Morgunblaðið - 12.09.2019, Page 57

Morgunblaðið - 12.09.2019, Page 57
MINNINGAR 57 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2019 ✝ Símon Ólasonfæddist á Hnappavöllum í Öræfum, Austur- Skaftafellssýslu, 21. apríl 1951. Hann varð bráðkvaddur á Krít 23. ágúst 2019. Símon var sonur hjónanna Guðrúnar Gísladóttur, hús- freyju á Hnappa- völlum og síðar í Reykjavík, f. 27. desember 1926, d. 17. febrúar 2011, og Óla Run- ólfssonar, bónda á Hnappavöll- um, síðar verkstjóra í Reykjavík, f. 20. nóvember 1920, d. 20. júní 2003. Þau skildu. Systur Sím- onar eru Sigríður Guðrún, f. 8. mars 1948; Guðný Kristbjörg, f. 2. mars 1950; Katrín Sigurrós, f. 20. október 1953; Sigurbjörg, f. 10. ágúst 1957; Helga, f. 16. júlí 1960. Hinn 5. september 1982 kvæntist Símon eftirlifandi eiginkonu sinni, Þorbjörgu Jóns- kona er Guðbjörg Ásta Ólafs- dóttir, f. 22. janúar 1976, og eiga þau eina dóttur. Fyrir átti Ragnar eina dóttur og eitt barnabarn og Guðbjörg tvo syni. 3) Kristinn Nikulás, f. 12. janúar 1980. Sambýliskona er María del Mar Minuesa, f. 21. apríl 1979. Símon ólst upp á Hnappavöll- um fram á fermingaraldur en þá fluttust fjölskyldan til Reykjavíkur. Hann lauk stúd- entsprófi frá Menntaskólanum í Hamrahlíð árið 1971, cand. juris frá Háskóla Íslands árið 1977 og öðlaðist héraðsdómslögmanns- réttindi árið 1980. Símon starf- aði sem fulltrúi hjá bæjarfógeta- embættinu í Keflavík, Grindavík og Njarðvík sem þá var og einn- ig hjá sýslumanninum í Gull- bringusýslu á árunum 1977- 1987. Um tíu ára skeið rak hann lögfræðiskrifstofu í Reykjavík þar til hann réðst til starfa sem lögfræðingur hjá Íbúðalánasjóði árið 2008 og starfaði við stofn- unina þar til hann lést. Útför Símonar fer fram frá Áskirkju í dag, 12. september 2019, klukkan 15. dóttur hjúkrunar- fræðingi og fram- haldsskólakennara, f. 22. júní 1942. For- eldrar hennar voru Jón Eiríksson, skattstjóri í Vestur- landsumdæmi, f. 14. mars 1916, d. 21. október 1997, og fyrri kona hans Anna Guðrún Jóns- dóttir, húsfreyja, f. 29. júlí 1909, d. 11. janúar 1952. Barn Símonar og Ingibjargar Sigurðardóttir, f. 24. febrúar 1948, er Anna Karen Símonar- dóttir, f. 24. ágúst 1979. Hennar dóttir er Serena Björg Karen- ardóttir, f. 2. júlí 2010. Börn Þorbjargar og stjúpbörn Sím- onar eru: 1) Anna Guðrún Edvardsdóttir, f. 17. nóvember 1960. Eiginmaður er Kristján Arnarson, f. 13. nóvember 1964, og eiga þau tvo syni og eitt barnabarn. 2) Ragnar Edvards- son, f. 4. ágúst 1964. Sambýlis- Ég kveð þig, ástvinur minn, með þakklæti fyrir allt sem þú gafst mér. Það er viðeigandi að velja tvö erindi úr ljóðinu Tvær stjörnur eftir Megas þar sem hann var í uppáhaldi hjá þér. Þessi erindi lýsa að auki best hvernig mér líður nú þegar þú ert ekki lengur hér. Ég sakna þín í birtingu að hafa þig ekki við hlið mér og ég sakna þín á daginn þegar sólin brosir við mér. Og ég sakna þín á kvöldin þegar dimman dettur á. En ég sakna þín mest á nóttinni er svipirnir fara á stjá. Svo lít ég upp og sé við erum saman þarna tvær stjörnur á blárri festingunni sem færast nær og nær. Ég man þig þegar augu mín