Morgunblaðið - 12.09.2019, Page 53

Morgunblaðið - 12.09.2019, Page 53
miðið var alltaf hið sama – að snúa dæminu við. Alveg fram á síðasta dag. Uppgjöf var ekki til í orðabók Atla Eðvaldssonar. Það er okkur Hönnu afar mikils virði að hafa átt góðar stundir með Atla á undanförnum mánuðum. Hann ræddi áskoranir sínar og nálgun hispurslaust og náðu þau Hanna þar vel saman þar sem Atli fékk skilning og stuðning á sinni leið. Við kveðjum kæran vin með þakklæti og virðingu. Guðmundur Þorbjörnsson. Nú hallar sumri, sem var eitt það sólríkasta sem höfuðborg- arbúar hafa fengið í áraraðir á kostnað annarra landshluta. Nú hafa náttúrulitir haustsins tekið völdin með ótrúlegum litbrigðum gróðursins. Það er við þessar að- stæður sem við kveðjum einn besta knattspyrnumann sem Ís- land hefur alið, Atla Eðvaldsson. Atla verður ætíð minnst þegar menn koma saman og ræða af- rekssögu íslenskrar knattspyrnu. Við Íslendingar höfum þörf fyr- ir að fylgjast með sonum þjóðar- innar og því fórum við vinnufélag- arnir á nokkra leiki í Þýskalandi þegar við sóttum þar sýningar. Þjóðarstolt okkar rauk í hæstu hæðir þegar við vorum á leik 1983 Düsseldorf - Eintracht Frankfurt þar sem Atli skoraði fimm mörk. Eftir feril Atla erlendis kom hann heim og þegar hann kom í KR varð ákveðinn vendipunktur í fé- laginu og ekki síst þegar hann hóf þar þjálfun og rauf þar 31 árs titla- þurrð og gerði félagið að Íslands- og bikarmeisturum 1999. Lífið er ekki fyrirséð því á þess- um árum gerði ég ekki ráð fyrir að verða uppeldisfaðir yngri barna Atla og Steinunnar. Við það kynntist ég Atla, sem var oft gest- ur á heimili okkar þegar börnin voru öll stödd hjá okkur. Þá var oft skipst á skoðunum um fótbolta. Við ræddum bæði KR og önnur lið hér á landi og ekki síður mitt lið Newcastle og öll hin á Englandi. Atli hafði ákveðnar skoðanir og færði fyrir þeim rök sem ég hafði gaman af að vera ekki alltaf sam- mála til að fá líflegar umræður. Það var ánægjulegt að fylgjast með hvað Steinunn reyndist Atla vel síðustu vikurnar. Hún heim- sótti hann reglulega og tók hann með heim til okkar í mat þegar hann treysti sér til. Þau töluðust við nánast daglega undir lokin. Söknuðurinn er mestur hjá börnum og barnabörnum sem nú kveðja föður og afa. Elsku Egill, Björk, Emil og Leó. Sif, Bjössi og Sólveig, Sara, Ármann, Atli Steinn og Máni Steinn, Emil og Hanna. Ég bið góðan Guð að varðveita með ykk- ur minninguna um Atla sem var, er og verður þjóðareign sem mun lifa með þjóðinni áfram eins og þeir sem gera knattspyrnugarð- inn frægan í dag. Um leið og við kveðjum Atla Eðvaldsson þá lítum við yfir haustlitina og dáumst að fjöl- breytileika í fegurð náttúrunnar. Eftir standa minningar hjá okkur sem þetta tilverustig hefur ætlað hér lengri vist. Hafsteinn Þórðarson. Á næsta ári eru 40 ár liðin frá því að við lukum námi frá Íþrótta- kennaraskóla Íslands á Laugar- vatni og í dag kveðjum við einn úr hópnum, Atla Eðvaldsson, sem háði hetjulega baráttu við illvígan sjúkdóm. Við söknum hans sárt um leið og við rifjum upp minn- ingar um einstakan skólafélaga og vin. Þegar við hófum nám í ÍKÍ var Atli vel þekktur á knattspyrnusv- iðinu en á Laugarvatni lék hann ekki knattspyrnu að staðaldri, varð hins vegar bikar- og Íslands- meistari í blaki með Ungmenna- félagi Laugdæla, sýnir það vel hví- líkur yfirburða íþróttamaður hann var. Í glímutímum beitti Atli sér- stakri tækni, í stað þess að læra öll glímubrögðin upp á punkt og prik hélt hann andstæðingnum niðri með sínum sterku handleggjum, þannig þreytti hann mótherjann líkt og lax á færi, skellti