Morgunblaðið - 12.09.2019, Blaðsíða 60
Þóra Kolbrá Sigurðardóttir
thora@mbl.is
Heitur púrrulauksbrauðréttur
½ fransbrauð
1 lítill brokkólíhaus
1 stk. paprika
½ púrrulaukur
1 pk. TORO púrrulaukssúpa
500 ml rjómi
300 ml vatn
200 g skinka
1 stk. brie-ostur
Rifinn ostur
Smjör og olía
Salt, pipar og hvítlauksduft
Smyrjið eldfast mót vel með
smjöri og skerið skorpuna af
brauðinu.
Þekið botninn vel með brauði og
geymið restina af sneiðunum þar til
síðar.
Skerið brokkólí í munnstóra bita
og saxið papriku og púrrulauk.
Steikið brokkólí í olíu og kryddið til
með salti, pipar og hvítlauksdufti.
Þegar það byrjar að brúnast má
setja eins og 5 msk. af vatni á
pönnuna og leyfa því að gufa upp
(þannig mýkist kálið).
Bætið þá lauk og papriku saman
við ásamt meiri olíu og kryddið til.
Dreifið grænmetisblöndunni yfir
brauðið í botninum og útbúið sós-
una á meðan á pönnunni.
Hrærið púrrulauksduftinu saman
við rjómann og vatnið og hrærið
vel þar til þykkist, takið þá af
hellunni.
Skerið brie-ostinn í litla bita
ásamt skinkunni. Dreifið því
óreglulega yfir grænmetið ásamt
restinni af brauðinu (rífið það nið-
ur).
Því næst má hella sósunni yfir
allt saman og rífa vel af osti yfir.
Bakið síðan við 180°C í um 30
mínútur eða þar til osturinn fer að
gyllast.
Heitur
púrrulauks-
brauðréttur
Brauðréttir eru ein af undirstöðufæðutegundum
þessarar þjóðar. Til að brauðréttur teljist vel
heppnaður þarf hann að fylgja ákveðnum hefðum
og þessi hér að neðan gerir það svo sannarlega. Í
honum er notast við púrrulaukssúpuduft sem hefur
lengi verið í miklu uppáhaldi hjá þjóðinni, svo miklu
reyndar að framleiðendur hennar í Noregi hafa
furðað sig á óvenju háum sölutölum héðan. Það er
engin önnur en Berglind Hreiðarsdóttir á Gotterí.is
sem á heiðurinn af þessari uppskrift.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Matarást
Mikilvægt er að
bera brauðrétti
fram vel heita.
Sælkerabrauðréttur
Það er fátt mikilvægara
á gott veisluborð en
girnilegur brauðréttur.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2019
Í botninn
1 dl haframjöl
1 dl púðursykur
1 dl hveiti
70 g smjör
Rúmlega ½ tsk. saltflögur
Ofan á
3 – 3½ dl fersk eða frosin
blanda af rifsberjum og hind-
berjum (eða einhver önnur
ber)
1½ dl hvítar súkkulaðiperlur
Ofninn hitaður í 175°C
(blástursstilling).
Í botninn: Allt sett í skál
og blandað saman með
fingrunum. Blandan sett í
eldfast mót eða leirpott.
Ofan á: Berjum dreift yfir
og síðan hvíta súkkulaðinu
Sett inn í ofn í 30-35 mín-
útur.
Skreytt með ferskum
berjum.
Borið fram volgt með
þeyttum rjóma og/eða ís.
Syndsamlega ein-
faldur eftirréttur
Eftirréttir ættu að vera miklu oftar á borðum. Þessi
eftirréttur er með þeim einfaldari – ekki er verra að
hann er líka mjög góður.
Fljótlegur Það tekur um það bil 45 mínútur
að gera þennan gómsæta eftirrétt.
Ljósmynd/Hanna Þóra
SÉRBLAÐ
–– Meira fyrir lesendur
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
Heimili &
hönnun
fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 27. september
Skoðuð verða húsgögn og innréttingar,
skrautmunir og fylgihlutir fyrir heimilið,
litir og lýsing ásamt mörgu öðru.
PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til mánudagins 23. september.