Morgunblaðið - 26.09.2019, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2019
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Nýr áfangi meðferðarheimilis Sam-
hjálpar í Hlaðgerðarkoti í Mosfells-
dal var vígður í gær. 47 ár eru liðin
frá því að fyrstu skjólstæðingarnir
komu í meðferð Samhjálpar til þess
að fá hjálp og stuðning til að takast
á við fíknivanda sinn.
Vörður Leví Traustason er fram-
kvæmdastjóri Samhjálpar. Hann
lýsti nýja áfanganum svo í samtali
við Morgunblaðið í gær:
„Við vígjum í dag hús sem við
byrjuðum á árið 2016. Það var í
kjölfar landssöfnunar á Stöð 2 árið
2015 þar sem söfnuðust 80 milljónir
króna meðal landsmanna. Þetta hús
er fjölnota salur, mötuneyti, að-
staða fyrir lækni og hjúkrunar-
fræðing og fleira. Þetta er því mik-
ill hátíðardagur þegar við vígjum
húsið.“
Hann segir að auk landssöfnunar
hafi fjöldi fyrirtækja, einstaklinga
og félagasamtaka lagt framkvæmd-
unum lið. Oddfellow á Íslandi hafi
síðan komið með myndarlegt fram-
lag á lokasprettinum.
Meðalaldur lækkar stöðugt
Vörður segir að einnig hafi verið
gerðar breytingar á gamla eldhús-
inu í Hlaðgerðarkoti. Um leið verði
11 af 16 herbergjum tekin í notkun,
sem hafi verið gerð upp með glæsi-
legum hætti, þar sem sturta og bað
fylgi hverju herbergi. „Þetta verð-
ur gríðarlega mikil og jákvæð
breyting fyrir starfsemi okkar hér
og skjólstæðinga okkar,“ sagði
Vörður. „Fyrir utan nýja húsið höf-
um við fyrst og fremst verið að
tæma gömlu bygginguna og gera
upp, því sú bygging var orðin svo
úr sér gengin að hún var á und-
anþágu frá slökkviliðinu. Þriðji og
síðasti áfanginn hjá okkur verður
svo að ráðast annaðhvort í end-
urbætur á elsta hluta gamla húss-
ins eða rífa og endurbyggja, því
hann er kominn vel til ára sinna,
byggður 1955. Við keyptum það hús
1974 af Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkurborgar, en nefndin
hafði til þess tíma rekið stúlkna-
heimili í Hlaðgerðarkoti,“ sagði
Vörður.
Hverju sinni eru 30 manns í með-
ferð í Hlaðgerðarkoti, 10 konur og
20 karlar. Meðferðin varir í þrjá
mánuði en í sumum tilvikum lengist
hún í sex og jafnvel níu mánuði.
Síðan býður Samhjálp upp á eft-
irmeðferð á áfangaheimilum sínum.
Hún getur varað í allt að tvö ár, á
meðan skjólstæðingar Samhjálpar
undirbúa sig fyrir endurkomu út í
lífið, leita sér að vinnu eða undirbúa
að hefja nám. „Því miður fer meðal-
aldur skjólstæðinga okkar stöðugt
lækkandi. Um 75% þeirra eru yngri
en 39 ára og meirihluti þeirra er
innan við þrítugt,“ sagði Vörður.
Hann segir að neyslumynstur
skjólstæðinganna hafi jafnframt
breyst. Margir hefji strax neyslu á
sterkum fíkniefnum en byrji ekki
neyslu sína á bjór og víndrykkju,
eins og var algengast hér áður fyrr.
Þetta eigi fyrst og fremst við um
yngstu aldurshópana.
Gleðidagur í Hlaðgerðarkoti
Samhjálp tók í gær í notkun nýjan áfanga sem gjörbreytir starfsaðstöðunni
til hins betra Nýtt mötuneyti og aðstaða fyrir lækni og hjúkrunarfræðing
Morgunblaðið/Eggert
Hlaðgerðarkot Vörður Leví Traustason, framkvæmdastjóri Samhjálpar, lengst til hægri, sýnir Jóni Gunnarssyni
þingmanni og Haraldi Sverrissyni, bæjarstjóra Mosfellsbæjar, húsakynnin þegar þau voru opnuð formlega í gær.
Umsóknarfrestur um tvær stöður
presta í Fossvogsprestakalli rann út
1. ágúst sl. Alls bárust 12 umsóknir.
Kjörnefnd hefur valið þær sr. Evu
Björk Valdimarsdóttur og sr. Maríu
Guðrúnardóttur Ágústsdóttur til að
gegna þesum embættum. Kjörið fór
fram á fundi kjörnefndar Fossvogs-
prestakalls 20. september sl.
Mun biskup Íslands með hliðsjón
af niðurstöðu kjörnefndar skipa þær
í framangreind embætti, frá og með
1. október 2019.
Fossvogsprestakall varð til við
sameiningu prestakallanna í Foss-
vogi, Bústaðaprestakalls og Grens-
ásprestakall. Prestar verða þrír.
Sóknarprestur er sr. Pálmi Matt-
híasson.
Þá hefur kjörnefnd Breiðholts-
prestakalls nýlega valið sr. Magnús
Björn Björnsson sem sóknarprest
úr hópi fjögurra umsækjenda um
prestakallið. Sr. Magnús Björn var
settur sóknarprestur við prestakall-
ið til 1. september. sisi@mbl.is
Valdar til
þjónustu í
Fossvogi
Ný sókn Þjóna í Grensáskirkju.
RANGE ROVER EVOQUE
MILD HYBRID
NÝR EVOQUE MEÐ RAFTÆKNI
landrover.is
LAND ROVER
HESTHÁLSI 6-8, 110 REYKJAVÍK
SÍMI: 525 6500
RANGE ROVER Evoque S 150D
Fjórhjóladrifinn, sjálfskiptur. Verð frá: 7.890.000 kr.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
5
8
7
4