Morgunblaðið - 26.09.2019, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2019
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
595 1000
Krít
30. september
10 nætur
Verð frá kr.
99.995
Gríska eyjan
Síðustu sætin!
Verð frá kr.
118.995
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Laugavegur frá Klapparstíg að Ing-
ólfsstræti, Skólavörðustígur frá
Bergstaðastræti að Laugavegi og
Bankastræti frá Skólavörðustíg að
Þingholtsstræti verða áfram göngu-
götur í vetur. Þetta var samþykkt í
skipulags- og samgönguráði borgar-
innar í gær. Um er að ræða framleng-
ingu á lokun til 1. maí 2020, en lok-
unin átti annars að renna út 1.
október 2019. Í skipulagsráði var
einnig samþykkt tillaga að fyrsta
áfanga að nýju deiliskipulagi fyrir
Laugaveginn sem göngugötu, en sú
tillaga fer fyrir borgarráð í dag. Í
þeirri tillögu felst að hlutar Lauga-
vegar, Skólavörðustígs og Vegamóta-
stígs verða gerðir að varanlegum
göngugötum og göturnar og um-
hverfi þeirra endurnýjað.
„Lögð verður áhersla á að bæta
umhverfi götunnar, skapa heildstæða
götumynd, tryggja skilyrði fyrir fjöl-
breytta ferðamáta og opin almenn-
ingsrými. Við hönnun og skipulag
gatnanna verður tekið mið af stefnu
um gæði í manngerðu umhverfi,“
segir í umfjöllun um tillöguna á vef
borgarinnar, en gert er ráð fyrir að
deiliskipulagið verði afgreitt á fyrsta
fjórðungi næsta árs.
„Þetta verður gert í nokkrum
áföngum og þarna er verið að tala um
fyrsta áfanga,“ segir Þórdís Lóa Þór-
hallsdóttir, oddviti Viðreisnar í borg-
inni, sem býst við því að tillagan verði
samþykkt í borgarráði í dag. „Það er
ekki síður verið að endurhanna göt-
urnar upp á aðgengi fyrir fatlaða líka.
Í dag komast fatlaðir varla inn í búð-
irnar. Það er bara staðreynd,“ bætir
hún við.
Laugavegurinn aðgengilegri
Spurð hvort meirihlutinn í borg-
inni hafi mætt mikilli andstöðu frá
verslunareigendum við þessi áform
segir hún að flestir séu ánægðir með
breytingarnar. „Það hafa verið skipt-
ar skoðanir á þessu hjá nokkrum að-
ilum en langstærsti hópurinn er
ánægður með þetta. Auðvitað hefur
fólk mismunandi skoðanir á því
hvernig þetta á endanlega að vera en
langflestir eru sammála um það að
Laugavegurinn verður miklu að-
gengilegri og líflegri þegar upp er
staðið,“ segir Þórdís.
Eyþór Arnalds, oddviti
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík,
gagnrýnir flýtimeðferðina sem málið
er að fá innan borgarinnar og telur að
ekki hafi verið farið í nægjanlegt
samráð við hagsmunaaðila. „Ég hefði
viljað að það hefði verið farið í raun-
verulegt samráð við þá aðila sem voru
tilteknir í byrjun, þ.e. rekstraraðil-
ana, íbúa og hreyfihamlaða. En til-
lagan hefur ekkert breyst og það er
svona flýtimeðferð í gangi,“ segir Ey-
þór.
Ekki réttu vinnubrögðin
Eyþór bætir við að honum finnist
það ekki réttu vinnubrögðin að málið
fái flýtimeðferð innan borgarinnar.
„Það er stundum þannig að deili-
skipulög verða að deilu. Það þarf ekki
mikið til en í þessu máli er ljóst að
rekstraraðilarnir leggjast alfarið
gegn þessari útfærslu og það er erfitt
hjá þeim. Við munum klárlega gera
okkar til þess að breyta þessu. Þetta
fór í samráðsferli því við beittum okk-
ur fyrir því í byrjun. Við munum beita
okkur fyrir því að það verði raun-
verulegt samráð og þeir sem eru að
reka verslanir hafi eitthvað um það
að segja alveg eins og þeir sem eru að
reka verslanir í Kringlunni hafi eitt-
hvað um það að segja,“ segir Eyþór.
Laugavegurinn áfram göngugata
Lokun Laugavegar fyrir bílaumferð framlengd Tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir Laugaveg sem
göngugötu lögð fyrir borgarráð í dag Oddviti Sjálfstæðisflokksins gagnrýnir vinnubrögð borgarinnar
Morgunblaðið/Eggert
Lokun Laugavegur og fleiri götur í borginni verða áfram göngugötur í vetur.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
dómsmálaráðherra segir hrein-
skiptnislegar og góðar umræður
hafa átt sér stað á fundi hennar með
stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Al-
þingis í gærmorgun. Þar hafi hún
farið yfir þær skipulagsbreytingar
sem eru til skoðunar á embætti
ríkislögreglustjóra sem og stuttlega
farið yfir stöðu ríkislögreglustjóra.