honum síðan flötum með einföldum hæl- krók, hjálpaði honum á fætur og sagði: Svona á að gera þetta! En það eru ekki eingöngu afrek Atla á íþróttasviðinu sem heilluðu okkur skólasystkinin heldur ekki síður hversu glaðvær og ljúfur hann var. Atli var sannur húmor- isti og gat slegið hversdagslegum atvikum upp í gáskafullt glens. Eftirminnileg er skíðaferð til Ak- ureyrar árið 1979, ófærð herjaði á Sunnlendinga en nemendur hugð- ust freista þess að komast frá Laugarvatni til Reykjavíkur og fljúga síðan norður. Lagt var af stað á rútu með keðjum á öllum hjólum, Bjarni Sigurðsson frá Geysi sat undir stýri, allt gekk vel í fyrstu en í Grímsnesinu tók færð að þyngjast og undir Ingólfsfjalli sat allt fast. Engir farsímar í boði en Atli stökk af stað ásamt her- bergisfélaga sínum, Þorsteini Hjartarsyni, og sóttu þeir hjálp á næsta bæ. Allt endaði vel, rútan komst til Reykjavíkur og í augum Atla voru þetta ekki hrakningar heldur bjó hann til úr þessu alls- herjar skemmtisögu og hló dátt, þannig var Atli. Skólasystkinin frá Laugarvatni hafa staðið þétt saman í blíðu og stríðu. Piltarnir mynda sérstakan félagsskap sem heitir T-félagið; þar lá Atli ekki á liði sínu og var ævinlega reiðubúinn að bregða á leik. Um áramótin 1987-1988 tóku nokkrir félaganna þátt í nýárs- fagnaði í Reykjavík þar sem Jón Víkingsson skemmti, betur þekkt- ur sem Johnny King. Þeir Atli og Guðmundur heitinn Gíslason komu að máli við Johnny þarna á staðnum og spurðu hvort hann gæti samið lag um T-félagana. Kóngurinn hélt nú það og skipti það engum togum að hann samdi tvö lög og texta á nokkrum dög- um, félagarnir mynduðu söngkór og lögin voru tekin upp undir stjórn Hilmars, síðar allsherjar- goða. Björn Thoroddsen var grip- inn glóðvolgur til að leika undir á gítar og fór gersamlega á kostum; í kórnum stóð Atli fremstur með- al jafningja og söng við raust. Sögurnar og minningarnar um Atla Eðvaldsson munu fylgja okkur um ókomin ár. Hvíldu í friði, elsku Atli, vinurinn okkar. Fyrir hönd skólasystkina frá Laugarvatni, Bjarki Bjarnason. Nú kveð ég góðan félaga eftir rúmlega tveggja áratuga vináttu. Það var árið 1998 sem ég hitti Atla, þegar hann sótti mig upp á Keflavíkurflugvöll. Ég var þarna mættur til að leggja mitt af mörk- um fyrir KR og Atla, sem þá var þar við stjórnina. Það var varla að hann hefði fyr- ir því að anda, svo mikið talaði hann meðan hann ók eftir Reykjanesbrautinni. Um fallega, yndislega Ísland, sögur úr fót- boltanum og svo fleiri sögur úr boltanum. Ég bjóst við að vera skutlað beint upp á hótel, að fá að ná aðeins áttum í nýju landi, en Atli hafði um það aðrar hugmynd- ir. Hann ók rakleiðis niður í miðbæ, lagði bílnum fyrir framan forláta skúr og keypti handa mér pylsu – „Bæjarins bestu“ sagði hann mér, „þjóðarréttur Íslend- inga“. Þetta setti tóninn að vinátt- unni. Það þurfti aldrei nein flott- heit, galdurinn fólst í einfaldleikanum. Samverunni. Samræðunum. Fótboltanum. Undir stjórn Atla unnum við KR-ingar þrjá titla, og ég var val- inn leikmaður ársins 1998. En þessir titlar falla alveg í skuggann af þeim áhrifum sem Atli hafði á mig persónulega. Ef hans hefði ekki notið við hefði ég líklega aldrei komið til Íslands, og ég hefði þá líklega aldrei hitt konuna mína eða eignast strákana mína. Ég hefði líklega ekki farið í frek- ara nám og hefði ekki verið á þeirri braut sem ég er á núna. Ég á Atla margt að þakka. Og þá einna helst vináttu sem var alltaf byggð á einlægni, tryggð og virð- ingu. Við reyndum alltaf að hittast þegar við Heiða vorum á landinu, hvort sem það var áramótagleði