eru opin, hverja stund. En þegar ég nú legg þau aftur, fer ég á þinn fund. Hvíl í friði, elsku Símon. Þín Þorbjörg. Aðfaranótt föstudagsins 23. ágúst bárust þær fréttir frá Grikklandi að Símon, minn kæri stjúpfaðir, hefði orðið bráðkvadd- ur þá um nóttina. Þar höfðu hann og móðir mín dvalið í nokkra daga ásamt Önnu Karen, dóttur Símonar, og Serenu barnabarni hans. Fyrstu viðbrögðin voru vantrú; þetta gat bara ekki verið satt en síðan kom sorgin og hún er búin að dvelja hjá okkur síðan. Fyrstu kynni af Símoni voru þegar hann og móðir mín gengu í hjónaband fyrir 37 árum. Aðdragandinn var stuttur, því þau höfðu ekki þekkst lengi, en Símon var staðfastur; þessari konu ætlaði hann að giftast. Hún var um fertugt en hann 31 árs og verð ég að segja að ekki hefðu allir karlmenn verið tilbún- ir að giftast fráskilinni konu með þrjú börn; tvö þeirra um og yfir tvítugt, sem voru þar að auki ekki alveg sátt við þennan ráðahag og það yngsta tveggja ára, en þá átti Símon þriggja ára dóttur. Fljótlega kom í ljós hversu heilsteyptur persónuleiki Símon var og með okkur tókst djúp vin- átta sem hélst allar götur þar til hann lést. Símon var miklum mannkost- um búinn, hann var jarðbundinn, tók öllum hlutum með jafnaðar- geði og var rólegur og yfirveg- aður. Hann var mikill húmoristi, hjálpfús með eindæmum en um- fram allt mikið góðmenni. Það var gott að leita til hans því ef eitthvað bjátaði á eða einhver okkar þurfti aðstoð var hann boð- inn og búinn að leysa málin og yfirleitt tókst honum að greiða úr alls kyns flækjum. Hann gekk inn í hlutverk stjúpföður og leysti það vel af hendi. Eiginmanni mínum var hann góður tengdafaðir og sonum okk- ar góður afi. Fyrir ári varð hann langafi er eldri sonur okkar eign- aðist dóttur og var hann ánægður með þá nafnbót. Símon hafði gaman af því að ferðast bæði innan lands sem ut- an. Hann hélt mikið upp á æsku- stöðvarnar í Öræfunum og hélt tryggð við sveitina sína og fólkið þar alla tíð. Hann var vinmargur og kom fram við fólk af virðingu. Símon var pólitískur, þó svo að hann starfaði ekki fyrir einhvern stjórnmálaflokk, og sátum við oft og rökræddum pólitíkina, þótt við værum ekki alltaf í sama liðinu. Einnig var hann mikill ljóðaunn- andi, las alls kyns bókmenntir en Íslendingasögurnar voru alveg í sérstöku uppáhaldi hjá honum. Honum fannst gaman að tefla. Hann kenndi sonum okkar mann- ganginn og leiðbeindi svo áfram þeim yngri en hann sýndi tafl- mennsku áhuga þegar hann var unglingur. Nú þegar komið er að leiðar- lokum langar okkur að þakka Símoni samfylgdina. Við urðum þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að verða samferða honum um hríð. Við hefðum viljað fá meiri tíma með honum en í Sumarlandinu hefur vantað góðan lögfræðing. Hans verður sárt saknað en við getum yljað okkur við góðar minningar, þær getur enginn tekið frá okkur. Hvíl í friði, Sím- on og takk fyrir allt. Anna Guðrún og Kristján. Stundum er ofnotað orðatil- tækið að vera réttur maður á réttum stað á réttum tíma. Það er þó ekki hægt að horfa fram hjá því þegar fyrstu kynni Þorbjarg- ar ömmu minnar og Símonar