Morgunblaðið - 12.09.2019, Side 80
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
laugardaga og sunnudaga 12-18
mánudaga - föstudaga 11-18:30
LJÓSADAGAR
12.-23. SEPTEMBER
20-50%
AF ÖLLUM LJÓSUM
PERUM, KERTUM OG LUKTUM
FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 255. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Íslandsmeistararnir í Breiðabliki
unnu magnaðan 3:2 sigur á Spörtu
Prag í 32-liða úrslitum Meistara-
deildar kvenna í knattspyrnu á
Kópavogsvelli í gærkvöld. Breiða-
blik lenti 1:2 undir í leiknum en
tókst engu að síður að kreista
fram sætan sigur. Liðin eiga eft-
ir að mætast aftur og þá í
Tékklandi. »69
Sætur sigur Blika í
fjörugum leik
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Jean-Efflam Bavouzet leikur einleik í
Píanókonsert fyrir vinstri hönd eftir
Maurice Ravel á fyrstu áskriftartón-
leikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands
sem fram fara í Eldborg Hörpu í kvöld
kl. 19.30. Hljómsveitarstjóri er Yan
Pascal Tortelier, fyrrverandi aðal-
stjórnandi hljómsveitarinnar. Önnur
verk á efnisskránni eru L’Arlésienne,
svíta eftir Georges Bizet, Aeriality
eftir Önnu Þorvaldsdóttur og Sin-
fónía nr. 1 eftir
Jean Sibelius.
Efnisskráin
verður aftur
tekin upp í
febrúar 2020
þegar hljóm-
sveitin heldur í
tónleikaferð til
Bretlands.
Upphafstónleikar
Sinfóníunnar í kvöld
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Krækiber og aðalbláber fáum við
alls staðar af landinu og sprettan í
sumar hefur verið góð,“ segir
Bjarni Óskarsson á Völlum í Svarf-
aðardal. Hann er gjarnan kenndur
við veitingastaðinn Nings í Reykja-
vík, sem synir Bjarna og Hrafn-
hildar Ingimarsdóttur reka nú. Þau
hjónin einbeita sér nú að starfsemi
sinni í Svarfaðardal, berjabúinu á
Völlum hvar þau eru með sólberja-
runna á einum hektara.
Í gróðurhúsum eru ræktuð
jarðarber og hindber en annað
lyngaldin er aðkeypt að mestu
leyti. Berin eru síðan seld í völdum
verslunum, en að mestum hluta þó í
matarversluninni á Völlum, sem er
vinsæll viðkomustaður sælkera.
Taílenskar konur
duglegar að tína ber
„Í Böggvisstaðafjalli hér fyrir of-
an Dalvík er mikið af berjum og
eins í Ólafsfjarðarmúla. Fólk getur
haft ágætt upp úr berjatínslu, en
fyrir kílóið borgum við 1.600 krón-
ur. Mér finnst annars eftirtektar-
vert hvað konur frá Taílandi sem
búsettar eru hér á landi eru dug-
legar við að tína ber og skapa sér
tekjur; þrautseigjan og barátta við
að bjarga sér virðist þeim í blóð
borin,“ segir Bjarni. Þau Hrafn-
hildur kona hans keyptu Velli, sem
eru í austanverðum Svarfaðardal,
árið 2004. Ætlun þeirra í fyrstu var
að eiga þarna góðan sumardvalar-
stað og fara út í skógarbúskap.
Þegar möguleikarnir á staðnum
komu í ljós var þó einboðið að nýta
þá!
„Við bjuggum auðvitað að því að
hafa lengi staðið í veitingarekstri
fyrir sunnan, sem er mjög
skemmtilegt. Reksturinn hér fyrir
norðan er það líka, en bara allt
öðruvísi,“ segir Bjarni.
Gæsakjöt og reyktur ostur
Sælkeraverslunin á Völlum er í
mjólkurhúsi gamla fjóssins þar –
og þar sem kýrnar voru áður á bás-
um hefur nú verið útbúin góð og
viðurkennd aðstaða til matvæla-
framleiðslu. Á einu borði eru berin
flokkuð, hreinsuð, vegin og sett í
öskjur og á öðrum stað er útbúin
sulta. Einnig er kjöt unnið á Völl-
um, til dæmis af gæsum og geitum
á næsta bæ. Bleikja og lax fara í
reyk og fyrir utan húsin í sér-
stökum ofni er reyktur ostur; 10-15
tegundir að jafnaði. Er osturinn
unninn úr gerilsneyddri mjólk frá
MS. Þá er á boðstólum saltfiskur
frá Dalvík; sólþurrkaður með gam-
alli en sígildri verkunaraðferð.
Mætti svo lengi telja áfram góð-
gætið á nægtaborðinu á Völlum.
„Heimavinnsla og sala beint frá
býli er hvarvetna í sókn og vekur
áhuga. Þetta er starfsemi sem býð-
ur upp á mörg tækifæri ef rétt er á
málum haldið,“ segir Bjarni, sem
er að sunnan en hefur öðlast rót-
festu í Svarfaðardal.
Sælkerabúðin í
Svarfaðardalnum
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Úrval „Heimavinnsla og sala beint frá býli er hvarvetna í sókn og vekur
áhuga,“ segir Bjarni Óskarsson, sem hér heldur á reyktum osti og sultum.
Veislan á Völlum Sólber og saltfiskur Reyktur lax og bleikja
Sveitin Blómahaf er við dyrnar á fjósinu á Völlum sem nú hefur verið
breytt í matvælavinnslu og verslunin er í mjólkurhúsinu fremst á myndinni.
Þekktasta ljóðasafn Inger Christen-
sen, Alfabet (1981), verður flutt í
sem hljóðverk eftir tónskáldið
Hannah Schneider í Norræna hús-
inu í kvöld kl. 19.30. Meðal flytj-
enda eru Sjón og Gerður Kristný.
Viðburðurinn er haldinn í tilefni af
50 ára afmæli bókasafns Norræna
hússins og er hluti af seríunni Höf-
undakvöld í Norræna húsinu. Ekki
verður streymt frá viðburðinum og
aðeins eru 40 miðar í boði.
Bókmenntatónleikar
í Norræna húsinu