Morgunblaðið - 12.09.2019, Síða 62
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2019
„Við kynntumst þegar ég var í 9.
bekk og sótti um starf í unglinga-
vinnunni á Álftanesi þar sem Fannar
var flokkstjóri,“ segir Jökull Breki
um fyrstu kynni þeirra félaga. „Þú
varst alveg krefjandi ungur maður,“
bætti Fannar við brosandi. Þrátt
fyrir það að Jökull hafi verið krefj-
andi ungur maður hafði það ekki
áhrif á að vinátta myndaðist á milli
þeirra tveggja sem leiddi svo til þess
að fimm árum síðar stofna þeir
Hipsumhaps og fara að gera tónlist
saman. Hipsumhaps er úr dönsku og
mætti þýða sem tilviljunarkennt eða
allskonar. Fannar segir að sú lýsing
eigi vel við hljómsveitina. „Við leyf-
um lögunum bara að vera það sem
þau verða hverju sinni, við erum
ekkert að flokka okkur sem rokk-
band eða poppband. Við bara leyfum
okkur að prófa margt.“
Drengirnir sendu frá sér sitt
fyrsta lag, LSMÍ (Lífið sem mig
langar í), sem vakið hefur mikla at-
hygli undanfarnar vikur. Þeir stefna
að útgáfu plötu á næstu vikum þar
sem fleiri áhugaverð lög verður að
finna. Þú getur kynnst hljómsveit-
inni Hipsumhaps betur og hlustað á
skemmtilegt viðtal við þá félaga á
K100.is.
Tónlistin er hipsumhaps
Hipsumhaps Þeir Fannar Ingi og
Jökull Breki skipa Hipsumhaps.
Heilsuvörudeild Fjarðarkaupa heitir Fræið. Þar má finna mikið úrval af
heilsuvörum á hagstæðu verði. Í tilefni heilsudaga eru frábær tilboð í Fjarð-
arkaupum. Meðal annars er 25% afsláttur af öllum heilsuvörum frá NOW,
BIONA, SOLARY, Himneskri hollustu og Gula miðanum. Heilsuvörur frá
Beutelsbacher og Sonett eru á 20% afslætti.
Veglegar gjafakörfur
Milli klukkan 14 og 16 á laugardag verður K100 í beinni útsendingu frá
versluninni. Allir sem versla í Fjarðarkaupum á laugardag fá að snúa lukku-
hjóli K100 og geta unnið veglegar gjafakörfur eða gjafabréf. Allir sem snúa
K100 lukkuhjólinu fá einhvern glaðning.
K100 í beinni á heilsudögum Fjarðarkaupa
K100 tekur virkan þátt í heilsudögum Fjarðarkaupa
sem standa núna yfir. Bein útsending verður frá
versluninni á laugardag þar sem mikið verður um
að vera. Glæsilegir vinningar verða í Lukkuhjóli
K100 sem verður snúið á staðnum.
Heilsan K100 verður í beinni frá Fjarðarkaupum á laugardag í tilefni heilsudaga þar á bæ.
Það var mikið stuð sl. fimmtudag í Sporthúsinu þar sem K100 stóð fyrir K100-deginum
þar á bæ. Fjöldi fyrirtækja kynnti starfsemi sína og vörur ásamt því sem allir fengu að
kynnast starfsemi Sporthússins og gengu út vopnaðir vikupassa frá þeim sem veitir frían
aðgang.
Líf og fjör í Sporthúsinu á K100 deginum
Morgunblaðið/Hari
Kírópraktor Kírópraktorstofa Íslands var meðal þeirra sem kynntu starfsemi sína.Stemning Það var glatt á hjalla í Sporthúsinu á fimmtudag.
Morgunblaðið/Hari