Morgunblaðið - 26.09.2019, Page 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2019
Geðheilbrigðiskerfið hefuroft á tíðum þótt þungt ívöfum og flókið. Mörgumfundist skorta úrræði,
fjölbreytileika og samvinnu.
Einstaklingurinn sem málið varðar
veit oft á tíðum
ekki hvert á að
leita en óumdeilt
er að mikilvægt
sé að ræða vand-
ann við sína nán-
ustu. Jafnframt
vera upplýstur
um þær leiðir
sem eru í boði.
Reyndar eru til
mörg úrræði sem
sinna geðheil-
brigðisþjónustu þó að oft sé erfitt
fyrir almenning að átta sig á hver
gerir hvað.
Vægari vanda er hægt að leysa
inni á heilsugæslu í viðtali við heim-
ilislækni eða sálfræðing. Aðrir kjósa
að fara til sálfræðinga eða geðlækna
á stofu. Enn aðrir þurfa meiri aðstoð
og leita þá til geðsviðs Landspít-
alans. Fyrir utan þessa þjónustu eru
ýmis félagasamtök og endurhæfing-
arstofnanir sem hægt er að leita til
fyrir utan félagsþjónustuna. Oft er
heilbrigðisþjónustunni skipt í stig
eftir því hve vandinn er alvarlegur.
Fyrsta stigið á við heilsugæsluna,
annað stig á við þegar vandinn er
orðinn langvinnur og fólkinn og
þriðja stigið er sjúkrahúsþjónusta.
Þrjú geðheilsuteymi á
höfuðborgarsvæðinu
Innan Heilsugæslu höfuðborgar-
svæðisins munu starfa þrjú geð-
heilsuteymi sem eru svæðisskipt.
Geðheilsuteymi austur sem þjón-
ustar austur hluta Reykjavíkur, geð-
heilsuteymi vestur sem þjónustar
íbúa vestan Elliðaáa, geðheilsuteymi
suður mun sinna Kragasvæðinu en
verið er að undirbúa starfsemi teym-
isins. Geðheilsuteymin eru þverfag-
leg 2. stigs geðheilbrigðisþjónusta.
Í þeim starfa hjúkrunarfræðingar,
geðlæknar, sjúkraliði, íþróttafræð-
ingur, fjölskyldufræðingar, iðju-
þjálfi, þjónustufulltrúar ásamt not-
endafulltrúum sem eru einstaklingar
með persónulega reynslu af geðrösk-
unum. Þétt samstarf er við þjónustu-
miðstöðvar með aðkomu félags-
ráðgjafa í teymin. Atvinnulífs-
ráðgjafi frá Virk hefur haft aðkomu
að þjónustu teymanna.
Hver velji sína leið
Lykilþættir þjónustunnar eru að
hún er veitt í nærumhverfi fólks,
stuðst er við batahugmyndafræði og
gagnreyndar aðferðir. Einstaklingur
er því aðstoðaður með þeim leiðum
og stuðningi sem henta honum
hverju sinni. Því sé haft í huga að
hver og einn velji sína leið, að bati sé
einstaklingsbundinn og geti tekið
mislangan tíma. Í teymunum er ein-
staklings- og fjölskylduvinna ásamt
fræðslu en námskeið eru stór hluti af
starfseminni. Geðheilsuteymin
styðjast einnig við hugmyndafræði
FACT þar sem sveigjanleiki þjón-
ustunnar er í fyrirrúmi, einstak-
lingsbundin málastjórn og samvinna
þvert á ólík svið.
Reynsla og rannsóknir sýna óum-
deilanlega að góður lífsstíll er frum-
forsenda góðrar geðheilsu. Því er
áhersla á gott mataræði, hreyfingu
og svefn samhliða vinnu með tilfinn-
ingalega líðan, ásamt því að efla von,
bæta sjálfsmynd, bjargráð, virkni og
tengslanet.
Stefna í stöðugri þróun
Starfsemi geðheilsuteymanna fer
fram með viðtölum á starfsstöð og/
eða heimavitjunum eftir því sem þörf
er á hverju sinni. Til að tryggja sam-
fellda þjónustu með hagsmuni ein-
staklingsins að leiðarljósi eiga geð-
heilsuteymin gott samstarf við aðrar
stofnanir ásamt félaga- og notenda-
samtökum. En stefna geðheilsu-
teymanna er að vera í stöðugri þróun
og horfa til þarfa þjónustuþega
hverju sinni. Þeir einstaklingar sem
þiggja þjónustu teymanna eru á
breiðu aldursbili (18 ára og upp úr)
því er mikilvægt að sníða þjónustuna
að hverjum og einum. Óumdeilt er að
notendur hafa mikilvæg áhrif á þjón-
ustuna en samvinna þeirra innan
þverfaglegs teymis við fagfólk úr
ólíkum stéttum er mikilvægur hlekk-
ur þjónustunnar.
