Morgunblaðið - 26.09.2019, Blaðsíða 24
Í PEKING
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Nú styttist óðum í að 70 ár verði liðin
frá stofnun Alþýðulýðveldisins Kína.
Þjóðhátíðardeginum verður fagnað
með pompi og prakt 1. október næst-
komandi um land allt, en sendiherra
Kína á Íslandi, Jin Zhijian, hyggst
meðal annars bjóða til fagnaðar í af
því tilefni í dag á Íslandi. En mest
verða hátíðarhöldin þó í höfuð-
borginni, Peking. Mikill viðbúnaður
hefur verið um alla borg síðustu daga
og er undirbúningur vel á veg
kominn.
Fjöldi öflugra hergagna til sýnis
Gera má ráð fyrir samgöngur fari
eitthvað úr skorðum þegar nær dreg-
ur hátíðarhöldum og hefur búnaði nú
verið komið upp víða um borg ásamt
því sem eftirlit og öryggisgæsla hefur
verið hert allverulega. Hátíðarhöldin
munu fara fram á Torgi hins himn-
eska friðar, en ráðgert er að herinn
muni halda mikla sýningu, þar sem
fjöldi öflugra hergagna auk skrið-
dreka og herflugvéla verður til sýnis.
Ekki er við öðru að búast en að sýn-
ingin verði öll hin glæsilegasta enda
beinast augu heimsins nú að landinu.
Miklar æfingar hafa átt sér stað
undanfarnar þrjár helgar þar sem
fjöldi herflugvéla hefur sveimað yfir
höfuðborginni. Á sunnudaginn sl.
virðist sem fleiri hafi orðið varir við
æfingarnar en áður, sem jafnframt
gerði það að verkum að myndir af at-
burðinum fóru eins og eldur í sinu um
netheima. Myndirnar gefa einhverja
vísbendingu um við hverju má búast
á þjóðhátíðardeginum. Meðal þotna
sem þar sjást eru Y-20 flutningavélar,
Z-10 árásarþyrlur og J-15 herþotur.
Þar má auk þess sjá hvernig vélarnar
er látnar mynda töluna 70 í lágflugi
yfir höfuðborginni.
Skotið á vestræna fjölmiðla
Í pistli sem skrifaður er í Global
Times er farið yfir þýðingu þjóð-
hátíðardagsins og við hverju má bú-
ast á deginum stóra. Þar er jafnframt
stuttlega tæpt á sögu Alþýðulýð-
veldisins auk þess sem skotið er á
vestræna fréttamiðla sem stöðugt hafi
fundið þróun landsins allt til foráttu.
Staðreyndir sem sýni gríðarlegan
árangur á bæði efnahags- og fé-
lagslegu hliðinni kveði þó slíkan
fréttaflutning í kútinn. Markmið með
hátíðarhöldunum miklu sé þar að auki
fyrst og fremst að auka sjálfstraust og
gleði þjóðarinnar í heild.
Í baráttu á nokkrum vígstöðvum
Eins og áður hefur verið fjallað um
stendur Kína nú í baráttu á nokkrum
vígstöðvum. Landið á í viðskiptastríði
við Bandaríkin, sem staðið hefur yfir
um nokkurt skeið. Löndin hafa aukið
tolla og skatta á vörur hvort annars á
víxl undanfarin misseri. Þá hefur
komið til átaka milli mótmælenda og
lögreglu í Hong Kong þar sem mót-
mælendur hafa gert tilraunir til að
trufla starfsemi á alþjóðaflugvell-
inum.
Ekki stendur þó til að láta framan-
greind mál hafa nokkur áhrif hafa á
hátíðarhöldin veglegu og eru kín-
versk yfirvöld staðráðin í að gera
daginn sem glæsilegastan. Þá segir
enn fremur í pistli Global Times að
engin ástæða sé til þess að láta tíma-
bundnar áskoranir beygja sig heldur
sé hægt að horfa björtum augum til
framtíðar.
Ljóst er að forvitnilegt verður að
fylgjast með hátíðarhöldunum, en
ekki er ólíklegt að öllu verði tjaldað til
á 70 ára afmælinu.
Alþýðulýðveldið Kína 70 ára
Þjóðhátíðardeginum verður fagnað með pompi og prakt 1. október en þá verða liðin 70 ár frá
stofnun Alþýðuveldisins Kína Hátíðahöldin fara fram á Torgi hins himneska friðar í Peking
AFP
Peking Hátíðarhöldin fara fram á Torgi hins himneska friðar þar sem hermenn munu ganga fylktu liði í þúsundavís í höfuðborg Kína.
Mótmæli Komið hefur til átaka milli mótmælenda og lögreglu í Hong Kong.
Ekki stendur þó til að láta slíka tilburði hafa áhrif á hátíðarhöldin.
24 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2019
Atvinna
Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi - Sími: 555-1212 - handverkshusid.is
Opið frá kl. 8 - 18 virka daga og 12 - 16 laugardaga
VILTU LÆRA SILFURSMÍÐI,
TÁLGUN EÐA TRÉRENNSLI?
Fjölmör
stuttnáms
í handve
g
keið
rki.
Skráning og upplýsingar á
www.handverkshusid.is