Óla- sonar eru rifjuð upp. Þau kynnt- ust í samkvæmi kvöld eitt er árekstur við annan mann varð til þess að amma hellti drykk sínum yfir Símon. Það er umhugsunar- vert að þessi litli atburður varð kveikjan að því að fjölskylda mín auðgaðist til muna. Mér er minnisstætt þegar ég bjó hjá þeim hjónum er ég hóf grunnnám við Háskóla Íslands. Símon starfaði þá sem lögfræð- ingur hjá Íbúðalánasjóði á Sauð- árkróki og keyrði því alltaf heim til Reykjavíkur eftir vinnu á föstudögum. Þótt vissulega hafi alltaf verið glatt á hjalla hjá okk- ur ömmu voru föstudagarnir allt- af skemmtilegastir. Þá var eld- aður sérstaklega veglegur kvöldverður, oftast þríréttaður, og tekið á móti Símoni, sem yfir- leitt var kominn um kvöldmatar- leytið. Símon beið oftast ekki boðanna þrátt fyrir langa keyrslu eftir strembinn vinnudag og vor- um við yfirleitt strax farnir að ræða dægurmálin á léttu nótun- um, enda var Símon gáfum gæddur, einstakur húmoristi og var í þokkabót hláturmildur og átti auðvelt með að fá fólk til að hlæja. Líklega er það aðeins í fyllingu tímans sem ég mun átta mig að fullnustu á þeim áhrifum sem Símon hafði á mig og fjölskyldu mína en ljóst er að þau voru mik- il. Hann var ekki bara fósturfaðir móður minnar og fósturafi minn, heldur líka kær vinur sem gott var að leita til jafnt á góðum sem slæmum tímum. Við fjölskyldan sjáum nú á bak miklum afbragðs- manni en minningarnar um Sím- on eru sem betur fer ófáar og hver annarri betri. Guð blessi minningu Símonar Ólasonar. Þorbjörn Kristjánsson. Elsku Símon minn. Það voru afar sorglegar fréttir þegar mér barst þín andlátsfregn. Ég er satt best að segja ekki búin að átta mig á henni ennþá. Þú varst mér alltaf traustur vinur og þitt skarð verður vonlaust að fylla. En minningin um góðan bróður lifir. Frá því að ég var lítil varstu alltaf boðinn og búinn að hjálpa mér. Mér fannst dásamlegt að tala við þig, að heyra þig segja frá, ég gat hreinlega hlustað endalaust á þig. Það var líka alltaf svo gaman að hlusta á músík með þér, svo var húmorinn þinn einstakur. Alveg sama hversu gömul ég hef orðið þá passaðir þú upp á litlu systur þína, hvort sem það var við heimanámið eða skatta- skýrsluna. Þú varst alltaf bara eitt símtal í burtu. Ég mun sakna þess. Hver getur báti byrlaust siglt báti róið án ára. Góðum vini til grafar fylgt gengið á braut án tára. Ég get báti byrlaust siglt báti róið án ára. En góðum vini til grafar fylgt get ég ei án tára. (Þýð. Ríkharður Kristjánsson) Ég bið fyrir þér elsku bróðir minn. Elsku Þorbjörg, Anna Karen, Kiddi, Anna, Raggi og börn, mín- ar innilegustu samúðarkveðjur á þessum erfiðu tímum. Ykkar Helga. Kallið kom óvænt hjá kærum bróður. Hann var staddur á Krít í langþráðu sumarfríi. Þar átti að halda upp á fertugsafmæli einka- dótturinnar, Önnu Karenar. En öllu er afmörkuð stund. Margar spurningar vakna um tilgang lífsins og eilífðina þegar andlát ber svona brátt að. Þá sækja að minningar um liðna tíð og samveru. Það er ljúft að hugsa til þess að Símon var hamingju- samur þegar hann lést. Hann var ánægður í starfi sínu hjá Íbúðalánasjóði