Morgunblaðið - 26.09.2019, Blaðsíða 34
34 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2019
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Háaleitisbraut 58–60 • 108 Reykjavík • Sími: 553 1380
Ertu klár fyrir veturinn?
Hreinsum allar yfirhafnir, trefla,
húfur og fylgihluti.
STOFNAÐ 1953
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Centara ehf. hefur fest kaup á upp-
lýsingatæknifyrirtækinu Wise
lausnir ehf., stærsta sölu- og þjón-
ustuaðila hér á landi á Microsoft
Dynamics NA-viðskiptabúnaði.
Kaupverð er
rúmur 1,1 millj-
arður króna, eins
og fram kemur í
tilkynningu selj-
andans, AKVA
Group í Noregi,
til kauphallar.
Gunnar Björn
Gunnarsson,
stjórnarformað-
ur Wise, segir í
samtali við
Morgunblaðið að við frágang við-
skiptanna í gærmorgun hafi það
komið fram meðal annars í máli
Kviku banka að þetta væri í fyrsta
skipti frá efnahagshruni sem er-
lendur aðili sem selji fyrirtæki til
íslenskra aðila hafi valið að fá
greitt fyrir sinn hlut í krónum.
„Þeir vildu ekki fá norskrar krón-
ur, dollara eða evrur. Þeir hafa svo
mikla trú á íslensku krónunni. Það
er nokkuð sem við Íslendingar get-
um verið stoltir af,“ segir Gunnar.
Hætt við kaup í júní
Í júní sl. var tilkynnt að ekkert
hefði orðið af kaupum upplýsinga-
tæknifyrirtækisins Advania á Wise,
en upphaflega var tilkynnt um þau
kaup í september í fyrra. Fallið var
frá kaupunum vegna afstöðu Sam-
keppniseftirlitsins til viðskiptanna,
eins og það var orðað á sínum tíma.
„Við fórum beint að skoða þessi
kaup þegar Advania hætti við, og
við kláruðum samningaviðræður á
sex vikum, sem er ótrúlega stuttur
tími til að ljúka öllum samningum,
áreiðanleikakönnunum og verð-
mati,“ segir Gunnar.
Eins og áður hefur verið fjallað
um í Morgunblaðinu ákvað Akva
Group upphaflega árið 2016 að
leita tilboða í félagið, sem áður
gekk undir nafninu Maritech.
Centara og Wise hafa átt í góðu
sambandi síðustu ár. Skrifstofur
þeirra eru hlið við hlið í Borgartúni
26, og hefur Wise átt kost á að
selja verslunar- og veitingahúsa-
kerfi Centara samhliða eigin lausn-
um. Vinátta og traust ríkir á milli
fyrirtækjanna, að sögn Gunnars.
Stærðarmunur mikill
Athygli vekur stærðarmunur á
kaupanda og seljanda. Ársvelta
Wise á síðasta ári var rúmir 1,5
milljarðar en velta Centara á sama
tímabili náði ekki tíunda hluta af
því; var um 130 milljónir króna.
Gunnar segir að Varða Capital
og Kvika banki fjármagni viðskipt-
in.
Jónas Hagan, einn eigenda
Vörðu Capital, mun taka sæti í
stjórn Wise Lausna ehf. eftir við-
skiptin.
Centara er dótturfyrirtæki Hug-
búnaðar ehf., sem er eitt elsta hug-
búnaðarhús landsins, stofnað árið
1981, eins og segir í tilkynning-
unni.
Vildu fá greitt í
íslenskum krónum
Upplýsingatækni Hjá Wise og Centara starfa samtals 90 starfsmenn.
Centara kaupir Wise á 1,1 ma.kr. Tíu sinnum stærra
Þjónusta
» Wise sérhæfir sig í lausnum
fyrir mörg af stærstu fyrir-
tækjum landsins, þar á meðal
sveitarfélög og fyrirtæki í
sjávarútvegi, framleiðslu og
verslun.
» Heildarvelta Wise var 1.517
milljónir króna 2018.