í heimahúsi, eða bara yfir kaffibolla í Kringlunni. Fyrir tæpum þrem- ur árum mætti Atli óvænt í afmæli til mín hér í Bretlandi. Hann kom þar færandi hendi með gjafir handa strákunum mínum og þétt faðmlag fyrir okkur Heiðu. Þarna var hann búinn að fá dóminn, en lét það vera að segja okkur frá þessum vágesti sem hafði hreiðr- að um sig í líkamanum. Þarna var hann kominn til að fagna lífinu, enda búinn að taka ákvörðun um að berjast á sinn hátt við óvininn. Við áttum þarna frábært kvöld meðal fjölskyldu og vina sem margir voru að hitta Atla í fyrsta sinn. Skemmtilegar sögur úr bolt- anum, af lífinu. Langar sögur. Atli notaði alltaf mörg orð – hann var sögumaður af guðs náð og alltaf stutt í brosið og hláturinn. Atli gleymist seint þeim sem hann hittu! Ég sakna vinar míns. Við töl- uðum ekki saman á hverjum degi, eða í hverjum mánuði. Við þurft- um þess ekki. Við vissum hvor af öðrum og Atli veit að ég sakna hans. Atli, vinur minn, sem stóð með báða fætur á jörðinni en var þó með hugann við stóru draumana. Það var erfitt að heyra frá Atla að hann væri veikur, en hann tók þennan slag eins og aðra í sínu lífi – á sínum forsendum. Hann lagð- ist ekkert niður og gafst upp. Hann ætlaði að skora enn eitt sig- urmarkið og hann barðist fram á síðasta dag. Hann ætlaði að hafa betur, og hann gerði það að vissu leyti. Við fengum öll að njóta vin- áttu hans lengur en við þorðum að vona. Hann vissi betur. Atli vissi alltaf betur. Hugur okkar er hjá fjölskyldu og ástvinum Atla á þessum erfiðu tímum. Far vel vinur, farvel. David Winnie, Heiða María Gunnarsdóttir. Fráfall Atla Eðvaldssonar er þungt högg og skilur eftir sig gap- andi tómarúm. Tilhugsunin um að hitta hann aldrei aftur hérna meg- in tilverunnar venst illa og sökn- uðurinn er sár. Atli var vinurinn með gullhjartað. Hann var í alla staði einstakur þessi drengur og afreksmaður í mennsku sinni, knattspyrnan var þar einn þáttur af mörgum. Að eignast vin í Atla var að detta í lukkupottinn því Atli var sannur haukur í horni og gott að trúa honum fyrir stóru sem smáu. Atli var óspar á hvatn- inguna og kunni listina að sam- gleðjast betur en flestir. Þegar vel gekk magnaðist stoltið margfalt þegar maður hafði sagt Atla frá því. Á hugann leita minningaleiftur frá tímanum okkar saman bæði í Düsseldorf og hér heima. Ég man til dæmis í Þýskalandi þegar ég saknaði þess að geta ekki boðið upp á malt og appelsín í jólaboði að hann stökk samstundis á fætur og rauk út í búð. Atli hafði jafnan ráð undir rifi hverju. Hann kom til baka með þýskt Vita Malz og Fanta sem með góðum vilja bragðaðist svolítið eins og íslenskt jólaöl. Kærleikurinn og hugulsem- in sem Atla var svo tamt að sýna vinum sínum ýtti undir hið sanna jólabragð. Börn og barnabörn Atla voru honum efst í huga og aldrei hitti maður Atla án þess að hann segði af þeim og fjölskyldunni allri. Önnu systur og Búbba bróður. Stoltið og væntumþykjan geislaði af honum í frásögninni og það seg- ir svo mikið um hvar hjarta hans sló að notandanafnið hans á Snapchat var afinr1. Fáa sögumenn þekkti ég betri en Atla. Hann ljómaði allur þegar hann komst í stuð og þegar best lét spurði hann sjálfur allra spurn- inga sem maður hefði mögulega getað spurt til að ýta undir fram- vinduna og svaraði sjálfum sér jafnóðum. Slík var ánægja hans á þessum stundum að það var ekki hægt annað en að hrífast með; jafnvel þótt maður hefði heyrt söguna áður, nokkrum sinnum. Hin síðustu ár voru erfið í lífi Atla eftir því sem sjúkdómurinn ágerðist en allt til hinstu stundar barðist hann af hugprýði eins og ljón. Ég