Morgunblaðið - 26.09.2019, Síða 4

Morgunblaðið - 26.09.2019, Síða 4
Við Tjörnina í Reykjavík má finna nokkur af fegurstu húsum borgarinnar. Eitt þessara húsa, Ráðherrabústaðurinn svo- sjóður húsið í því skyni að gera það að föstum ráðherrabústað og er það enn í eigu íslenska ríkisins. nefndi, var reist af Hannesi Hafstein, fyrsta ráðherra Íslands, árið 1906. Eftir að Hannes lét af embætti 1909 keypti Lands- Við Tjörnina í miðbæ Reykjavíkur Haustlitir setja nú svip sinn á borgarmyndina Morgunblaðið/Kristinn Magnússon 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2019 Ríflega 250 milljónum króna verð- ur varið til að efla vöktun á súrnun sjávar og á jöklum næstu fimm ár- in hér á landi. Þetta var tilkynnt í gær í tilefni útkomu nýrrar skýrslu milliríkjanefndar Samein- uðu þjóðanna um loftslagsbreyt- ingar (IPCC) og áhrif þeirra á haf- ið og freðhvolfið. Skýrslan dregur saman nýjustu og áreiðanlegustu upplýsingar um áhrif loftslags- breytinga á jökla og höf, sem eru þeir þættir sem varða Íslendinga einna mest. Hafrannsóknastofnun fær 35 milljónir króna á árinu 2019 og 30 milljónir króna árlega á árunum 2020-2023, eða samtals 155 millj- ónir króna, til þessa viðfangsefnis. Framlögum ársins í ár verður var- ið til kaupa á tækjabúnaði til þess að efla vöktun sem þegar á sér stað um sýrustig í hafi, en einnig til að hefja vöktun á botndýrum m.t.t. súrnunar sjávar. „Nú hafa íslensk stjórnvöld stig- ið stórt skref í átt að aukinni þekk- ingu á áhrifum loftslagsbreytinga á nokkra lykilþætti eins og súrnun hafsins, jökla, skriðuhættu og sjávarstöðubreytingar. Vöktun er afar mikilvægt tæki til að hjálpa okkur m.a. að skilja betur afleið- ingar hamfarahlýnunar og er ekki síst þýðingarmikið fyrir vinnu þeg- ar kemur að aðlögun íslensks sam- félags að loftslagsbreytingum. Að sama skapi er sú þekking sem hér mun verða til veigamikið innlegg Íslands til loftslagsmála á alþjóð- legum vettvangi,“ er haft eftir Guðmundi Inga Guðbrandssyni, umhverfis- og auðlindaráðherra, í tilkynningu. mhj@mbl.is Vöktun á jöklum aukin Morgunblaðið/RAX Ok Um 250 milljónir fara í vöktun jökla og súrnunar sjávar næstu fimm ár.  Skref í átt að aukinni þekkingu á áhrifum loftslagsbreyt- inga á súrnun hafsins og jökla, segir umhverfisráðherra Það dylst engum að skipulagsbreyt- ingar á skrifstofu stéttarfélagsins Eflingar sem urðu til þess að starfs- manni var sagt upp í lok ágústmán- aðar eru „fullkomlega raunverulegar“ sagði Viðar Þorsteinsson, fram- kvæmdastjóri Eflingar, í samtali við mbl.is í gær. Þráinn Hallgrímsson, fyrrverandi skrifstofustjóri Eflingar, ritaði grein sem birtist í Morgunblaðinu í gær þar sem hann segir að starfsmanninum hafi verið sagt upp fyrirvaralaust og að skipulagsbreytingarnar hafa verið fyrirsláttur. Hann segir að ákvæði kjarasamninga um áminningarferil hafi ekki verið virt og að fram- kvæmdastjóri Eflingar hafi notið lið- sinnis lögmanns ASÍ við uppsögnina. „Þessi samsæriskenning er vægast sagt langsótt. Hér er um að ræða skipulagsbreytingar sem voru rædd- ar í stjórn félagsins, kynntar mjög rækilega fyrir starfsmönnum og hafa verið í framkvæmd á síðustu vikum,“ segir Viðar og bætti