Morgunblaðið - 26.09.2019, Blaðsíða 54
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2019
Elínrós Líndal
elinros@mbl.is
Tanit er fædd á Spáni en er íslensk-
ur ríkisborgari.
Hún hefur verið búsett í landinu í
átta ár en kom upphaflega hingað í
þriggja mánaða skiptinám sem Há-
skóli Reykjavíkur bauð upp á í sam-
vinnu við Viðskiptaháskólann
ESADE í Barselóna. Á þessum
tíma var Tanit að bæta við þekk-
ingu sína með MBA-gráðu (Master
of Business Administration). Hún
kolféll fyrir landi og þjóð. Kynntist
eiginmanni sínum Vilhjálmi Andra
Einarssyni og býr nú í áhugverðu
húsi í Hafnarfirðinum þar sem þau
vinna að því að byggja upp hugar-
efni sitt ANDRA ICELAND.
Erlendir gestir heillaðir
af Hafnarfirði
Húsið í Hafnarfirði stendur á fal-
legum stað. Það er á tveimur hæð-
um og með góðum garði. Húsið er
við hraun og segir Tanit skemmti-
legt að fá erlenda gesti í heimsókn
og segja þeim sögu íslenskrar nátt-
úru, um tröll og álfa og orkuna sem
hægt er að ná sér í með því að fara í
köld böð úti í garði og ganga síðan
berfættur í grasinu.
„Við Andri urðum strax ástfangin
af þessum stað þar sem húsið
stendur. Saman áttum við þann
draum að búa í húsnæði þar sem við
gætum boðið upp á einkatíma og
hóptíma fyrir allt að 20 ein-
staklinga. Við vildum hafa opið rými
og nóg pláss. Í raun stað þar sem
við gætum notið þess að vera sam-
an, en einnig leyft okkur að gera
það sem við vildum og þurfum að
gera í einrúmi.
Það er mikill friður í þessu húsi
og við höfum aðgang að náttúrunni
þó að við séum í miðri byggð. Á
neðri hæð hússins búum við Andri
en við störfum á efri hæðinni, sem
er sú hæð sem við göngum inn í frá
aðalinngangi.“
Leyfa umhverfinu að næra sig
Þegar komið er inn í húsið er
skemmtileg birta og rólegt and-
rúmsloft. Húsið er með fáum en vel
völdum húsgögnum og eldhúsið er
það fyrsta sem blasir við manni sem
og stofa sem er búið að breyta í fyr-
irlestrasal. Þar skiptir náttúran úti
meginmáli. Það eru gluggar í allar
áttir og á eina veggnum sem tekur
á móti manni þar sem sér minna í
náttúruna en annars staðar, er
spegill hangandi á miðjum veggnum
sem kastar mynd af náttúrunni á
vegginn svo hún haldi áfram að hafa
heilandi áhrif á þá sem eru inni í
húsinu.
„Við vildum að allir sem kæmu
hingað inn fengju sama tækifæri og
við höfum til að láta umhverfið
næra sig. Við erum vanalega með
hollar og góðar veitingar í eldhús-
inu. Við erum með opið út í garð
sem minnir okkur á að fara út og
láta náttúruna gefa okkur kraft. Við
erum með mínimalískan stíl og velj-
Heimilið gefur
orku og vellíðan
Tanit Karolys býr í björtu og stílhreinu húsi í
Hafnarfirði þar sem hún starfar einnig. Hún upplifði
kulnun í starfi og fann orkuna aftur úti í sjó með
eiginmanni sínum Vilhjálmi Andra. Heimilið þeirra
er bæði vinnustaður og griðastaður fjölskyldunnar.
SJÁ SÍÐU 56
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Afslappað Tanit Karolys elti ástina til Íslands, en hún er í sambúð með Vilhjálmi Andra Einarssyni.
Fólk andans Tanit og Vilhjálmur Andri eru mikið fyrir hugleiðslu og jóga.
Einfaldur stíll Tanit og Vilhjálmur Andri halda vinnustofur heima.
20.995 kr.
16.796 kr.
st. 36-41
22.995 kr.
st. 36-41
18.395 kr.
22.995 kr.
st. 37-42
18.395 kr.
20.995 kr.
st. 36-41
16.796 kr.
20% AFSLÁTTUR
26. – 29. SEPTEMBER