Morgunblaðið - 26.09.2019, Blaðsíða 44
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins • Skógarhlíð 14 • S: 528 3000 • www.shs.is
Hæfniskröfur og eiginleikar
○ Háskólagráða sem nýtist í starfi
(meistarapróf kostur)
○ Góð bókhaldsþekking og reynsla af
bókhaldsstörfum og uppgjörsvinnu
○ Þekking og reynsla af opinberri
stjórnsýslu kostur
○ Marktæk reynsla og hæfni í
verkefnastjórnun og áætlanagerð
○ Góð tölvukunnátta (reynsla af
Navision er kostur)
○ Færni í mannlegum samskiptum
○ Frumkvæði, skipulagshæfileikar
og sjálfstæð vinnubrögð
FJÁRMÁLASTJÓRI
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
leitar að öflugum fjármála stjóra til
að sinna daglegri fjármálastýringu
stofnunarinnar. Starfið heyrir beint
undir slökkviliðsstjóra.
Meginverkefni fjármálastjóra
eru daglegur rekstur fjármála,
áætlanagerð og uppgjör, útboðsmál,
samningagerð, rekstur fasteigna og
miðlun stjórnendaupplýsinga.
Starfið er bæði umfangsmikið og krefjandi og hent-
ar einstaklingi sem býr yfir færni til að vinna undir
álagi að mörgum fjölbreyttum verkefnum á sama
tíma. Fjármála stjóri er hluti af framkvæmdastjórn
slökkviliðsins og vinnur náið með slökkviliðsstjóra
og framkvæmda stjórn að því að framfylgja stefnu
og ná rekstrarmarkmiðum stofnunarinnar.
Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg Óðinsdóttir
mann auðs stjóri SHS í gegnum netfangið
ingibjorgo@shs.is eða í síma 528 3122. Umsóknir
sem innihalda ferilskrá, rökstuðning fyrir umsókn
og prófskírteini skulu berast í sama netfang.
Umsóknar frestur er til og með 1. október 2019.
SLÖKKVILIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS bs.
hagvangur.is
Lögfræðingur og deildarstjóri sjóðfélagalána
Almenni lífeyrissjóðurinn óskar eftir lögfræðingi til starfa. Um er að ræða fullt starf sem felst meðal annars í að bera ábyrgð
á daglegri starfsemi vegna lána til sjóðfélaga og að sinna fjölbreyttum lögfræðistörfum fyrir sjóðinn. Í boði er vinnustaður
sem hlúir að starfsfólki með góðri vinnuaðstöðu og áhugaverðum og fjölbreyttum verkefnum.
Starfssvið
• Deildarstjóri sjóðfélagalána
• Lögfræðileg verkefni og álitaefni, tengd
lífeyrismálum og eignastýringu
• Skjala- og samningagerð, innlend og erlend
• Ýmis tilfallandi verkefni og lögfræðistörf sem
tengjast starfsemi sjóðsins
Hæfniskröfur
• Meistarapróf eða embættispróf í lögfræði
• Reynsla af sambærilegum störfum kostur
• Reynsla af störfum á fjármálamarkaði kostur
• Góð færni í íslensku og ensku
• Skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og góð hæfni
í mannlegum samskiptum
Upplýsingar veitir:
Sverrir Briem
sverrir@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og með 7. október 2019.
Umsóknum þarf að fylgja ítarleg ferilskrá
og kynningarbréf.
Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is
Almenni lífeyrissjóðurinn er fullgildur lífeyrissjóður og hefur starfsleyfi samkvæmt lögum um skyldutryggingu
lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Hjá sjóðnum starfar samheldinn hópur starfsmanna sem leggur metnað
sinn í að vinna vel fyrir sjóðfélaga og veita úrvalsþjónustu.
atvinna@mbl.is • Sölufulltrúi • Richard Richardsson, richard@mbl.is, 569 1391