Gunnar Björn
Gunnarsson
26. september 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 124.56 125.16 124.86
Sterlingspund 155.16 155.92 155.54
Kanadadalur 93.91 94.47 94.19
Dönsk króna 18.322 18.43 18.376
Norsk króna 13.776 13.858 13.817
Sænsk króna 12.795 12.869 12.832
Svissn. franki 125.86 126.56 126.21
Japanskt jen 1.1558 1.1626 1.1592
SDR 170.32 171.34 170.83
Evra 136.82 137.58 137.2
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 166.7961
Hrávöruverð
Gull 1520.25 ($/únsa)
Ál 1755.0 ($/tonn) LME
Hráolía 64.4 ($/fatið) Brent
Knattspyrnuumboðsmennirnir
Bjarki Gunnlaugsson og Magnús
Agnar Magnússon, sem hafa undan-
farin ár rekið starfsemi sína undir
merkjum Total Football, hafa geng-
ið til liðs við Stellar Group-umboðs-
mannasamsteypuna, sem er sú
stærsta í heimi og er með á sínum
snærum landsliðsmennina Jóhann
Berg Guðmundsson, Gylfa Þór Sig-
urðsson, Aron Einar Gunnarsson og
Gareth Bale, svo einhverjir séu
nefndir.
Jonathan Barnett, stjórnar-
formaður Stellar Group og stofn-
andi umboðsmannaskrifstofunnar,
segir að fyrirtækið sé ávallt í leit að
nýjum tækifærum fyrir við-
skiptavini sína og að stækka tengsl-
anet sitt. „Bjarki og Magnús eru
mjög virtir umboðsmenn með ótrú-
lega þekkingu og gott tengslanet
sem mun opna margar dyr fyrir
viðskiptavini okkar, sérstaklega
unga leikmenn sem eru að reyna að
komast inn í evrópsk lið,“ segir
Barnett á heimasíðu Stellar Group.
Magnús og Bjarki munu leiða nýja
Stellar Nordic-deild fyrirtækisins
og vinna framvegis undir þeim
merkjum. Stefnan er sett á að auka
umfang Stellar Group á Norður-
löndunum og í Rússlandi. Á vef
Stellar Group segir einnig að
tvíeykið muni reka tvær skrif-
stofur, annars vegar í Reykjavík
þar sem Bjarki er staðsettur, og
hins vegar í Kaupmannahöfn þar
sem Magnús er staðsettur.
Haft er eftir Bjarka að ný kyn-
slóð efnilegra knattspyrnumanna
sé fyrir hendi á Norðurlöndunum
sem muni byggja enn frekar ofan á
þann góða árangur sem hafi náðst á
undanförnum árum.
„Á meðan það að ganga til liðs við
Stellar mun bjóða upp á mörg tæki-
færi um allan heim mun það einnig
opna margar dyr fyrir núverandi
umbjóðendur okkar,“ segir Bjarki.
Magnús segir að áherslan síðustu
ár hafi verið að koma leikmönnum
inn í sterkustu deildir í heimi en
leggur áherslu á þau góðu tækifæri
sem eru til staðar fyrir knatt-
spyrnumenn á Norðurlöndunum.
Bjarki og Magnús
til liðs við Stellar
Stellar Group sú stærsta í heimi
AFP
Bolti Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður Everton, og Gareth Bale, leikmaður
Real Madrid, eru báðir á mála hjá umboðsmannaskrifstofunni Stellar Group.
● Heimavellir
hækkuðu um
6,19% í takmörk-
uðum viðskiptum
upp á 528 þúsund í
gær og var fast-
eignafélagið það
eina sem hækkaði í
verði í kauphöllinni.
Aðeins Skeljungur
hækkaði ekki enda
engin viðskipti sem
áttu sér stað með bréf félagsins í gær.
Mest lækkaði Icelandair í verði, eða um
2,85% í 51 milljónar króna viðskiptum
og standa bréfin í 6,48 kr. Sýn lækkaði
um 1,93% og standa bréfin í 25,4 kr.
Marel lækkaði um 1,54% í 493 milljóna
viðskiptum. Bréfin standa í 574 kr.
OMXI10 vísitalan lækkaði um 1,45%.
Rautt um að litast
í Kauphöll Íslands
Bjalla Slæmur dag-
ur í kauphöllinni.