Morgunblaðið - 26.09.2019, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2019
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Þeir sem hafa verið gestkomandi í
Kringlunni síðustu daga hafa ef-
laust orðið varir við uppstillingu
sem Blái naglinn hefur sett upp á
jarðhæð verslunarmiðstöðvarinnar,
en hún samanstendur af 1.600
flöskum. Á hver flaska að tákna
einn Íslending sem greinist með
krabbamein á ári hverju, og er
miðað við meðaltal áranna 2013-
2017.
Jóhannes V. Reynisson, stofn-
andi Bláa naglans, segir markmið-
ið það að hvetja til þess að tekin
verði upp kerfisbundin skimun í
blóði á fimm ára fresti fyrir
krabbameini á heilsugæslustöðvum
fyrir bæði kyn frá og með 20 ára
aldri.
Jóhannes segir aðdragandann
mega rekja til þess er hann sjálfur
greindist með krabbamein í
blöðruhálskirtli árið 2011. Í fram-
haldinu hafi hann viljað gera sitt
til þess að koma í veg fyrir að syn-
ir sínir þyrftu að heyja sömu
glímu. Hefur Jóhannes meðal ann-
ars gert heimildarmyndina Blái
naglinn, auk þess sem samtökin
stefna að stofnun sérstaks sam-
félagssjóð sem á að styðja við
rannsóknir á krabbameini.
Táknað með lituðum borðum
Af flöskunum 1.600 eru 616
svartmálaðar. Jóhannes segir þær
flöskur tákna þá Íslendinga sem
látast á hverju ári af völdum
krabbameins. Þá eru á glæru
flöskunum borðar sem tákna eiga
hin mismunandi krabbamein sem
fólk getur fengið. Þannig er bleik-
ur borði tákn fyrir brjóstakrabba-
mein og hvítur fyrir beinkrabba,
svo dæmi séu nefnd.
Í þúsund flöskum eru svo skeyti,
sem Jóhannes segir að hafi tákn-
ræna merkingu. „Spurningin er,
hverjar eru líkurnar á að þú finnir
flöskuskeyti? Þær eru ekki miklar,
en þriðji hver Íslendingur greinist
með krabbamein og það er skugga-
lega há tala,“ segir Jóhannes og
bætir við að hann vilji að heilsu-
gæslan verði efld til þess að hægt
sé að sinna forvarnarstarfi betur.
„Það er það sem við ætlum að
gera á næsta ári, að hvetja til þess
að hér verði svokölluð „lýðheilsu-
skipti“ þannig að farið verði úr
engu forvarnarkerfi upp í að skoð-
að verði hjá báðum kynjum frá og
með tvítugu,“ segir Jóhannes.
Hann hefur fundið fyrir miklum
stuðningi síðustu daga, ekki síst
frá ungu fólki. „Við þurfum aðeins
að staldra við, viljum við sama
kerfi og verið hefur eða viljum við
breyta því?“ spyr Jóhannes að
lokum.
Flöskuskeytið sem enginn vill fá
Jóhannes V. Reynisson, stofnandi Bláa naglans, vill að leitað verði að krabbameini frá og með 20 ára
aldri 1.600 uppstilltar glerflöskur í Kringlunni tákna þá sem greinast með krabba á hverju ári
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Blái naglinn Hver flaska táknar einn Íslending sem greinist með krabbamein, m.v. meðaltal áranna 2013-2017.
Jóhannes segir að starfsemi
Bláa naglans sé ekki ein-
skorðuð við karla. Þannig
hafa samtökin einnig unnið
að forvörnum á ristilkrabba-
meini, sem herjar á bæði
kyn, með átakinu „Til ham-
ingju með afmælið“. Frá
árinu 2015 hafa allir sem
verða fimmtugir á ári hverju
fengið forláta afmælisgjöf,
heimapróf sem skimar fyrir
leyndu blóði í hægðum, sem
getur verið fyrsti vísir ristil-
krabbameins.
Jóhannes segir að átakið
hafi þegar leitt til mikilla
framfara. „Ég hef nú gefið
20.000 próf en þegar ég fór
af stað með þetta var lítil
umræða um krabbamein í
ristli.“ Hann segir mikla
breytingu hafa orðið þar á
frá þeim tíma. „Það eru
breyttir tímar í forvörnum
fyrir þessu meini, en við Ís-
lendingar eigum líklega
heimsmet í fjölda ristilspegl-
ana til þess að skima fyrir
þessu krabbameini.“
Um 20.000
afmælisgjafir
FIMMTUGSAFMÆLISGJÖF
HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is
Hlustaðu
á hjartað þitt
Beltone Trust™ heyrnartækin gera þér kleift að heyra jafnvel minnstu smáatriði
– sem stundum reynast þau mikilvægustu. Við hjá Heyrnarstöðinni leggjum allan
okkar metnað í að veita góða þjónustu og bjóða upp á hágæða heyrnartæki.
Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánuð til reynslu.
Beltone Trust
™