því við að áminn- ingarferlar ættu ekki við þegar um væri að ræða uppsagnir vegna skipu- lagsbreytinga. Þá harmaði Viðar þær árásir á lögmann ASÍ sem komu fram í grein Þráins og tók það fram að starfsmanninum hefði boðist að nýta sér þjónustu lögmannsins sem hann og gerði. Þráinn fór um víðan völl í grein sinni og sakaði forystumenn Eflingar meðal annars um að haga sér eins og „verstu atvinnurekendur“ gagnvart starfsfólki sínu sem hafi meðal annars leitt til sex uppsagna og langtímaveik- inda á milli tíu og tuttugu starfs- manna. „Ég lýsi furðu minni á því að maður sem hefur ekki starfað á skrifstofu Eflingar síðan í maí 2018 sé að tala líkt og hann sé heimildamaður um innri starfsmannamál. Ég bara spyr hverjar eru hans heimildir og hvað kemur honum þetta við?“ sagði Viðar um þessar ásakanir Þráins í samtali við mbl.is. Þar sneri Viðar einnig vörn í sókn og sagði Þráin hafa haft uppi það sem hann kallaði „áreitni í garð starfsmanna hjá Eflingu“ með sífelld- um tölvupóstsendingum sem inni- héldu rógburð og ósannindi. thor@mbl.is Segir breytingar hafa verið „fullkomlega raunverulegar“  Sakar fyrrverandi skrifstofustjóra um áreitni í garð starfsfólks Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki á málefnasviðum ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra. Styrkirnir eru ætlaðir til verkefna sem efla atvinnulíf og nýsköpun. Umsóknarfrestur er til 21. október nk. Umsóknir berist rafrænt í gegnum eyðublaðavef Stjórnarráðsins. Allar nánari upplýsingar á anr.is Styrkir til verkefna og viðburða Icelandair hefur ákveðið að segja upp 87 flugmönnum í stað þess að færa 111 flugmenn í 50% starf frá 1. desember 2019 eins og áður var ákveðið. „Um síðustu mánaðamót voru því gerðar tímabundnar breyt- ingar hjá hópi flugmanna og flug- stjóra, frá 1. desember 2019 til 1. apríl 2020, þar sem m.a. 111 flug- menn voru færðir niður í 50% starf. Ákveðið hefur verið að draga þessa ráðstöfun til baka en segja þess í stað upp hluta af flugmönnum fé- lagsins. Uppsögnin tekur gildi 1. október nk. og nær til 87 flug- manna,“ segir í fréttatilkynningu frá Icelandair, en flugfélagið vonast til að geta boðið flestum þeirra störf aftur næsta vor. Hjá félaginu starfa áfram um 460 flugmenn og flug- stjórar. Samhliða því undirritaði Icelanda- ir framlengingu á kjarasamningi við Félag íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) og gildir hann til 30. septem- ber 2020. Fyrri samningur hefði að öllu óbreyttu runnið út um næstu áramót. Icelandair tilkynnti í lok síð- Icelandair segir upp 87 flugmönnum  Ráðstafanir vegna Boeing 737 MAX Icelandair 87 flugmönnum hjá flugfélaginu hefur verið sagt upp. asta mánaðar að gera þyrfti ráðstaf- anir innan félagsins til að bregðast við kyrrsetningu Boeing 737-Max flugvéla sem ekki er gert ráð fyrir að taka inn í rekstur félagsins á ný fyrr en á nýju ári. Í fréttatilkynningunni kemur enn fremur fram að kjarasamningurinn kveði á um að samningsbundin launahækkun, sem taka átti gildi 1. október, frestist til 1. apríl 2020 og engar aðrar launahækkanir muni eiga sér stað á tímabilinu. Morgunblaðið/Eggert

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.