Á vefnum heilsuvera.is má lesa um
ýmsar leiðir til að bæta andlega
líðan.
Morgunblaðið/Hari
Mannlíf Hreyfing er mikilvæg fyrir geðheilsu og sálina, en jafnframt áminn-
ing til fólks um að halda alltaf áfram þó að stöku sinnum komi mótbyr.
Geðheilsa og heilbrigðisþjónustan
Heilsuráð
Sigríður Hrönn Bjarnadóttir, geðhjúkr-
unarfræðingur MS og teymisstjóri
geðheilsuteymi Heilsugæslu höfuð-
borgarsvæðsisins – austurhluta.
Sigríður Hrönn
Bjarnadóttir
Unnið í samstarfi við Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins.
Að fólk lofi sjálfu sér og öðrum að
gera einfaldar breytingar á lífsstíl
sínum heilsunni til heilla er áherslu-
mál á alþjóðlega hjartadeginum, 29.
september næstkomandi. Alþjóða-
hjartasambandið (World Heart Feder-
ation) hvetur aðildarfélög sín um all-
an heim til að halda upp á hjarta-
daginn og á Íslandi sameinast
Hjartavernd, Hjartaheill, Neistinn og
Heilaheill um að halda upp á daginn.
Á föstudaginn 27. september kl. 18
hefst hjartadagsgangan í Elliðaárdal.
Lagt verður af stað frá brúnni sem er
á milli gömlu rafstöðvarinnar og
Toppstöðvarinnar. Genginn verður
hringur sem er rétt um 4 km. Á
laugardag, 28. september, kl. 10
verður hjartadagshlaupið svo ræst á
Kópavogsvelli. Boðið er upp á 5 og 10
km vegalengdir um Kársnesið. Þátt-
taka er ókeypis svo og í sund í Kópa-
vogi eftir hlaup.
Í tilkynningu frá Hjartaheillum er
minnt á mikilvægi hreyfingar og
skynsamlegrar næringar fyrir hjarta-
heilsu. Hreyfing þurfi ekki að vera
bundin við íþróttir eða líkamsrækt og
getur verið margs konar, eins og við
heimilisstörf, garðvinnu eða einfald-
lega að fara út og leika við börnin.
Mikilvægt sé að setja raunhæf mark-
mið og þrekið komi smám saman.
Hjartadagur 29. september
Morgunblaðið/Golli
Gleði Látum hjartað ráða förinni.
Heilsu til heilla
Þórdís Kolbrún Reykfjörð
Gylfadóttir, ráðherra ferða-
mála-, iðnaðar- og nýsköpunar,
býður til opins kynningarfundar
föstudaginn 27. september
næstkomandi þar sem kynntar
verða niðurstöður tveggja verk-
efna; Framtíðarsýn og leiðar-
ljós íslenskrar ferðaþjónustu
til ársins 2030 og Jafnvægisás
ferðamála.
Jafnvægisás ferðamála er
stjórntæki til að meta reglulega
áhrif ferðaþjónustu á umhverfi,
innviði, samfélag og efnahag
landsins. Jafnvægisásinn
myndar ásamt Framtíðarsýn og
leiðarljósi ný stjórntæki í ferða-
málum sem hugsuð eru sem
undirstaða og afmörkun fyrir
aðgerðabundna stefnumótun-
arvinnu sem er framundan.
Dagskrá:
13:00 – 13:20 Framtíðarsýn og leiðarljós íslenskrar ferðaþjónustu til ársins 2030
Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir
13:20 – 14:15 Jafnvægisás ferðamála – EFLA Verkfræðistofa
Þjóðhagslegar stærðir
Innviðir – vegir, flugvellir og hafnir
Veitur og úrgangsmál
14:15 – 14:30 Kaffihlé
14:30 – 15:30 Jafnvægisás ferðamála frh.
Umhverfi
Náttúrustaðir og loftslagsmál
Samfélagsáhrif, stoðþjónusta, lögregla, heilsugæsla, húsnæðismál
Sýnishorn af nýju Stjórnborði Jafnvægisáss ferðamála
15:30 – 16:00 Pallborðsumræður
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamálaráðherra
Óskar Jósefsson, framkvæmdastjóri Stjórnstöðvar ferðamála
Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar
Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, forstöðumaður Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála
Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa lónsins
Fundarstjóri er Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Íslenska ferðaklasans.
Fundurinn fer fram á Hilton Reykjavík Nordica frá kl. 13.00 til 16.00
Allir velkomnir en skráning er nauðsynleg. Allar nánari upplýsingar á www.anr.is
Fundinum verður streymt.
Framtíðarsýn
ferðaþjónustunnar