og var ekki tilbúinn að hætta störfum alveg strax. Nýta svo efri árin vel til að sinna hugðarefnum sínum og fjöl- skyldunni. Eftir mörg annasöm ár var hann farinn að njóta meiri tíma til samvista við ættingja og vini á gleðistundum. Síðustu árin höfum við systkinin hist æ oftar og rifjað upp gamla daga. Það var örugglega ekki alltaf auðvelt hlutskipti að vera einn bróðir á meðal fimm systra. Enda sagði hann aðspurður þegar fjórða systirin fæddist „ein systirin enn“ og stundi. En þrátt fyrir allt reyndist hann okkur systrum sínum vel og umbar okk- ur, jafn ólíkar sem við erum. Kannski fannst honum innst inni bara gott að það var ráðskast svolítið með hann þegar þess þurfti. Hann kvartaði a.m.k. aldr- ei. Símon var ekki margmáll mað- ur, orðvar, íhugull, greiðvikinn og góður skákmaður. Þá hlustaði hann mikið á óperur og átti sinn uppáhaldssöngvara, Jussi Björl- ing. Fornsögurnar voru líka hans uppáhald og frá unga aldri var hann alæta á allan fróðleik. Hann var örugglega gömul sál. Hann gat líka verið bráðskemmtilegur og hnyttinn í tilsvörum. Þótt dul- ur væri veittist honum auðvelt að sýna samhug, hlýju og nærgætni á erfiðum stundum. Hann trúði alltaf á það góða í öllum. Hann fylgdist vel með þjóðmálunum og á menntaskóla- og háskólaárun- um var hann einlægur hernáms- andstæðingur. Hin síðari ár var erfiðara að átta sig á því hvort hann væri far- inn að hallast meira að framsókn en til vinstri. Þótt hart væri spurt voru svörin yfirleitt þannig að „allir væru að reyna að gera sitt besta“. Það var alltaf gaman að ræða við hann um pólitíkina. Í einkalífi sínu var Símon far- sæll. Fyrir hjónaband eignaðist hann yndislega dóttur, Önnu Karenu, sem býr í Neskaupstað. Dóttir hennar er Serína, mikil afastelpa. Þorbjörgu sinni kvæntist hann nokkru síðar og fékk með henni þrjú börn, Önnu, Ragnar og Kidda sem hann um- gekkst af væntumþykju og virð- ingu. Kidda fannst t.d. mjög gam- an þegar mamma hans vann á næturvakt, þá fékk hann að lúra hjá Símoni sem las fyrir hann uppáhaldssögurnar hans fyrir svefninn. Símon var því umvafinn góðri fjölskyldu. Elsku Þorbjörg, missir þinn er mikill og fram undan eru erfiðir tímar. Þið Símon voruð jafnokar og bestu vinir. Ég votta þér og fjölskyldunni allri mína samúð. Megir þú sækja styrk og kraft í góðar minningar sem munu lifa áfram. Ég kveð góðan bróður með söknuði og óska honum góðrar heimkomu. Hann var drengur góður. Blessuð sé minning hans. Katrín. Elsku uppáhaldsfrændi minn. Símtalið sem ég fékk um skyndi- legt andlát þitt var svo fráleitt að mér fannst það vera bara vondur draumur sem ég hlyti að vakna upp af en svo er ekki. Þegar við töluðum saman daginn áður en þú fórst í þetta örlagaríka frí þitt datt mér ekki annað í hug en að við myndum hittast eftir heim- komu þína eins og við ætluðum að gera, hefði mig grunað hvað væri í vændum hefði ég ekki sleppt þér úr símanum og sennilega rokið til þín. Þú varst sá albesti frændi sem hægt er að hugsa sér. Þú varst svo mikið góður, skemmtilegur, hlýr, traustur og tryggur. Ég á ekkert nema góðar og fallegar minningar um þig sem segir