Morgunblaðið - 12.09.2019, Side 67
ÍÞRÓTTIR 67
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2019
hópnum í sumar hafa verið mjög
góðar. Við misstum frá okkur fimm
leikmenn sumarið 2018 og þá feng-
um við tvo þrjá unga leikmenn inn í
staðinn. Það var þess vegna eðlilegt
framhald að við myndum styrkja
hópinn okkar aftur í sumar. Egill er
mjög góð búbót fyrir þetta lið og það
gerir mikið fyrir félagið að fá Ísak
aftur heim úr atvinnumennsku.
Markmaðurinn Phil Döhler er búinn
að vera með okkur allt undirbún-
ingstímabilið og hann lítur mjög vel
út. Egill og Ísak hafa báðir verið að
glíma við smá meiðsli og það er eitt-
hvað í að Egill snúi aftur en vonandi
detta þeir báðir inn þegar líða fer á
haustið.“
Ásbjörn er einn af reyndustu leik-
mönnum Hafnarfjarðarliðsins og
viðurkennir fúslega að liðið ætli sér
að berjast í kringum toppinn í vetur.
„Ég hef spilað í mörgum sterkum
FH-liðum í gegnum tíðina og það er
erfitt að ætla að fara að bera þau
saman við liðið núna sem er bara að
hefja nýtt keppnistímabil. Það verð-
ur auðveldara að bera þetta allt sam-
an í lok tímabilsins þegar við erum
búnir að ganga í gegnum bæði töp
og sigra saman. Það er þá sem al-
vöru liðsheild og kjarni myndast og
þá sér maður úr hverju menn eru
gerðir. Hins vegar eru miklir hæfi-
leikar í liðinu í dag og vonandi náum
við bara að sýna okkar rétta andlit í
vetur. Við erum búnir að setja okkur
ákveðin markmið sem hópur og
stefnum hátt í vetur. Að sama skapi
ætlum við okkur að taka einn leik
fyrir í einu og við náðum til dæmis
einu markmiði um síðustu helgi
þegar við komumst í aðra umferð
EHF-bikarsins. Við erum ekki að
horfa of langt fram í tímann en að
sjálfsögðu langar okkur að berjast í
og við toppinn. Við erum FH og við
viljum berjast um þá titla sem í boði
eru.“
Setja stefn-
una hátt í
Kaplakrika
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Aðstoðarþjálfari Ásbjörn er með hlutverk innan vallar sem utan.
Ásbjörn telur að úrvalsdeildin í ár sé
bæði sterkari og jafnari en oft áður
FH
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Ásbjörn Friðriksson, leikmaður
FH í handknattleik og aðstoðarþjálf-
ari liðsins, er spenntur fyrir kom-
andi keppnistímabili í úrvalsdeilld
karla en Ásbjörn reiknar með því að
deildin í ár verði jafnari en hún hef-
ur oft verið áður. FH-ingar urðu
bikarmeistarar á síðustu leiktíð en
féllu úr leik í átta liða úrslitum Ís-
landsmótsins eftir tap gegn ÍBV.
FH er spáð efsta sætinu í ár af fyr-
irliðum og þjálfurum deildarinnar.
„Við erum búnir að æfa mjög vel í
sumar og tímabilið leggst vel í
okkur. Það er góð stemning í hópn-
um og við erum allir mjög jákvæðir
fyrir komandi tímabili. Allar spár
eru auðvitað til gamans gerðar en
það er alveg raunhæft að setja okk-
ur í og við toppinn myndi ég segja.
Við gerum okkur fulla grein fyrir því
að við erum með gott lið en að sama
skapi eru önnur mjög góð lið í þess-
ari deild í ár eins og ÍBV, Valur, Sel-
foss og Haukar sem dæmi. Aftureld-
ing, Stjarnan og ÍR eru líka öll með
hörkulið og við eigum von á því að
deildin verði mjög jöfn. Deildin er
alltaf að verða sterkari og sterkari
og það er komin meiri breidd í þau
lið sem hafa kannski verið í ákveðnu
miðjumoði undanfarin ár. Það verð-
ur þess vegna enginn leikur gefins í
vetur og mikilvægt fyrir okkur að ná
upp ákveðnum stöðugleika snemma
í okkar leik ef við ætlum okkur að
vera við toppinn.“
Tekur tíma að mynda liðsheild
Hafnfirðingar hafa bætt við sig
þremur nýjum leikmönnum í sumar
sem allir styrkja liðið að sögn Ás-
björns.
