuaukningu. 2. Bundið verði í lög að örorkulífeyrir, end- urhæfingarlífeyrir og ellilífeyrir tryggi 300.000 króna lágmarksframfærslu, skatta- og skerð- ingalaust. 3. Örorkulífeyrisþegum verði heimilt að afla sér atvinnutekna í tvö ár án þess að nokkrar bætur skerðist. Þetta yrði risastór hvati til að sá hluti þessa fólks sem hefur starfsgetu geti komist aftur inn á vinnumarkaðinn, sér og þjóðinni til heilla. 4. Ríki og sveitarfélögum verði skylt með lögum að útvega öldruðum sem hafa gengist undir færni- og heilsumat dvalar- og hjúkr- unarrými eigi síðar en 60 dögum eftir að mat sýni að viðkomandi eigi rétt á slíku rými. Makar þeirra sem fá vistun á öldrunarstofnunum fái sjálfkrafa að dvelja með hinum vistuðu óski þau slíks. 5. Ofangreindar tillögur þarf að fjármagna. Flokkur fólksins leggur nú fram tillögu þess efnis að staðgreiðsla skatta fari fram við innborgun í lífeyrissjóði en ekki við út- greiðslu. Þetta myndi skila rúmum 70 milljörðum króna árlega til ríkis og sveitarfélaga. Þetta fé má nýta til að standa straum af þeim róttæka velferðarpakka sem Flokkur fólksins leggur nú til með þessum fimm for- gangsmálum sínum á nýju þingi. Kynnið ykkur þessi og önnur þingmál Flokks fólksins á vef Alþingis. Útrýmum fátækt og gerum það NÚNA! Inga Sæland Pistill Róttækur velferðarpakki Flokks fólksins Höfundur er alþingismaður og formaður Flokks fólksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen Ítarlegar upplýsingar um inntökuprófið er að finna á heimasíðu Lækna- deildar. Það skiptist í tvo þætti, Aðgangspróf fyrir háskólastig, svonefnt A-próf, sem stendur í 3,5 klukkustundir og gildir 30%. Auk þess er L-próf sem tekið er í fjórum tveggja klukkustunda löngum lotum og gildir það 70% af lokaeinkunn. A-prófið metur getu í málnotkun, talnaleikni, rökhugsun, textaskilningi og fleiri þáttum sem reynir á í háskólanámi. Meginhluti L-prófs eru spurningar um efni sem kennt er í framhalds- skóla. Um er að ræða krossaspurningar sem valdar eru úr spurningasafni sem er afrakstur samstarfs Læknadeildar og kennara úr fjölmörgum framhaldsskólum. Einnig eru í prófinu satt/ósatt-spurningar. Í einni próf- lotu L-prófsins er lagt mat á almenna þekkingu með krossaspurningum. Tvískipt próf í 11,5 stundir INNTÖKUPRÓF Í LÆKNADEILD HÁSKÓLA ÍSLANDS Engilbert Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.