bara hvernig maður þú varst. Þú varst alltaf til staðar sama hvað á bjátaði og ég er svo þakk- lát fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig. Við vorum ekkert afspyrnu dugleg að hringjast á eða hittast en þegar það gerðist var svo sannarlega gaman hjá okkur. Á síðasta ári bað ég þig um að vera mér innan handar og hjálpa mér við nokkuð sem þú auðvitað tókst vel í eins og við var að búast af þér. Þá fjölgaði símtölum okk- ar og við hittumst oftar, sem ég verð ævinlega þakklát fyrir. Við ætluðum auðvitað að standa okk- ur miklu betur og er viss um að okkur hefði tekist það með stæl. Takk elsku hjartans frændi minn fyrir alla þína góðsemd og vináttu öll árin okkar saman. Takk fyrir að vera besti frændi í heimi. Takk fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig. Takk fyrir alla hvatn- inguna og hjálpina. Heimurinn er svo sannarlega fátækari án þín. Það er huggun að vita af þér hjá ömmu og afa, veit að þau hafa tekið vel á móti þér. Elsku Þorbjörg, Anna Karen og Kiddi, ykkar missir er mikill. Ég bið algóðan Guð um að geyma ykkur og styrkja í ykkar sorg. Ykkur og aðstandendum öllum votta ég mína innilegustu samúð. Guð blessi og geymi elsku frænda minn Símon. Anna Sveinbjörg. Nú ríkir kyrrð í djúpum dal, þótt duni foss í gljúfrasal, í hreiðrum fuglar hvíla rótt, þeir hafa boðið góða nótt. Nú saman leggja blómin blöð, er breiddu faðm mót sólu glöð, í brekkum fjalla hvíla hljótt, þau hafa boðið góða nótt. Nú hverfur sól við segulskaut og signir geisli hæð og laut, en aftanskinið hverfur hljótt, það hefur boðið góða nótt. (Magnús Gíslason) Hafðu þökk fyrir allt og allt, elsku Símon frændi minn. Þótt þú hafir boðið góða nótt í hinsta sinn er ég viss um að þú vaknaðir í himnaríki þar sem amma og afi stóðu fremst í móttökunefndinni. Guðrún Óla Jónsdóttir (Gógó). Okkur, samstarfsfólki Símon- ar Ólasonar hjá Íbúðalánasjóði, var brugðið við fregnir af skyndi- legu fráfalli hans. Símon var í kærkomnu fríi erlendis, sem hann hafði hlakkað mikið til. Við glöddumst fyrir hans hönd en biðum þess af eftirvæntingu að hann mætti aftur til vinnu að lokinni dvölinni á Krít. Kannski sökum þess hve vanafastur og traustur Símon var var okkur þeim mun meira brugðið við þessar sorglegu fregnir en ella. Hægt var að ganga að því vísu að fá aðstoð Símonar við úrlausn mála. Hann var bóngóður og ósérhlífinn og skipti engu í því samhengi hvort til hans var leitað vegna einhvers sem tengdist vinnunni eða einhvers sem tengd- ist vinnunni alls ekki neitt. Alltaf var Símon boðinn og bú- inn að veita aðstoð sína eða ráð- gjöf, og þá yfirleitt með því ró- lynda yfirbragði sem einkenndi hann. Símon var enda fróðari um margt en flestir og gat nálgast fólk á þeirra eigin forsendum. Það var gott að leita til Símonar. Símon var sannarlega sterkur persónuleiki og fór aldrei fram hjá okkur þrátt fyrir að hann væri langt í frá fyrirferðarmikill. Hann var lítið fyrir slátt eða hamagang og tókst alltaf á við verkefni sín á yfirvegaðan og vandaðan máta. En nú, þegar Símon er farinn frá okkur, finn- um við öll fyrir því hversu mik- ilvægur