„Þessar breytingar á leikmanna-
MARKVERÐIR:
Birkir Fannar Bragason
Phil Döhler
Sigurður Dan Óskarsson
HORNAMENN
Arnar Freyr Ársælsson
Birgir Már Birgisson
Eyþór Örn Ólafsson
Hlynur Jóhannsson
Jakob Martin Ásgeirsson
Leonharð Þorgeir Harðarson
Veigar Snær Sigurðarson
LÍNUMENN:
Ágúst Birgisson
Davíð Stefán Reynisson
Jóhann Karl Reynisson
Jón Bjarni Ólafsson
ÚTISPILARAR:
Ásbjörn Friðriksson
Benedikt Elvar Skarphéðinsson
Bjarni Ófeigur Valdimarsson
Egill Magnússon
Einar Rafn Eiðsson
Einar Örn Sindrason
Gísli Jörgen Gíslason
Ísak Rafnsson
Jóhann Birgir Ingvarsson
Þjálfari: Sigursteinn Arndal
Aðstoðarþjálfari: Ásbjörn Frið-
riksson
Árangur 2018-19: 4. sæti og 8-liða
úrslit.
Íslandsmeistari: 1956, 1957, 1959,
1960, 1961, 1965, 1966, 1969, 1971,
1974, 1976, 1984, 1985, 1990, 1992,
2011
Bikarmeistari: 1975, 1976, 1977,
1992, 1994, 2019
FH tapaði 32:20-fyrir Selfossi í
fyrstu umferð deildarinnar í
Kaplakrika í gær.
Lið FH 2019-20
KOMNIR
Egill Magnússon frá Stjörnunni
Ísak Rafnsson frá Schwaz Tirol
(Austurríki)
Phil Döhler frá Magdeburg (Þýska-
landi)
FARNIR
Kristófer Fannar Guðmundsson,
hættur
Breytingar á liði FH-inga
FH er með frábæran leikmannahóp og mikla
breidd.
Það verður að teljast líklegt að bæði markvarsla
og varnarleikur liðsins verði betri í vetur en á síð-
ustu leiktíð.
FH verður að berjat um alla titla sem í boði eru.
Áhugavert: Mikil áskorun og frábært tækifæri
fyrir óreyndan þjálfara.
Sebastian Alexandersson
um FH
Eftir úrslitin í Albaníu eru sjálf-
sagt margir tilbúnir að afskrifa
þann möguleika að karlalands-
liðið í knattspyrnu komist á
þriðja stórmótið í röð.
En landsliðsmennirnir geta enn
náð markmiðum sínum og ég er
ekki tilbúinn að útiloka það. Þeir
hafa unnið fyrir því að maður
hafi álit á þeim. Enda er ekki eins
og Ísland hafi farið taplaust í
gegnum útileikina í undan-
keppnum síðustu ára.
Þegar Ísland komst upp úr riðl-
inum og í umspil fyrir HM 2014
tapaði Ísland fyrir Kýpur á úti-
velli í riðlinum. Einnig tapaði liðið
þá heima fyrir Slóveníu 2:4.
Þegar Ísland komst á EM 2016
tapaði Ísland bæði fyrir Tékk-
landi og Tyrklandi á útivelli.
Vissulega sterkar þjóðir og Ís-
land var komið áfram þegar liðið
tapaði í Tyrklandi. En sýnir samt
sem áður að hægt er að tapa
leikjum en komast samt áfram.
Þegar Ísland komst á HM 2018
tapaði Ísland fyrir Finnum á úti-
velli. Einnig gegn Króatíu á úti-
velli en svo sem er ekkert skrítið
við þau úrslit.
Staðan er vissulega snúin í
þessari undankeppni eftir tapið í
Albaníu og lítt traustvekjandi að
fá á sig fjögur mörk. Íslenska lið-
ið á eftir að mæta heimsmeist-
urunum auk þess sem liðið á eft-
ir að fara til Tyrklands. En hversu
oft höfum við séð íslensk lands-
lið fara fjallabaksleið og komast
á leiðarenda?
Í gegnum tíðina hefur verið af-
skaplega erfitt að fara til Tyrk-
lands. En eftir 3:0-sigur Íslands
þar haustið 2017 gæti sá róður
verið aðeins léttari fyrir okkar
menn. Í það minnsta er gott fyrir
sálartetrið að hafa unnið í Tyrk-
landi fyrir stuttu.
BAKVÖRÐUR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
SMÁRALIND icewear.is
GOLA | Barna regnbuxur Kr. 4.990.-St. 98-152
St. 86-110
Barna regnjakki Kr. 5.990.-
GARRI Pollajakki Kr. 4.990.-| Pollabuxur Kr. 2.750.-