„Hann situr áfram sem ríkislög-
reglustjóri, það er verið að skoða öll
þessi mál í heild sinni í ráðuneytinu.
Embættið nýtur trausts, þar er ver-
ið að vinna góða vinnu og margt gott
fólk er að sinna því,“ sagði Áslaug
Arna í samtali við mbl.is.
Ráðherrann mun á næstu dögum
ræða skipulagsbreytingar innan lög-
reglunnar við hlutaðeigandi aðila og
býst hún við að því verði lokið innan
örfárra vikna. „Við munum setjast
niður með þeim á næstu dögum til
að ræða þær hugmyndir sem ég hef
að breytingum og hvernig þau sjá
fyrir sér að best sé að taka næstu
skref.“
Mótmælti og gekk út
Brynjar Níelsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins og nefndar-
maður, yfirgaf fundinn um svipað
leyti og ráðherrann gekk þar inn.
Var það gert til að mótmæla vinnu-
brögðum Þórhildar Sunnu Ævars-
dóttur, þingmanns Pírata og for-
manns nefndarinnar.
„Fundurinn hefst og ég andmæli
því að formaður taki að sér að boða
fund af þessu tagi án þess að tala við
kóng né prest. Ég gekk út áður en
ráðherra kom inn,“ sagði Brynjar í
gær og hélt áfram: „Stóra atriðið í
þessu er það að ég lít á svona uppá-
komur hjá nefndarformanni sem
pólitískt sjónarspil. Málefni lögregl-
unnar heyra undir ráðherra og það
er ráðherra að leysa úr þeim vanda-
málum sem þarna eru.“
Þá sagði Brynjar þingmenn ekk-
ert hafa með það að gera að vera
með uppákomur sem þessar. „Það
væri þá ekki fyrr en að lokinni
ákvörðun ráðherra, ef nefndin teldi
hana ekki vera að lögum eða slíkt,“
sagði hann og bætti við: „Það er
bara orðin lenska hér á þessu þingi,
ef einhver maður er handtekinn á
Austurvelli, þá eru einhverjir þing-
menn komnir með þetta inn á nefnd-
arfund. Það er þetta sem ég er að
andmæla og ég ætla ekki að vera
þátttakandi í einhverju svona.“
Inga Sæland, formaður Flokks
fólksins, sá ástæðu til að mótmæla
framkomu Brynjars á þingfundi í
gær. Sagði Inga það vera „sárara en
tárum taki að horfa upp á þá uppá-
komu sem var þar“ í gærmorgun.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Nefndarfundur Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra sat fyrir svörum hjá þingmönnum í gær.
Embætti RLS nýtur
trausts ráðherrans
Pólitískt sjónarspil í gangi, segir Brynjar Níelsson
Opinn fundur um aðgerðir í lofts-
lagsmálum fór fram í hátíðarsal
aðalbyggingar Háskóla Íslands í
gær. Jón Atli Benediktsson, rektor
Háskóla Íslands, og Michael Mann,
sendiherra Evrópusambandsins á
Íslandi, voru meðal þeirra sem
fluttu ávörp. Bjargey Anna Guð-
brandsdóttir, verkefnastjóri við
Háskóla Íslands, stýrði pallborðs-
umræðum og segir hún að umræð-
an hafi verið lífleg. „Það voru fleiri
af eldri kynslóðinni en yngri sem
mættu, sem var mjög áhugavert,“
segir Bjargey, en undirskrift fund-
arins var um hvort ábyrgðin á lofts-
lagsmálum væri bara unga fólksins.
Þá segir hún að það hafi verið gam-
an að sjá að jafnvel eldri borgarar
mættu og létu loftslagsmálin sig
varða
Bjargey segir að áhersla fundar-
ins hafi verið samstarf og sameigin-
leg ábyrgð og að samtalið um lofts-
lagsmál sé ekki í skotgröfum. „Svo
var farið um víðan völl eins og af
hverju stóriðjan er utan sviga og
flugið. Sem eru ansi stórir póstar,“
segir Bjargey.
Frummælendur og þáttakendur í
pallborðsumræðum voru Eggert
Benedikt Guðmundsson, forstöðu-
maður Samráðsvettvangs um lofts-
lagsmál, Jóna Þórey Pétursdóttir,
forseti Stúdentaráðs Háskóla Ís-
lands, Pétur Halldórsson, formaður
Ungra umhverfissina, og Justine
Vanhalst, sérfræðingur við Matís
og verkefnastjóri Climathon. Að
sögn Bjargey mun þessi nýi sam-
starfsvettvangur um loftslagsmál
hitta unga fólkið á næstu vikum og
var opni fundurinn upphafið að því.
mhj@mbl.is
Opinn fundur um
loftslagsmál í HÍ
Áhersla á sameiginlega ábyrgð