hann var okkur og hversu mikinn svip hann setti á vinnustaðinn. Við eigum öll góðar minningar um Símon. Greiðviknin, skop- skynið og hlýjan eru allt eigin- leikar sem einkenndu hann, enda hafði hann vel yfir meðallagi af hverjum þeirra. Við munum sakna kaffispjallsins, veðmál- anna, gönguferðanna og lottó- leiðangranna, við munum sakna þess að fá vel ígrundaðar ráð- leggingar og við munum sakna nærveru Símonar, félaga okkar og vinar. Veistu ef þú vin átt þann er þú vel trúir og vilt þú af honum gott geta. Geði skaltu við þann blanda og gjöfum skipta, fara að finna oft. (Úr Hávamálum) Við sendum aðstandendum Símonar samúðarkveðjur og minnumst hans með hlýju og söknuði. Fyrir hönd samstarfsfólks Símonar hjá Íbúðalánasjóði í Reykjavík og á Sauðárkróki, Drengur Óla Þorsteinsson. Það var mér mikið áfall þegar ég fékk fregnir af ótímabæru andláti míns góða vinar, Símonar Ólasonar. Ég hef þekkt Símon frá því við vorum samskipa í Menntaskólan- um við Hamrahlíð. Góð vinátta varð á milli okkar er við hófum nám í lagadeild Háskóla Íslands. Hélst sú vinátta allt fram að hinstu stund. Við spjölluðum saman oft daglega og aldrei leið langur tími milli þess að við hitt- umst. Um tíma rákum við saman lögfræðistofu og þá náði ég að kynnast betur og njóta allra hans miklu mannkosta. Eins og margir geta vottað var Símon eldklár lögfræðingur og gott var að leita til hans á því sviði. Þá höfðum við báðir mikinn áhuga á tónlist ekki síst klass- ískri og gátum spjallað um og hlýtt á hana okkur báðum til mik- illar ánægju. Ég votta Þorbjörgu og fjöl- skyldu þeirra Símonar mína dýpstu samúð. Sigurjón Heiðarsson. „Gakktu í bæinn.“ Þannig tók Símon ætíð á móti mér þegar ég bankaði á þvottahúshurðina og ætlaði að kíkja á Þorbjörgu eða ræða húsfélagsmál við hann. Ég og mín fjölskylda erum svo heppin að hafa fengið að „búa“ með Símoni síðustu 12 árin, þó ekki deila sömu íbúð með honum heldur sama húsi. Það er alltaf óvissa sem fylgir því að fá nýja nágranna en við duttum heldur betur í lukkupottinn fyrir 12 ár- um þegar Símon og Þorbjörg fluttu til okkar á Bugðulækinn. Vinalegri og bónbetri mann en Símon var erfitt að finna og þau voru mörg handtökin sem við unnum í sameiningu í garðinum eða húsinu. „Þetta er sko ekkert mál“ var algengasta setningin sem maður fékk þegar viðruð var einhver hugmynd að verkefnum við hann. Það voru helst mál sem snéru að honum kisa hennar Þor- bjargar þar sem ég sá Símon gretta sig og fannst honum held- ur mikið tilstand í gangi. Það er með sorg í hjarta sem við kveðjum þennan öðling og þökkum honum fyrir samveruna, sambúðina og spjallið síðustu ár- in. Við fjölskyldan sendum Þor- björgu og fjölskyldu hennar okk- ar innilegustu samúðarkveðjur og minnum á að við erum alltaf til staðar fyrir hana eins og hún hef- ur verið fjölskyldunni okkar allt frá því við kynntumst. Sigrún, Bjarni Þór, Kristín Heiða og Þorgeir. Símon Ólason Sálm. 17.5-6 biblian.is Skref mín eru örugg á vegum þínum, mér skrikar ekki fótur. Ég hrópa til þín því að þú svarar mér, Guð,...

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.