ræddi við hann í síma fá- einum dögum áður en hann dó og þá dásamaði hann allt umhverfið þar sem hann var staddur, hlakk- aði til gönguferða við sjóinn og að byggja sig upp. Það var ekki hans stíll að leggjast niður og gefast upp. Hann vildi lifa hvern dag til fulls. Góða ferð elsku vinur okkar Atli og takk fyrir allt og allt. Birt- an sem skín af minningu þinni mun lýsa okkur leiðina áfram æv- ina á enda. Fjölskyldu Atla og ást- vinum öllum vottum við Símon okkar innilegustu samúð. Guðfinnur Sigurvinsson og Símon Ormarsson. Kveðja frá Allianz Látinn er Atli Eðvaldsson, fyrr- verandi landsliðsþjálfari, lands- liðsfyrirliði og atvinnumaður í knattspyrnu, langt fyrir aldur fram eftir erfið veikindi. Sem knattspyrnumaður var hann áræðinn enda þarf áræði, dug og hörku til að leika knattspyrnu í efstu deild í Þýskalandi. Leika svo vel að enn er munað eftir afrekum hans, svo sem því að Atli er fyrsti erlendi leikmaðurinn í Bundeslig- unni sem skorað hefur fimm mörk í einum leik. En Atli var ekki bara frum- kvöðull á knattspyrnuvellinum, hann var líka frumkvöðull, áræð- inn og duglegur í viðskiptum. Þótt það sé ekki alkunna í dag þá var það Atli sem fyrir 25 árum fékk þýska tryggingarisann Allianz til að bjóða Íslendingum þjónustu sína, en Allianz á Íslandi er 25 ára í ár. Til að eiga við Allianz í Þýska- landi þarf áræði og dug á sama máta og að spila knattspyrnu í Bundesligunni með þeim bestu. Innan Allianz, bæði á Íslandi og í Þýskalandi, er Atla minnst með hlýhug og virðingu. Við sem tengj- umst Allianz á Íslandi kveðjum Atla og vottum aðstandendum hans okkar dýpstu samúð. Fyrir hönd Allianz á Íslandi, Magnús Magnússon. Þegar ég hlustaði á minningar- orð um Atla fyrir leikinn gegn Moldóvu á laugardaginn þutu minningar í gegnum hugann við að horfa út á völl og hugsa til baka. Við spiluðum saman í íslenska landsliðinu í rúman áratug sam- fleytt og spiluðum saman í Val í allmörg ár. Ég kynntist Atla fyrst þegar ég var að koma upp í meistaraflokk Vals 1978. Þá höfðu nokkrir sem voru einu eða tveimur árum eldri en ég fengið eldskírn sína, urðu meðal annars tvöfaldir meistarar 1976. Margir góðir leikmenn komu upp á þessum tíma úr smiðju Róberts Jónssonar en árið 1978 er mér sérstaklega minnis- stætt þar sem Valur var með gríðarlega sterkan hóp og Atli SJÁ SÍÐU 54 Morgunblaðið/Kristinn Atli Eðvaldsson landsliðsþjálfari og Eiður Smári Guðjohnsen fagna góðum sigri gegn N-Írum. MINNINGAR 53 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2019 Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram- kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Guðmundur Baldvinsson, umsjón útfara Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is FALLEGIR LEGSTEINAR Auðbrekku 4, 200 Kópavogi, sími: 537-1029, www.bergsteinar.is Á góðu verði Verið velkomin Opið: 10-17 alla virka daga Okkar ástkæra ÓLÖF SVANA SAMÚELSDÓTTIR, Strikinu 2, Garðabæ, frá Hrafnabjörgum í Laugardal, Ísafjarðardjúpi, lést á Kvennadeild Landspítalans 6. september. Útför fer fram frá Vídalínskirkju í Garðabæ mánudaginn 16. september klukkan 15. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Ljósið stuðningsfélag krabbameinssjúkra og Líf styrktarfélag kvennadeildar Landspítalans. Aðstandendur þakka starfsfólki Kvennadeildar Landspítalans innilega fyrir einstaklega góða umönnun og hjartahlýju. Samúel Kristjánsson Ásdís Samúelsdóttir Hrafnhildur Samúelsdóttir Hjalti Samúelsson Sigurbjörn Samúelsson Guðmundur Samúelsson Helgi Guðjón Samúelsson og fjölskyldur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.